Þróttur - 01.12.1921, Blaðsíða 10

Þróttur - 01.12.1921, Blaðsíða 10
86 Þróttur allaf með og framkvæmi sjálft kastið. — Það er mjög vandasamt að kasla kringlu rétt, enda eru þeir ekki margir sem geta það. Finnar hafa i því, eins og í spjótkasti bætt aðferðina talsvert. Reir hafa leitast við af fremsta megni að fá kastið til þess að vera hreint »armkast« þ. e. að þó að búkurinn sé knúinn fram þá kasti maður altaf með liandleggnum. En þetta er frábrugðið »gamla laginu« þar sem handleggurinn verkaði eins og nokkurskonar slöngva. — Rað er nú bælt úr þeim ágöllum, sem voru á »gömlu aðferðinni« með »Taipales aðferð«, en hún er sú að handleggurinn, í undirbúningssveiílunum og atrennunni er sveiílað í boglínum, en við það fær liann meira svigrúm og krafturinn verður meiri á handleggnum við sjálft kastið. En aðalávinningurinn við þessa aðferð er sá, að allur hand- leggurinn ásamt öxlinni er eins og í hvíldarstöðu áður en sjálft kastið byrjar en af því leiðir að krafturinn kemur samtímis frá öllum líkamanum. Aðferð Taipales er viðurkend að vera sú bezta, sem menn hingað til hafa notað. — — Til þess að verða fullkominn kastari og til þess að geta náð góðum árangri þarf auðvitað ýmsa meðfædda eigin- leika. Aðal eiginleikar, sem »kastarar« þurfa að hafa, eru, hvað snertir lcúluvarp, að þeir séu háir á vöxt, sterkir, þungir og skjótir í hreyfingum. í hamarskasti er hæðin ekki eins nauðsynleg. Við þyngdarkast er hæðin nauðsynleg, auk þess kraftar og þyngd. Til þess að verða góður kringlukastari þarf hæð og krafta, en liðleikinn er einnig mikilvægur.- í spjótkasli reynir mest á liðleikann og skjótleikann, en þyngdin og hæðin mega sín aflur minna. Leikmót. Mörg merk leikmót hafa verið haldin á þessu ári, bæði hér í Reykjavík og eins út um land. Merkast þessara móta var allsherjarmólið, sem hér var háð a íþróttavellinum 17., 18. og 20. júní í sam- bandi við heimsókn Norskra fimleika- manna, frá Christiania Turnforening, er vér gátum um í síðasla blaði. Hefir hér aldrei áður verið háð jafn fjölmenl leikmót sem þelta. 46 íþróttamenn keptu á því, frá 10 íþróttafélögum, auk fim* leikaflokks I. R. Mótið setti fornraður í. S. í., eftir að keppendur höfðu gengið í skrúðgöngu inn á leikvöllinn. Þá bélt Bjarni alþm. Jónsson frá Vogi ræðu: íslandsminni. Þá liófst fimleikasýning; 14 meyjar úr kvennaflokk í. R., undir stjórn Björns Jakobssonar. Rólti mönn- um ílokkurinn liafa tekið miklum fram- förum frá því í fyrra, og var honum vel fagnað að sýningunni loknri Þá liófust kappraunirnar og í þeirri röð og með þeim árangri sem hér segir: 100 8tiku hlaup. (Tólf keppendur). I. Tryggvi Gunnarsson á 122/1o sek. II. Kristján L. Geslsson á 123/io sek. og III. Þorkell Þorkelsson á 124/io sek. Spjótkast, með betri hendi. (Sex keppendur). I. Tryggvi Gunnarsson kast- aði 39,51 sliku, og er það nýlt met. II- Guðm. Kr. Guðmundsson, kastaði 36,37l/3 st. og III. Ólafur Sveinsson, kastaði 33 st. 1500 stiku hlniip. (Tólf keppendur). I. Guðjón Júlíusson á 4 m'n. 286]ío sek., (nýtt met). II. Þorgils Guðmundsson á 4 mín. 314/io sek. og III. Konráð Krist- jánsson á 4 mín. 32 sek. Kúluvarp. (Fjórir keppendur). I. Tryggvi Gunnarsson varpaði kúlunni 10,81 x/2 stiku. II. Sigurður Greipsson 10,03 sl. og III. Guðm. Kr. Guðmunds- son, 9,93 st. Langstökk, með atrennn. (Sjö kepp- endur). I. Tryggvi Gunnarsson, slökk

x

Þróttur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.