Þróttur - 01.12.1921, Blaðsíða 22
98
Þ R Ó T T U R
í Bolungarvík er ungmennafélag, sem
að beitir sér aðallega fyrir sundlaugar-
byggingu, er það mjög fagurt áforin,
því óvíða mun vera eins mikil þörf á
að sjómenn kunni að synda eins og þar.
Áður voru íþrótlir töluvert iðkaðar i
Bolungarvík, en iítið nú á síðuslu
árum.
Á ísafirði er mjög dauft íþróttalíf,
miðað við fólksfjölda kaupstaðarins, er
þelta mjög skaðlegt, þar sem líka þrír
eða fjórir leikfimiskennarar eru búsetlir
þar. llngmennafélag, seni búið var að
starfa þarna í mörg ár, sálaðist i fyrra
vor, og er það að eins endurtekning á
reynslunni, að slíkur félagsskapur þrífst
mjqg illa í slórum kaupstöðum. 1 vetur
gekst þó félag, sem »Árvakur« heitir,
fyrir því, að piltar, sem voru félagsmenn
hans, fengu einn eða tvo leikfimistíma
í viku. íslenzk glíina hefir verið í niður-
lægingu á ísafirði í mörg ár, og veldur
því meslu, að beztu glímumennirnir,
sem voru þar, eru fiuttir burtu. Sú í-
þrótt, sem er bezt lifandi hjá ísfirðing-
um er sundið. í Reykjanesi, inn í ísa-
fjarðardjúpi, liefir öðru hvoru verið
sundkensla síðan 1890, í volgum laug-
um sem þar eru. Ur bæjarsjóði ísa-
fjarðarkaupstaðar og sýslusjóði Norður-
ísafjarðarsýslu, hefir ávalt verið veittur
riflegur styrkur til sundkenslunnar.
í vor gekst ungmennafélagið »Huld«
í Nauleyrarhreppi fyrir kenslunni, og
lærði um 40 manns að synda þar. Aðrar
íþróttir mun þelta félag ekki hafa haft
með höndum. J. P.
Skábþrantin í síðasta blaði hefir því
miður breytst í prentun. Staðan er
þannig rétt:
Hvítt: Rgö, Hbl, Bc4, Bg5 og Rc*2.
Svart: Kh8, pa6 og c6. Hvítt leikur
og þvingar svait til að máta sig í 13. leik.
Munið að senda skáklausnirnar fyrir
áramót.
jþróttafréttir.
Hlð opna bréf stjórnar í. S í-
til sambandsfélaganna, sem birt er
hér á fremstu síðu í blaðinu, eru fe*
lagsstjórnirnar beðnar að taka rækilega
til athugunar. Rað hefir því miður viljað
hrenna við að ársskýrslur félaganna
hafa ekki komið í tæka tíð til Sain-
bandsins; og er það þó létt verk og
vandalítið að útfylla árskýrslu-eiðublöð-
in, sem félögunum eru send árlega. Fe-
lagsstjórnirnar verða að gera sér það
ljóst að aldrei fæst heildar-yfirlit yfi'
íþróttastarfsemi vora, ef þau vanrækja
þessar skýrslugerðir.
Iþróttalíf á Orænlnndi.
Við kennaraskólann í Godthaab er
meðal annara námsgreina þar kendur
»kajak«-róður. Standa Grænlendingar að
þessu leyti framar íslendingum. Þeir
kenna þjóðaríþrótt sína við skóla, en
það gerum við ekki, og það þólt stjórn
í. S. í. hafi fyrir tæpum tveimur áruin
skorað á skóla og fræðslunefndir að
taka það til athugunar.
Skfðafélag Siglufjnrðar
hefir gefið vandaðan bikar tii verð-
launa bezta skíðamanni á íslandi. Bik-
arinn er nefndur skíðabikar íslands og
skal keppa um hann árlega. Ölium fé-
lögum innan í. S. í. er heimil þátttaka.
í snndsambandinu þýska
eru nú 535 sundfélög, og er félagatala
þeirra 130480. — Ekki er að furða þó
þar séu margir snjallir sundmenn.
íþróttafélag Roykjavíkur
hefir gefið 500 kr. í Ólympíusjóð. Er
það raustnarleg gjöf og vonandi að
önnur félög fari að dæmi í. R., og heiti
á Olympiusjóðinn, þegar vel gengur.