Þróttur - 01.12.1921, Side 15

Þróttur - 01.12.1921, Side 15
Þróttur <)1 slulta ræðu og þakkaði konungi fyrir þá velvild sem hann hefði sýnt í. S. í. ineð því að gerast verndari þess, og enn- fremur fyrir þá sæmd sem hann hefði sýnt oss með því að koma á þessa íþróllasýningu. Pegar skrúðgöngunni var •okið hófst fimleikasýning kvennaflokks I. R. og tókst vel að vanda. Þá var fimleikasýning karlaflokks í. R., en rétt áður en henni var lokið komu Alafoss- hlaupararnir að markinu. Þeir höfðu lagt á stað kl. 2,40 frá klæðaverksmiðj- onni Alafoss í Mosfellsveit, sem er um 1<S rastir frá íþróttavellinum. Keppend- ur voru sjö, fjórir frá Gíímufél. Armann og þrír úr I. R. — Þegar eftir að þeir lögðu á stað tók Þorkell Sigurðsson forystuna og fór geyst, nærstur honum 'Tar Ingimar Jónsson, þá Agúsl Ólafs- son og komu þeir í þessari röð að markinu. Hjólreiðamaður fylgdi hverj- Oni keppenda, en tvær bifreiðar hópn- um. Úrslit hlaupsins urðu þessi: I. Þor- kell Sigurðsson (úr Armann) á 1 kl. stiind 6 mín. 52s/io sek. II. Ingimar •Jónsson (úr Á.) á 1 kl. st. 10 mín. 42 %o sek. III. Ágúsl Ólafsson (úr í. R) á 1 kl. st. 12 min 32*ho sek. IV. Ámund- 'iuis Jónsson (úr í. R) á 1 kl. st. 22 niúi. 10*1 io sek. og V. Sigurbjörn Árna- s°n (úr Á.) á 1 kl. st. 24 mín. 50*jio sck. Fleiri komu ekki að markinu. Er þelta lengsta hlaup, sem hér hefir háð _verið og gleðilegt að það skildi fakast svona vel. Kept var um bikar þann sem hér er mynd af, og þeir hræðurnir Einar og Siguijón Péturssynir hafa gefið lil verðlauna á hlaupainóti þessu, sem heyja skal árlega. Að hlaup- inu loknu afhenli verndar í. S. f. sigur- ^egurunum verðlaunin. — Þá hófst knatlspyrna á milli Fram °g úrvalsliðs úr K. R. og Viking, og var það síðasti liðurinn á dagsskránni. Eeikurinn slóð yfir í klukkustund, og fór svo að Fram bar sigur með 2 mörk- uni á móti 0, — Þessar íþróttasýningar í. S. í. fyrir konungsfólkið fóru vel úr hendi og voru félögunum til sóma. Sambandsfélög í. S. í. Þeim fjölgar óðum; menn eru altaf að sjá betur og betur hve nauðsynlegt það er, að öll þau félög, sem hafa íþróltir á stefnu- skrá sinni séu i sambandi og samvinnu. Þessi félög hafa nýlega bæst í hópinn. Skíðafélag Siglufjarðar. Félagalala 82. Formaður Sophus Árnason. — íþrólta- félagið Þór á Oddeyri. Félagalala 51. Formaður Garðar Jónsson. Knattspyrnu- félagið »Hörður« á ísafirði. Félagalala 30. Formaður Þórhallur Leósson. Ivnatt- spyrnufél. ísafjarðar á ísafirði. Félaga- tala 44. Formaður Brynjólfur Jóhannes- son. Knattspýrnufél. »Týr« Vestmanna- eyjum. Félagatala 48. Formaður Gunnar Ólafsson. U. M. F. »Árvakur« á ísa- firði. Félagatala 85. Formaður Elías Halldórsson. Skotfélag Reykjavíkur, Rvík. Félagatala 100. Formaður Þorst. Sch. Thorsteinsson. Knattspyrnufélagið »Þrándur«, Rvík. Félagatala 45. For- maður Bjarni Magnússon. U. M. F. Eyrarbakka á Eyrarbakka. Félagatala 57. Formaður Aðalsleinn Sigmundsson, og U. M. F. Dagsbrún, Höfðahverfi. (Skýrsla ókomin). Eru sambandsfélög nú orðin 95 að tölu. Nærstn ólympíuleikar. Frá aðalsktifslofu Ólympiunefndar- innar í París, berast þær fregnir, að nærstu leikir verði haldnir í þrennu lagi. Vetraríþróttirnar verða í janúar eða febrúar. Knatlleikarnir verði í april eða maí, en aðalleikarnir frá 3 til 17 júlí. Frakkar hafa mikin viðbúnað fyrir al- þjóðamót þetta, og er bæði ríkisstjórnin og bæjarstjórn Parísarborgar mjög sam- henlar um að styðja þelta mál með fjárframlögum, og á annað hátt. —

x

Þróttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.