Þróttur - 01.12.1921, Síða 19

Þróttur - 01.12.1921, Síða 19
Þ R Ó T T U R 95 Ólympíunefnd í. S. í. Eins og gelið er um á öðrum stað i ^laðinu liefir sljórn í. S. í. skipað ^lympíunefnd, tii að undirbna þáttöku vora á nærstu Olympíuleiki. Þessir menn eiga sæti í nefndinni: ^Qdr. J. Bertelsen, Ágúst Jóhannesson, ^en. G. Waage, Björn Ólafsson, Guðrn; Ei'. Guðmundsson, Helgi Jónasson, ^agnús Kjaran, Magnús Slefánsson, Ól- afur Sveinsson, Pétur Sigurðsson, Sigur- ]°n Pétursson og Sleindór Björnsson ffá Gröf. Nefndin hefir skift með sér störfum; kosið framkvæmdastjórn, blaðanefnd, ‘þróttanefnd og fjárhagsnefnd. Pess er fastlega vænst að allir íþróttamenn og l)au félög sem hafa íþróttir á stefnu- ski'á sinni, styðji nefndina í slaríi hennar. Þar sem nefndarskipun þessi hefir Ví>kið nokkuð umtal hér í bænum, sér- slaklega meðal knattspyrnumanna, birt- um vér liér erindisbréf nefndarinnar, Syo menn sjái hvert stefnt er með nefndarskipun þessari. Erindisbréfið er 1 6 greinum og hljóðar svo: E gr. Nefnd þessi er skipuð af stjórn ^ S. í. 29. sept. 1921 og er nafn hennar »Ó]ympíunefnd í. S. í.« 2. gr. Starfssvið nefndarinnar er að ^odirhúa þátltöku vora á næstu Ólym- piuleiki, sem heyja á í París 1924. — Skal nefndin hafa á hendi allan UndirbúnÍDg þessa máls og hafa óbundn- ar hendur innan vébanda, laga og reglna l S. í. 3. gr. Aðaláherzlu her nefndinni að fe§gja á það, að safna nægilegu fé til fararinnar og leitast vift að ná í sem ffesta og hesta íþróttamenn og iþrótta- ^iannaefni hvar á landinu sem er, og sja þeim fyrir góðri tilsögn og æfingum, svo að úr nægu verði að velja þegar til þess kæmi að senda menn á Ólyrn- píuleikana. 4. gr. Nefndinni ber að senda sljórn í. S. í. skýrslu um starf sitt á hverjum ársfiórðungi, og ársskvrslu fyrir hvern aðalfund í. S. í. 5. gr. Gangi einhver maður úr nefnd- inni af hinum 12 skipuðu nefndarmönn- um, þá skipar stjórn í. S. I. mann í hans stað, sömuleiðis má fjölga nefndar- mönnum ef sljórn í. S. í. telur þörf á því, hvorttveggja í samráði við nefnd- ina. 6. gr. Nefndin skal gera lillögur um hvaða íþrótlamenn skuli senda á Olym- píuleikana 1924, og í hvaða i{)róltum þeir eigi að keppa. Skulu þessar tillög- ur komnar stjórn í. S. í. í hendur fyrir 1. jan. 1924, til úrskurðar. Eins og menn sjá á erindisbréfinu, þá hefir nefndin ekki endanlegt úrskurðar- vald um það hverjir verða sendir á þessa leiki, eins og sumir iþróllamenn hafa haldið fram. Engir þeirra þurfa þess vegna að kvíða því, að »rétlur þeirra verði fyrir borð borinn« því að hér er öllum íþróttamönnum gert jafn hátl undir höfði, og stefnt að því, að við veiðum sem bezt undirbúnir, þegar að því kemur að senda menn á næstu Ólympíuleiki. Virðist því ekki ástæða til, að deila um það frekar eti fara nú að vinna að þessurn málum; en það gera íþróltamenn bezl með því að fara nú þegar að æfa sig með því markmiði, að verða þjóð vorri til gagns og sóma á þessum næstu alþjóðaleikunt. Week-ciid er nafn á dönsku iþróttablaði, sem kemur út vikulega, í Iok vikunnar, eins og nafnið bendir á. Hinn þekti íþróttafröm- uður Arne Hojme er ritsljóri þess. Blaðið ræðir um fleslar íþróttir og er fjölbreytt af íþróttamyndum. Pað kostar 1G kr. árgangur- inn, og má panta það bjá Ben. G. Waage. (Pósthólf nr. 5-16, Uvík).

x

Þróttur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þróttur
https://timarit.is/publication/1299

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.