Þróttur - 01.12.1921, Síða 24
100
P R Ö T T U R
áfram eins og tvö þau síðustu hafa ver-
ið. Hvassviðri má ekki vera, en þó má
mikið við því sjá með góðri girðingu
um völlinn. En svo er rigningin, og þar
er ekki eins auðveU að »setja undir
lekann« meðan ekki eru meiri efni fyrir
hendi en nú eru. Regnið gerir alómögu-
legt að leika L-T., því að þótt leikend-
urnir þyldu að standa úti í regni, þá
gerir það hnettina þunga, og þar með
óáreiðanlega, og brátt ónýta, auk þess
sem það gereyðileggur knattdrepuna á
stuttum tíma. Það verður aldrei nógsam-
lega brýnt fyrir fólki að láta knattdrep-
una aldrei vökna, því að þegar streng-
irnir þorna aftur hrökkva þeir, ef ekki
fyr þá síðar, og áhöldin eru altaf dýr
ef þau eru góð. En þar með sé ekki
sagt að þau séu góð þótt þau séu dýr
og ætti því enginn að kaupa þau án
þess, að einhver líti á þau fyrst sem
vit hefir á. í sambandi við þetta
má minnast á aðra varúðarreglu, sem
mér er kunnugt um að mjög hefir verið
vanrækt af hlutaðeigendum síðasta sum-
ar, og hún er sú, að hafa altaf knattdrep-
urnar í pressu milli þess að þær eru
notaðar. Sé það ekki gert fer aldrei hjá
þvi að þau vindist og gefi því knöttinn
skakt frá sér, en slíkt er óviðkunnanlegt
fyrir þá sem ekki er sama um í hvaða
átt hann fer.
Þá er að minnast á annan ókost og
hefir þegar verið minst á hann að
nokkru leyti. Hann er sá, að kostnað-
urinn er töluverður, sérstaklega í byrj-
un, í hverju þvi félagi sem eingöngu
ætlar ser að iðka L-T. En þá kemur
einmilt að atriði, sem mjög er vert að
ihuga í þessu sambandi.
Hér í bænum eru fyrir mörg iþrótta-
félög, fyrst og fremst knattspyrnufélögin,
svo og í. R., Ármann o. fl. (Skautafé-
lagið þori eg varla að nefna, því að
það fær altaf rigningu þegar eitthvað
skal aðhafast utan veggja). Öll þessi
félög hafa þegar meðlimi sína sarnan
Með þessu blaði lœt eg af ritstjórn þe*s
og vil hérmeð nota tœkifœrið að þakka
hinum mörgu iþróitamönnum og íþrótta-
vinum, sem hafa stutt mig i þessu áhuga-
starfi mínu. — Jafnframl óska eg blað-
inu allra heilla i framtiðinni og vona að
allir þeir sem íþröttum unna stgrki það
framvegis.
Reijkjavik, 1 desember dag 1921.
Ben. G. Waage.
safnaða til æfinga svo að miklu hægra
er að koma yfir þá lögum heldur en
yrði í hverju nýju félagi. Þessi félög
munu og flest eiga töluvert í sjóði, og
og þótt svo væri ei, þá eiga a. m. k-
knattspyrnufélögin ólíkt hægra aðstöðu
hvað snertir að útvega sér völl, en önn-
ur félög. Enn er það að flest félögin
hafa meðal meðlima sinna kornungf
fólk og það fólk er einmitt framtíðar-
von íþróttarinnar, því enginn þarf að
ætla að neinn þeirra sem nú þegar er
farinn að iðka íþróttina geti orðið meira
en meðal L-T-leikari.
En til hvers er þá verið að stofna
félagið? Einhver verður að byrja og
það sem fyrst, ef ekki til annars þá til
þess að vekja athygli á málinu og áhuga
ef verða mætti, jafnvel þótt beinn
iþróttalegur árangur verði minni. En
hann er undir því kominn, að aðrir
komi á eftir og hjálpi þeim sem fyr*r
eru með áhuga til að halda því áfram
sem byrjað hefir verið á, þá kemur ár-
angurinn af sjálfu sér, áður langt um
liður.
Páll Skúlason.
Hefirðu, lesari góður, greitt 'Próttt
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Benedikt G. IVaage.
Prentsmiöjan Gutenberg.