Jökull - 01.12.2003, Blaðsíða 67
Society report
Jöklarannsóknafélag Íslands
Skýrsla stjórnar á aðalfundi 25. febrúar 2003
SKIPAN STJÓRNAR OG NEFNDA
Aðalfundur Jöklarannsóknafélags Íslands fyrir 2002
var haldinn í Norræna Húsinu þann 26. febrúar. Fund-
arstjóri var Hjálmar R. Bárðarson og Guttormur Sig-
bjarnarson var fundarritari. Fyrsti stjórnarfundur var
haldinn 4. mars og skipti stjórnin þá með sér verkum
og dregið var um röð manna í varastjórn. Stjórnin er
þannig skipuð:
Aðalstjórn:
Magnús Tumi Guðmundsson, formaður,
kosinn 2001 til þriggja ára.
Steinunn S. Jakobsdóttir, varaformaður,
kosin 2001 til tveggja ára.
Garðar Briem, gjaldkeri,
kosinn 2002 til tveggja ára.
Halldór Gíslason, ritari,
kosinn 2002 til tveggja ára.
Ástvaldur Guðmundsson, meðstjórnandi,
kosin 2001 til tveggja ára.
Varastjórn:
Bryndís Brandsdóttir, fyrsti varamaður,
kosin 2002 til tveggja ára.
Hannes Haraldsson, annar varamaður,
kosinn 2002 til tveggja ára.
Sverrir Ó. Elefsen, þriðji varamaður,
kosinn 2001 til tveggja ára.
Guðmundur Þórðarson, fjórði varamaður,
kosinn 2001 til tveggja ára.
Valnefnd: Sveinbjörn Björnsson kosinn 2000 til
þriggja ára, Gunnar Guðmundsson kosinn 2001 til
þriggja ára og Stefán Bjarnason kosinn 2002 til
þriggja ára.
Stjórn hélt fundi fyrsta mánudag í hverjum mán-
uði yfir veturinn en fundahlé var júní-ágúst. Fund-
ir voru að jafnaði haldnir í risinu Mörkinni 6. Nóv-
emberfundurinn var þó haldinn um helgi í Skotinu
í Grafningi en þar á gjaldkeri félagsins innhlaup.
Sverrir Elefsen sá um útgáfu fréttabréfsins. Halldór
Gíslason ritari hélt fundargerðir, Garðar Briem gjald-
keri annaðist fjármál, m.a. innheimtu félagsgjalda en
Steinunn Jakobsdóttir sá um erlenda áskrift Jökuls.
Formenn nefnda félagsins voru kosnir á fyrsta
stjórnarfundi eftir aðalfund. Nefndir voru þannig
skipaðar:
Rannsóknanefnd: Magnús Tumi Guðmundsson
formaður, Bryndís Brandsdóttir, Finnur Pálsson, Jón
Sveinsson og Þorsteinn Þorsteinsson Raunvísinda-
stofnun, Oddur Sigurðsson og Sverrir Elefsen Orku-
stofnun, Hannes Haraldsson Landsvirkjun og Stein-
unn Jakobsdóttir Veðurstofunni.
Jökull: Fagritstjórar Jökuls voru Bryndís Brandsdóttir
og Áslaug Geirsdóttir en Halldór Gíslason yngri rit-
stjóri íslensks efnis. Bryndís sá um umbrot og útgáfu.
Skálanefnd: Sverrir Hilmarsson formaður, Aðalsteinn
Svavarsson (formaður í fjarveru Sverris á Suður-
skautslandinu í lok ársins), Alexander Ingimars-
son, Ástvaldur Guðmundsson, Guðmundur Þórðar-
son, Leifur Þorvaldsson, Stefán Bjarnason og Vil-
hjálmur Kjartansson.
Bílanefnd: Árni Páll Árnason, formaður, Garðar Bri-
em, Halldór Gíslason yngri, Magnús Þór Karlsson og
Sigurður Vignisson.
Ferðanefnd vorferðar: Árni Páll Árnason, Garð-
ar Briem, Hannes Haraldsson, Magnús Tumi Guð-
mundsson, Sjöfn Sigsteinsdóttir og Þorsteinn Jónsson.
Árshátíðarnefnd: Jóna Bryndís Guðbrandsdóttir, for-
maður, Freyr Jónsson, Grímur Sigurjónsson, Leifur
Þorvaldsson, Sjöfn Sigsteinsdóttir og Sverrir Gísla-
son.
Endurskoðendur félagsins voru Elías B. Elíasson og
Árni Kjartansson. Alexander Ingimarsson sá um fé-
lagaskrá og var að auki umsjónarmaður húsnæðis í
Mörkinni 6.
JÖKULL No. 53, 2003 65