Jökull - 01.12.2003, Blaðsíða 71
Jöklarannsóknafélag Íslands
gott fyrir fjárhag félagsins og hefur stjórnin hrund-
ið af stað átaki við að safna netföngum félagsmanna
svo hægt verði að senda fréttabréfið rafrænt. Vonandi
verður hægt að koma þessu í kring í vor en þeir félags-
menn sem ekki hafa tölvupóst munu að sjálfsögðu fá
fréttabréfið áfram í venjulegum pósti.
HAUSTFERÐ Í JÖKULHEIMA
Ein af sterkum hefðum í Jöklarannsóknafélaginu er
skemmtiferð í Jökulheima fyrir miðjan september.
Ferðin hefur átt undir högg að sækja síðustu árin
en núna tókst hún með ágætum. Farið var helgina
13.-15. september. Ekki var leigð rúta heldur fóru
menn á eigin bílum, alls 27 manns á 9 jeppum. Þessi
ferðamáti líkaði vel enda hagkvæmur og sveigjanleg-
ur. Hópurinn fór í Heljargjá, bæði sunnan og norðan
Gjáfjalla, og á laugardagskvöldið var snæddur vænn
urriði úr Tekjulindinni, og hefðu sjálfsagt einhverjum
þótt tíðindi að fiskur væri hafður til matar í haustferð.
Ósagt skal látið um hve gjöfult veiðivatn Tekjulind-
in en óneitanlega verður að lofa framtak þeirra félaga
sem þar slepptu seiðum fyrir margt löngu. Ekki hefur
verið gefinn út kvóti í lindinni en málið er í athugun
í félaginu - það er aldrei að vita nema þar sé að finna
fleiri urriða.
SKÁLAMÁL
Í skálamálum ber að sjálfsögðu hæst bygging nýs
skála og flutningur hans í Esjufjöll síðastliðið vor.
Húsið var smíðað í aðstöðu trésmiðjunnar Brims við
Reykjavíkurveg 64 í Hafnarfirði. Byrjað var á verkinu
í október 2001, húsið var fokhelt í nóvember en inn-
réttingum og klæðningu var ekki lokið fyrr en í apríl.
Illa horfði með færi til flutninganna en í lok apríl kóln-
aði og fyrstu helgina í maí var skálinn fluttur á sinn
stað í Skálabjörgum í Esjufjöllum. Húsið er hið veg-
legasta, 24 m2 að stærð með svefnplássi fyrir 12, rúm-
góðu anddyri, raflýsingu frá sólarrafhlöðu og gasi til
eldunar. Skálanefndin hafði veg og vanda af verkinu
og var smíðin öll unnin af sjálfboðaliðum félagsins.
Hjálparsveit Skáta í Reykjavík lagði til snjótroðara
sinn og Vegagerðin styrkti flutningana með fjárfram-
lagi. Í tengslum við flutningana eignaðist félagið sleða
mikinn, fleti á fjórum skíðum sem viðbúið er að muni
koma að góðum notum í framtíðinni, t.d. ef flytja þarf
gáma og aðra þungavöru upp á jökla. Landsvirkjun og
Raunvísindastofnun tóku þátt í kostnaði við gerð sleð-
ans. Síðastliðið haust stóð Skálanefndin fyrir göngu-
ferð í Esjufjöll þar sem hlaðið var að nýja húsinu,
strekkt á stögum og gengið betur frá ankerum.
Auk Esjufjallaskála var skálunum sinnt að venju
og gas og olía flutt í Jökulheima og Grímsfjall. Þök
á skálum í Jökulheimum voru máluð rækilega í júlí.
Mikil umferð ferðamanna var í Jökulheima og á
Grímsfjall en minni í önnur hús. Gistinætur á Gríms-
fjalli voru 673, í Jökulheimum 506, í Esjufjöllum 21
og skráðar nætur í litlu húsunum voru 40.
Á árinu voru gerðir koparskildir fyrir alla skála
félagsins með nöfnum þeirra, byggingarári og merki
félagsins. Skálanefndin vinnur nú að uppsetningu
skjaldanna en þeim er komið fyrir þegar menn eiga
leið um svæðin. Vonast er til að merki verði komin á
alla skála næsta sumar.
Ólafur W. Nielsen sýnir samferðafólki þann stóra úr
Tekjulindinni. – A trout caught in a lake by Jökul-
heimar. Ljósmynd/Photo. Bryndís Brandsdóttir.
BÍLAMÁL
Eftir sex ára dygga þjónustu í erfiðum baslferðum var
ljóst að lúi sótti að Dodge bíl félagsins. Því varð að
ráði í haust að festa kaup á öðrum bíl svipaðrar gerð-
ar. Keyptur var fimm ára gamall Ford F-350 bíll af
Björgunarsveitinni í Hafnarfirði. Er hann með tvö-
földu húsi og löngum palli. Bílanefndin lagfærði eitt
og annað sem á þurfti að halda í nýja bílnum og hyggst
JÖKULL No. 53, 2003 69