Jökull - 01.12.2003, Blaðsíða 82
Skýringar með ársreikningi 2002
1. Hér er um að ræða félagsgjöld kr. 3.400,- pr. fé-
laga. Skil hafa verið sæmileg. Í síðustu viku var
51 gíróseðill af 431 ógreiddur.
2. Framlag Umhverf isráðuneytisins hefur farið
lækkandi á undanförnum árum og er komið nið-
ur í kr. 50.000,- þrátt fyrir að nokkrir stjórnar-
menn hafi lagt nokkuð á sig til þess að fá fram-
lagið hækkað.
3. Framlag Vegagerðarinnar, kr. 350.000,- er
styrkur vegna flutnings á nýja skálanum í Esju-
fjöll.
4. Hér er um að ræða notkun Raunvísindastofnun-
ar á Dodda og notkun vegna borverkefna Þor-
steins Þorsteinssonar.
5. Ákveðið var að búa til f leti til f lutnings nýja
Esjufjallaskálans. Það tókst að fá framlög frá
Raunvísindastofnun og Landsvirkjun til verks-
ins en félagar lögðu fram talsverða vinnu í sam-
bandi við þetta verkefni undir forustu Guð-
mundar Þórðarsonar.
6. Hér er um að ræða almennan reksturskostnað
húsanna á árinu.
7. Hér er aðallega um að ræða kostnað vegna
reksturs Dodda. Nýr bíll var keyptur á árinu
og þurfti að gera vissar lagfæringar á honum.
Hefur hluti þess kostnaðar verið borinn af selj-
endum.
8. Þessi tala er svo há sem raun ber vitni af þeirri
ástæðu að verðmæti Dodda var mjög hátt í
bókhaldinu, þar sem hann hafði lítið verið af-
skrifaður á liðnum árum. Bíllinn seldist á kr.
700.000,- sem verður að telja mjög eðlilegt verð
miðað við markaðsaðstæður.
9. Hér er um að ræða brunabótamat skálanna sem
er hefðbundin viðmiðun í bókhaldinu. Útlagður
byggingarkostnaður vegna skálans í Esjufjöll-
um er ca. kr. 1.930.000,- sem reyndar skiptist á
tvö ár. Mestmegnis var um kostnað vegna efnis-
kaupa að ræða því nánast öll vinna var unn-
in í sjálfboðavinnu. Húsasmiðjan veitti veg-
legan styrk sem fólgin var í því að gefa alla
klæðningu á skálann samtals að verðmæti kr.
567.751,-. Tryggingabætur eru allar greiddar,
alls kr. 1.531.537,-.
10. Hér gilda sérstakar, mjög flóknar afskriftaregl-
ur. Nánast útilokað er að segja til um hvert
raunvirði birgðanna er.
Nýi Fordbíll félagsins í Grímsvötnum. – The new Glaciological Society vehicle (Ford) in Grímsvötn.
Ljósm./Photo. Halldór Gíslason, June 2003.
80 JÖKULL No. 53, 2003