Stjarnan - 01.04.1922, Blaðsíða 6
54
STJARNAN
Hin mesta nauðsyn vorra tíma.
Arthur G. Daniels.
Fyrir munri spámannsins Esaja send-
ir Drottinn lýS sínum svohljóðandi á-
minningu: “Vakna þú, vakna þú, íklœS
þig styrkleik þínum. Zíon, klæð þig
skartklæðum þínum, Jerúsalem, þú hin
heilaga borg. Því að enginn óumskorinn
eða óhreinn skal framar inn í þig ganga.
Hrist af þér rykið, rís upp og sest í sæti
þitt, Jerúsalem. Losa þú af þér háls-
fjötra þína, þii hin hertekna dóttir, Sí-
on.”—Es. 51: 1, 2.
Áskorun þessi .hvetur lýö Drottins til
aS vakna af dvala, að hann fái noti5
þeirrar andlegu reynslu, er hann svo
tilfinnanlega þarfnast. Hún vekur hann
til enn þá innilegra andlegs lífs. í
svefninum lifir maSur, en aS eins aS
nokkru leyti, sá sem sefur veit ekki af
sér, er skilningslaus og eftirtektarlaus.
•Hann veit ekkert um hlutina í kringum
sig eSa sitt eigiS ásigkomulag. Hann
sér ekki hættuna og áttar sig heldur
ekki á ábyrgö þeirri og skyldustörfum
er á honum hvíla. Sá sem sefur, getur
ekki látiS þjónustu sína í té.
Þess vegna er áskorunin um að vakna,
áskorun um aS hrista af sér allan sljóf-
leik og höndla lífið til fulls. Drottinn
vill, aö lýöur hans heyri, sjái og leggi
sér alvarlega á hjarta þá hluti er heyra
Guösríki til. Hann vill, aö hann skilji
til fulls ábyrgö sína og taki þátt í heil-
l'.uga, öflugri, notagóöri þjónustu hon-
um til handa. Ald'rei nokkru sinni áður
hefir veriö eins mikil þörf á virkilega
vakandi söfnuöi eins og einmitt nú.
Aldrei hefir eins mikilvægt atriði legiö
á bak viö áskorunina til safnaðarins
um að vakna, eins og nú. Ó, vöknum þá
og rísum up.
;Þetta kall til meðvitundar, til skiln-
ings, til öflugrar starfsemi, er mjög
merkilegt. Það kallar oss að mikilli,
gleðilegri, innilegri, persónulegri reynslu.
Það kallar oss að sigursælu lífi. At-
huga hið næsta:
“Eosa þú af þér hálsfjötra þína, þú
hin hertekna, dóttir Síon.” Það er.
iausn frá fjötrum syndarinnar, það er
frelsi frá hinu erfiða valdi hins illa.
Það á við, að sigra heiminn, holdið og
Satan. Þetta, alt þetta, er hlutskifti
hvers og eins, er meðtekur Krist sem
Drottin og frelsara. Jesús segir: “Sá.
sem synd drýgir, er þræll syndarinnar.”
Og hann bætir við: “Ef því sonurinn
gjörir yður frjálsa, munduð þér þá verða
sannarlega frjálsir.” ýjóh. 8, 34, 36J.
Alveg í samræmi við staðhæfingu
þessa eru orð postulans Páls: “Svo er
þá nú engin fyrird'æming fyrir þá, sem
tilheyra Kristi Jesú, sem ekki ganga
eftir holdinu heldur ' eftir andanum.
Því að lögmál lífsins anda hefir fyr-
ir samfélagið við Krist Jesúm frelsað
mig frá lögmáli syndarinnar og dauð-
ans.” Við þennan dýrmæta sannleika
bætir svo Páll þessum orðum: “Eátið
því ekki syndina ríkja í dauðlegum lík-
ama yðar., svo að þér hlýðnist girndum
hans” ýRóm. 8:1, 2 6, 12J.
Öll þessi sannleiksorð eru greinileg
og óhrekjandi. Þau meina alt, er þau
segja, og eru það fyrir oss. Höfum
vér kjark til að veita þeim viðtöku og