Ný Dögun - 01.11.1997, Page 25
TNYDÖGUNi
Ingibjörg Jóhannsdóttir kennari tæpum níu
árum eftir fráfall eiginmanns síns:
g verð aldrei
aftur eins"
Ingibjörg Jóhannsdóttir var aðeins 25 ára þegar hún missti eiginmann sinn Eyjólf
Pórsson úr krabbameini. Eftir stóð Ingibjörg með eins og hálfs árs gamlan son þeirra
og ófrísk að öðru barni þeirra. Ingibjörg deilir reynslu sinni með okkur.
„Við vorum bæði ung, þegar við
kynntumst árið 1982, ég 19 og hann
21 árs. Við trúlofuðum okkur eftir
að hafa verið saman í hálft ár og
fórum svo þessa hefðbundnu leið
hér á landi. Við bjuggum fyrst hjá
foreldrum Eyjólfs en fluttum það-
an í leiguhúsnæði. Við höfðum
bæði tekið okkur frí frá námi, en
tókum upp þráðinn aftur og lukum
okkar fögum, hann bifvélavirkjun
og ég stúdentsprófi. Við vorum
eins og ungt fólk á þessum tíma,
reyndum að spara og fengum til
dæmis að búa inni á systur minni í
heilt ár meðan við vorum að safna
peningum til fasteignakaupa. Við
réðumst svo í íbúðakaup árið 1985
og giftum okkur ári síðar. í apríl
1987 fæddist svo hann Jóhann
okkar.
Það má því segja að okkar til-
hugalíf hafi verið mjög hefðbund-
ið. Tókum þetta svona stig af stigi.
Við vorum því búin að koma okk-
ur allvel fyrir og framtíðin blasti
við okkur, þegar erfiðleikarnir
steðjuðu að. Aðeins hálfu ári eftir
fæðingu litla drengsins okkar,
greindist Eyjólfur með krabbamein
í höfði.
Þetta átti sér þó nokkurn að-
draganda, því nokkru eftir að við
25