Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Síða 8
8 20. júlí 2018FRÉTTIR
Alltaf sígild
alltaf ljúf
Lækjarbrekka
Bankastræti 2
101 RVK
Sími 551 4430
ÞJÓÐÞEKKTIR ÍSLENDINGAR DRÝGJA TEKJURNAR Á AIRBNB
n Landsliðsmenn, prófessorar, tónlistarmenn og fjárfestar n Sumir með leyfi en aðrir ekki
F
jölmargir þekktir Ís-
lendingar drýgja tekjurn-
ar með því að leigja út
íbúðir sínar í gegnum
Airbnb. Þessar upplýsingar
má nálgast á heimasíðu Sýslu-
mannsins á höfuðborgarsvæð-
inu. Áður hefur verið greint frá
því að þingmennirnir Ágúst
Ólafur Ágústsson, þingmaður
Samfylkingarinnar, Helgi
Hrafn Gunnarsson, þing-
maður Pírata, og Þorsteinn
Víglundsson, þingmaður Við-
reisnar, stæðu í slíkri útleigu.
Að auki er eiginkona Guðlaugs
Þórs Þórðarsonar utanríkis-
ráðherra skráð fyrir íbúð sem
er nýtt með þessum hætti.
En það eru fleiri þjóðþekktir
Íslendingar sem drýgja
tekjurnar með því að leigja
út íbúðir sínar. Í þeim hópi
eru landsliðsmennirnir Rúrik
Gíslason og Alfreð Finnboga-
son, prófessorinn Hannes
Hólmsteinn Gissurar son,
virkjunarsinninn Kristinn
H. Gunnarsson, fjárfestirinn
Hjálmar Gíslason, uppi-
standarinn og lögfræðingur-
inn Bergur Ebbi Benedikts-
son og tónlistarmaðurinn
Högni Egilsson, svo einhverj-
ir séu nefndir. Þessir einstak-
lingar hafa allir sótt um leyfi
fyrir heimagistingu hjá Sýslu-
manni.
Það gildir ekki um alla
þekkta Íslendinga en til dæm-
is má nefna að söngdívan Hera
Björk Þórhallsdóttir er afar virk
á síðunni án þess að hafa sótt
um leyfi yfirvalda. n
Íbúð Baldurs og Felix
í Starhaga. Dóttir
Baldurs, Álfrún
Perla, sér um
Airbnb-reikninginn
og halda gestir
ekki vatni yfir
gestrisni hennar
og liðlegheitum.
Nóttin kostar 116
Bandaríkjadali og er
pláss fyrir tvo gesti.
Hannes Hólmsteinn leigir út tvær eignir við Hringbraut. Fyrir þá stærri rukkar hann 145
Bandaríkjadali fyrir nóttina og 80 fyrir þá minni. Hannes fær frábæra dóma sem gest-
gjafi. Þægilegt sé að eiga samskipti við hann og sagt að hann leggi sig allan fram um að
gera dvöl gesta sem ánægjulegasta. Þá kemur fram að maður að nafni Jóhann aðstoði
Hannes við útleigu eignanna og þykir sá ágæti maður einkar liðlegur.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is