Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Side 12
12 20. júlí 2018FRÉTTIR
N
ýverið fundust dauðir
fiskar í Varmá í Mosfellsbæ
og er orsök dauða þeirra er
óþekkt. Samkvæmt Heil
brigðiseftirliti Kjósarsvæðis verður
ekki lagt í rannsókn á orsökinni
og er hár kostnaður ástæðan fyrir
því. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
fiskadauði í Varmá vekur athygli.
Í fyrra fundust einnig dauðir
fiskar á ánni. Málið var ekki rann
sakað en líkur voru taldar á að or
sökin hefði verið klórmengun sem
barst í Varmá frá sundlaug SÍBS
og Reykjalundar. Við framkvæmd
ir við laugina í júlí það ár áttu sér
stað mistök verktaka þegar fráveita
sundlaugarinnar var tengd inn á
regnvatnsfráveitu og þar með átti
klórinn greiða leið í Varmá. Þetta
kemur fram í svörum Mosfells
bæjar við fyrirspurn DV. Í sama
svari er því haldið fram að bæjar
yfirvöld hafi brugðist strax við og
fráveita sundlaugarinnar hafi verið
tengd við skólpveitukerfi bæjarins.
Annað kemur á daginn þegar
ársskýrsla heilbrigðiseftirlitsins er
könnuð. Þar kemur í ljós að ekki
var enn búið að bæta úr mistök
unum í árslok 2017, rúmu hálfu
ári eftir að klórmengunin uppgöt
vaðist. Engar sýnistökur hafa verið
gerðar til að mæla klórmengun í
Varmá og samkvæmt heimildum
DV eru enn fremur dæmi um að
sundlaugar og heitir pottar séu
enn þá tengdir vitlaust í fráveitu
kerfi Mosfellsbæjar.
Í samtali við Þorstein Narfason,
sem hefur starfað hjá Heilbrigðis
eftirliti Mosfellsbæjar í yfir 20 ár,
kemur fram að eftirlitið hafi engar
skýringar á reiðum höndum um
hvað valdi fiskadauðanum sem
nýlega kom upp . „Það er mjög lík
legt að þetta sé efnamengun, en
það er auðvitað rándýrt að kom
ast að því og við erum lítið bætt
ari að vita það því að það er alltaf
ákveðinn möguleiki á þessari
efnamengun því að regnvatnskerfi
bæjarins liggur þarna við Varmá.“
Gífurleg saurgerlamengun
í Varmá
Regnvatnskerfi Mosfellsbæjar er
ekki hreinsað og því leka öll eitur
efni sem fara í það kerfi beint í
Varmá. Samkvæmt ársskýrslu
heilbrigðiseftirlits frá árinu 2017
kemur einnig fram að mikil saur
gerlamengun sé í Varmá sam
kvæmt sýnatöku eftirlitsins. Um
hverfismörk fyrir Varmá eru 14
saurkólígerlar í hverjum 100 milli
lítrum, en samkvæmt mælingum
fundust allt að 1.500 saurkólígerl
ar í hverjum 100 millilítrum af
vatni. Því virðist sem skólp berist
í Varmá.
Sé reglugerð umhverfisráðu
neytisins um fráveitur og skólp
skoðuð er ljóst að magn saurgerla í
ánni er langt yfir leyfilegum mörk
um. Samkvæmt flokkun vatns í
reglugerð um varnir gegn meng
un vatns eru vatnsgæði í Varmá
í næstneðsta flokknum og upp
fylla því ekki skilyrði reglugerðar
innar. Eins og kemur fram framar
í greininni voru það mistök verk
taka sem vann
að sundlaug Reykjalundar sem
gerðu það verkum að klór komst í
Varmá. Ekki eru það einu mistök
in sem verktakar hafa gert þegar
kemur að mengun í Varmá því í
lok árs 2017 barst skólpmengað
vatn í ána vegna mistaka verktaka.
Þann 28. maí síðastliðinn flæddi
einnig skólp upp um skólpbrunn
og beint í Varmá.
Umhverfissvið gagnrýnir
mælingar heilbrigðiseftirlitsins
DV hafði samband við
Jóhönnu Björgu Hansen, fram
kvæmdastjóra umhverfissviðs
Mosfellsbæjar, til að spyrjast
fyrir um mengun í Varmá og
hvort bæjaryfirvöld hafi beðið
um frekari mælingar. „Nú er það
þannig að þeir hjá heilbrigðis
eftirlitinu taka ákvarðanir um sitt
mengunareftirlit. En athugaðu
eitt, þegar þú ert með svona eina
punktmælingu sem þeir fara í eftir
mengunar tilkynningu þá ertu
ekki með neinn samanburð, þú
ert ekki með mælingar sem eru
gerðar reglulega til að bera saman
hvað er eðlilegt ástand og hvað er
ekki eðlilegt ástand. Það er eitt af
því sem við höfum óskað eftir við
heilbrigðiseftirlitið að þeir geri
reglulegar mælingar en ekki bara
eina punktmælingu þegar búið
er að tilkynna einhverja mengun.
Það er bara ekki nóg að birta bara
eina mælingu, það er bara alls
ekki nóg.“ n
Varahlutaverslun
og þjónusta
TANGARHÖFÐA 4
110 REYKJAVÍK
SÍMI 515 7200
www.osal.is
osal@osal.is
FAX 515 720
ÓSAL VARAHLUTAVERSLUN
Klór frá
sundlaug hefur
mögulega borist
í Varmá í mörg ár
n Saurgerlamengun langt yfir eðlilegum mörkum n Fiskadauði í ánni vekur athygli„Það er mjög líklegt að þetta sé efnamengun,
en það er auðvitað rándýrt að komast að því
og við erum lítið bættari að vita það því að það er
alltaf ákveðinn möguleiki á þessari efnamengun því
að regnvatnskerfi bæjarins liggur þarna við Varmá.
Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
bjartmar@dv.is
Þorsteinn Narfason
Jóhanna
Björg Hansen