Dagblaðið Vísir - DV - 20.07.2018, Qupperneq 13
KYNNING
Föst verðtilboð og kostnaði
haldið í skefjum
Hagnýting persónuupplýsinga er gífurlega
mikilvægt hagsmunamál
inn í framtíðina en á þessu
sviði geta Íslendingar
orðið fremstir á meðal
þjóða. Í dag getur nýting
persónugagna hjálpað til
við sjálfsafgreiðslu hvers
konar, hvort sem um er að
ræða heimabanka, verslanir,
innritun í flug eða alla þá
þjónustu og upplýsingar
sem við sækjum á netið,“
segir Freyr Hólm Ketilsson
hjá nýsköpunarfyrirtækinu
Dattaca Labs sem aðstoðar
lögaðila við að innleiða nýja
persónuverndarlöggjöf
á sem heppilegastan og
gagnlegastan hátt. Freyr
sér fremur tækifæri en
vandamál í nýju löggjöfinni:
„Ef þjónustuveitendur hafa
skýra sýn á hvaða þarfir og
væntingar einstaklingurinn
hefur geta þeir sniðið
þjónustu sína að hverjum
og einum. Einstaklingar
geta sannarlega lagt sitt af
mörkum, því án einstaklinga
sem prófa nýjar lausnir
og hafa vilja og getu til að
bjóða fram persónugögn sín
verða engar lausnir til eða
prófaðar.“
Freyr bendir á
að gervigreind sé í
stanslausri þróun víða
um heim og hún matast
á persónugreinanlegum
gögnum. „Lífi okkar,
væntingum og atferli
er umbreytt í gögn sem
gervigreindin lærir á
til að fjöldaframleiða
persónusniðna þjónustu og
lausnir.“
Ísland er í fremstu röð
þegar kemur að nýtingu
persónugagna
Í dag er Ísland aðlaðandi
fyrir nýsköpunarverkefni
á stórum og smáum
stigum, allt frá einyrkjum
og frumkvöðlum með
hugmynd, að stærstu
fyrirtækjum heims.
Dattaca Labs er íslenskt
nýsköpunarfyrirtæki og er
staðsett í Sjávarklasanum
að Grandagarði 16 í
Reykjavík. Nýlega vann
íslenskt hugbúnaðarhús
verkefni með milligöngu
Dattaca Labs fyrir eitt allra
stærsta fyrirtæki í heimi.
„Það er meðal annars
vegna framsýni stofnana
eins og Landlæknis, sem
ákvað nýlega að afhenda
öllum Íslendingum rafrænt
afrit af sjúkragögnum sínum,
sem Ísland hefur vakið
eftirtekt úti í hinum stóra
heimi. Landlæknir hefur það
á stefnuskrá sinni að vera
búinn að afhenda öllum
Íslendingum öll sjúkragögn
á árinu 2020. Landlæknir
hefur jafnframt valið Digi.me,
samstarfsfyrirtæki Dattaca
Labs, sem ákjósanlegan
aðila til að veita gögnum frá
embættinu til almennings,“
segir Ketill.
Tækifæri framtíðarinnar
liggja í hagnýtingu með
samþykki
„Ný löggjöf varðandi
persónuvernd er ekki bara
kvöl og pína eins og alltof
margir halda fram. Í henni
felast gríðarlega mikil
tækifæri, sérstaklega fyrir
þau fyrirtæki sem starfa
á einstaklingsmarkaði,“
segir Freyr, en markmið
Dattaca Labs er að
gera Ísland leiðandi í
heiminum í hagnýtingu
persónuupplýsinga.
„Lögfræðiþjónusta
Dattaca Labs er einstök á
þann hátt að við vinnum
aldrei út í opinn reikning, við
gerum alltaf föst verðtilboð
í þá vinnu sem við vinnum.
Grunnþjónusta Dattaca,
Leiðin til innleiðingar,
kostar sem dæmi 89.900
krónur án virðisaukaskatts.
Nýsköpunarhugsunin nær til
okkar innri þróunar á okkar
vörum og þjónustu. Leiðin til
innleiðingar er grunnurinn að
þeirri vinnu sem framundan
er hjá viðkomandi, sýnir
núverandi stöðu og hvert
þarf að komast til að
uppfylla reglugerðina,“ segir
Freyr og lýsir þjónustunni
nánar:
„Í fasa tvö, sem við köllum
Siðaskiptin, þá köfum við
dýpra í það sem lögaðili
þarf að gera til að uppfylla
reglugerðina og aðstoðum
og leiðbeinum honum að
komast þangað.
Í þriðja fasanum
er almenn innleiðing
og þess gætt að allir
ferlar og vinnsluaðferðir
mæti kröfum laganna.
Persónuverndarfulltrúi,
fræðsla til starfsmanna,
áhættumat og annað slíkt
sem reglulega þarf að
framkvæma kemur hér við
sögu.“
Viðskiptaþróun Dattaca
nær til allt frá minnstu
frumkvöðlum til stærstu
fyrirtækja sem skráð eru í
kauphöll á Íslandi. Ráðgjöfin
er alltaf sérsniðin að þörfum
hvers viðskiptavinar.
Hafðu samband og fáðu
nánari upplýsingar á vefsíðu
Dattaca Labs: https://
dattacalabs.com/contact-
us/ eða með fyrirspurn
á netfangið contact@
dattacalabs.com.
DATTACA LABS AÐSTOÐAR VIÐ INNLEIÐINGU Á NÝJUM PERSÓNUVERNDARLÖGUM