Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 29
Afþreying
31. águst 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
MI ICELAND:
Þreföld gæði miðað við
sambærileg tæki í sama
verðflokki
Mi Iceland er viður-kenndur endursölu- og dreifingaraðili
á Íslandi fyrir kínverska
snjalltækjaframleiðandann
Xiaomi, betur þekktan sem
Mi, sem hefur skapað sér
sterkan sess í tækniheiminum
á stuttum tíma með áreið-
anlegum tækjum á góðu
verði. Fyrsti síminn frá Mi
kom á markaðinn árið 2011
og aðeins þremur árum síðar
var framleiðandinn orðinn sá
þriðji stærsti í heiminum.
Mi framleiðir miklar gæða-
vörur en þar sem merkið er
ekki jafnþekkt og til dæmis
Samsung eða Apple þá eru
þessar vörur yfirleitt mun
ódýrari en þekktari merki
í sama gæðaflokki, allt að
þrefalt ódýrari.
Mi Iceland er vefversl-
un á síðunni mii.is og er
úrvalið afar mikið. Sífellt
eru að koma fram nýjar og
spennandi vörur. Hér eru
nokkur nýleg dæmi:
Mi Band 3
Það hefur verið mikil eftir-
vænting síðastliðið vegna
nýja snjall- og heilsuúrsins
frá Xiaomi, Mi Band 3. Biðin
hefur svo sannarlega verið
þess virði þar sem allt hef-
ur verið betrumbætt
frá forvera þess, Mi
Band 2. Helstu
eiginleikar úrsins
eru enn stærri
skjár þar sem
hægt er að
skoða heil
SMS-skilaboð,
stærri raf-
hlaða, vatns-
helt að 50
metra dýpi svo
ekkert mál að
taka það með sér
í sund og veður-
upplýsingar næstu
daga svo eitthvað
sé nefnt. Það sem
gerir þetta snjallúr
ólíkt mörgum öðrum
er möguleikinn á að
skipta um ól á úrinu og
gjörbreyta á sama tíma
útliti þess.
Mi 8
Árið 2012 setti Xiaomi á
markað sinn annan síma, Mi
2, sem varð strax það vinsæll
að Xiaomi varð 2. stærsti
farsímaframleiðandi í heim-
inum það ár. Nú, sex árum
seinna, hefur tæknin þróast
gífurlega og Xiaomi sannar
það svo sannarlega með
Mi 8. Síminn hefur tvöfalda
12MP myndavél að aftan og
20MP myndavél að framan
með AI-assisted face unlock
sem gerir þér kleift að aflæsa
símanum með því einfaldlega
að horfa á hann. Nýi Snap-
dragon 845 örgjörvinn og
6GB vinnsluminni gerir sím-
ann að sannkölluðum
vinnuhesti.
Mi A2
Í fyrra kom á
markað fyrsti
síminn sem unninn
var í samstarfi
við Google, Mi A1.
Síminn fékk strax
frábærar viðtök-
ur og hefur salan
farið langt fram
úr væntingum úti
um allan heim. Í
ár kom Mi A2 og
hefur flest, ef ekki
allt, verið betrumbætt
frá forvera hans, Mi A1.
Samstarf Xiaomi og Google
liggur fyrst og fremst í hreinu
Android-stýrikerfi sem hefur
marga kosti í för með sér en
sá mikilvægasti er að síminn
sjálfur er hraðari fyrir vikið
og uppfærslur á stýrikerf-
inu skila sér mun fyrr. Mikil
áhersla hefur verið lögð á að
bæta myndgæðin við dimm
skilyrði og myndgæðin al-
mennt. Myndavélin að aftan
er tvöföld 12MP + 20MP og
20MP að framan.
iHealth hitamælir
Hvað er það fyrsta sem þú
hugsar um þegar kemur
að haustinu? – Rigning,
kvef og hiti. Það eiga
allir gamlan
hitamæli
heima en af
hverju hafa
hitamælar
lítið sem ekkert
þróast síðustu
ár? iHealth
-hitamælirinn
er svo sannar-
lega rétt þróun
á hitamælum
og ætti að vera
staðalbúnaður
á öllum heimil-
um. Það sem
einkennir þenn-
an hitamæli er ekki bara
fallegt útlit heldur er hann
einnig snertilaus. Þetta
þýðir að þú þarft einungis
að beina hitamælinum að
manneskju úr 3 senti-
metra fjarlægð og
hitamælirinn skilar
þér niðurstöðum á
innan við 1 sekúndu.
Þar sem hann er
snertilaus þarftu
ekki að hafa jafn
miklar áhyggjur
af því að þrífa
hann eftir hverja
einustu mælingu
eins og með
aðra hitamæla.
Mi Iceland
sendir hvert á
land sem er
og er enginn
sendingar-
kostnaður.
Sjá nánar á
vefsíðunni
mii.is.