Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 39

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 39
SAKAMÁL 3931. ágúst 2018 myrtur. Af hverju? Hvar? Lögreglan lagði enn meiri kraft í rannsóknina. Fjöldi manna, sem þóttu líklegir til að geta framið voðaverk sem þetta, var tekinn til yfirheyrslu. Í morð­ málum er það oft svo að það er einhver náinn fórnarlambinu sem ræður því bana. Foreldrar Joachims voru því yfirheyrðir margoft en fljótlega var lögreglan sannfærð um að þeir hefðu ekki komið neitt nálægt morðinu. Um 2.500 manns voru yfirheyrð, en lögreglunni miðaði nánast ekkert áfram við rannsóknina. Garðyrkjufræðingur var fenginn til aðstoðar við að bera kennsl á plöntutegundirnar þrjár og finna staðinn þar sem þær yxu. En þrátt fyrir mikla og ítarlega leit fundu lögreglan og garð­ yrkjusérfræðingurinn ekki stað þar sem þessar þrjár plöntu uxu allar. Það vantaði því mikilvægar upplýsingar í málið. Hvert hafði morðinginn farið með Joachim áður en hann myrti hann? Fimm mánuðum eftir morðið var lög­ reglan í algjörri blindgötu og rannsóknin skilaði engum ár­ angri. Þá var ráðist á annað barn í Randers. Ráðist á blaðberann Snemma morguns á apríldegi 1987 var Pia Schou, 10 ára, að bera út dagblöð í norðurhluta Randers. Hún vann sig hægt og rólega í gegnum hverfið. Þegar hún kom að gula húsinu í hverf­ inu gerði hún eins og alltaf: Lagði töskuna frá sér, tók blað úr henni og hljóp með það að húsinu. En þegar hún kom aftur til baka var taskan horfin. Hún skimaði eftir henni en sá hana ekki. Skyndi­ lega sá hún mann sem stóð niðri í kjallaratröppum og horfði á hana. Hann hélt töskunni henn­ ar upp og gaf henni merki um að koma og sækja hana. Hún þorði eiginlega ekki að sækja hana en vissi ekki hvað hún átti að gera, blöðin voru öll í töskunni. Hún beið og gekk um. Þegar hún sneri aftur að tröppunum var maðurinn horfinn og taskan lá í tröppunum. Hún gekk niður til að sækja hana en þá fann hún að einhver var fyrir aftan hana. Hönd var sett fyrir munn hennar. Hún var síðan dregin aftur á bak inn í skot neðan við tröppurnar. Hún öskraði en maðurinn sagð­ ist vera með hníf og þorði hún þá ekki annað en þegja. Hún vissi ekki hvað hann ætlaði að gera en hún fann að hann var illmenni. Síðan opnaði hann buxurnar og sagði: „Pissaðu í buxurnar.“ Hún var í áfalli, hún var hrædd. Hún vildi gjarnan pissa í buxurnar til að hann yrði ekki reiður en hún var svo skelfingu lostin að hún gat það ekki. Í stað­ inn spurði hún hvort hún mætti fá smá ferskt loft. Maðurinn gaf sig og losaði tökin á henni. Hún stökk þá af stað en komst ekki langt áður en hann náði henni aftur. Nú tók hann um háls hennar og átti hún erfitt með að ná andanum. Hann dró hana aftur niður í myrkrið í tröppun­ um. Maðurinn lét hana leggjast niður og tók hana úr buxunum og sleikti síðan kynfæri hennar. Þegar hann hafði lokið sér af lét hann hana fá buxurnar aftur og sagði henni að standa upp. Pia var fullviss um að hún myndi ekki sleppa lifandi frá honum og alls ekki þegar hann sagði henni að snúa baki í hann og ganga á brott. Hún var viss um að hann myndi drepa hana. Skelfileg mistök lögreglunnar Skömmu síðar sat hún á lög­ reglustöðinni ásamt foreldrum sínum og sagði lögreglumönn­ um hvað hefði gerst. Hún var látin skoða albúm með mynd­ um af afbrotamönnum. Hún þekkti manninn strax aftur á augum hans. Hún sagði lög­ reglumönnunum það og að hann hefði sagst heita Søren. Maðurinn sem hún benti á hét Peder Dinesen Fur. Hann var þekktur sem Peder Fut í Rand­ ers. Hann þótti ansi sérstakur og hafði mikinn áhuga á lestum. Hann var vel þekktur hjá lög­ reglunni vegna smáafbrota en lögreglumennirnir trúðu ekki að Pia hefði rétt fyrir sér. Gat verið að minni hennar hefði brugðist? Maðurinn sem hún benti á var jú ansi sérstakur en prófíllinn hans passaði ekki við prófíl kynferðis­ brotamanna. Lögreglan taldi hann hættulausan. Móðir hans veitti honum fjarvistarsönnun þennan dag og lögreglan sleppti honum. En hún vissi ekki að hún hafði sleppt morðingja Joachims, sama manninum og réðst á Piu. Næstu tvö árin gerðist lítið í rannsókn á málunum. Lög­ reglan fylgdi mörgum vís­ bendingum en án árangurs, en 12 menn játuðu morðið á sig en allt voru það falskar játningar. Allar vísbendingarnar enduðu í blindgötu. Lögreglan ákvað því að opin bera upplýsingar um morðið sem hafði verið haldið leyndum fram að þessu. Þetta var gert í þeirri von að nýjar vís­ bendingar myndu berast. En allt kom fyrir ekki. Það leit því út fyr­ ir að morðingi Joachims Gisle Larsson myndi aldrei finnast. En þá komst hreyfing á málið á nýj­ an leik. Morðinginn fór aftur á kreik Í lok mars 1989 komu mörg hundruð þjóðdansarar til Rand­ ers til að taka þátt í árlegri þjóð­ dansahátíð. Þá voru tvö og hálft ár liðið síðan Joachim litli var myrtur og tvö ár síðan ráðist var á Piu. En nú vaknaði aftur hvöt hjá Peder Fur til að gera eitthvað. Hann hafði drukkið áfengi og sat framan við hátíðarstaðinn, sem var í íþróttahöll, með bjór. Tvær litlar stúlkur, 7 og 10 ára, gengu framhjá honum. Hann lokkaði þær að íþróttahöllinni og síðan að engi. Þar reyndi hann að fá þá 7 ára til að pissa í buxurnar en það vildi hún ekki. Þá varð hann reiður og skammaði hana og sagði henni að hafa sig á brott, hún væri hvort sem er of ung. Þegar hún hljóp á brott sneri hann sér að eldri stúlkunni, þreif í hana og kastaði í jörðina. Hann tók beltið af sér og ætlaði að binda stúlkuna en hún sparkaði og barðist um svo hann komst ekki að henni. Síðar sagði hann lögreglunni hvernig hann hefði fundið reiðina blossa upp í sér. Hann þreif í stúlkuna og tók um háls hennar og þrengdi að. Hann horfði á hana og sagði henni að hún gæti valið hvort hann kyrkti hana eða hún pissaði á höfuð hans. Stúlkan beit hann í höndina og honum brá svo mik­ ið að hann sleppti henni. Hún náði að hlaupa á brott til fólksins á þjóðdansahátíðinni. Árásin á stúlkurnar kom lög­ reglunni á sporið. Atburða­ rásin minnti á mál Piu og stúlk­ urnar sögðu að maðurinn hefði kallað sig Søren eins og Pia hafði sagt tveimur árum áður. Nú fóru púslin að raðast saman. Peder Fur var handtekinn þennan sama dag. Hann játaði strax að hafa ráðist á stúlkurnar tvær og Piu og mörg önnur kynferðis brot gegn börnum í bænum. Nokkrum dögum síðar sagði Peder Fur svolítið sem lögreglan hafði lengi beðið eftir að heyra. Hann lýsti þá atburðarásinni daginn sem hann myrti Joachim. Hann sagð­ ist hafa stolið skellinöðru til að fara að leita að stúlku. Hann sá Joachim og taldi að hann væri stúlka vegna síða ljósa hársins. Hann sagðist myndu aka Joachim til bakarans og fékk hann til að setjast aftan á skellinöðruna. Hann ók síðan með hann á af­ vikinn stað þar sem hann bað hann að pissa í buxurnar. Það var fyrst þá sem Peder Fur átt­ aði sig á að hann hafði tekið strák en ekki stúlku. Fyrir dómi sagði hann að Joachim hafi viljað sýna honum að hann væri strákur en ekki stelpa og því farið úr buxun­ um og lagt þær á jörðina. Þannig enduðu plöntutegundirnar þrjár í nærbuxum hans. Hann vissi ekki hvað hann átti til bragðs að taka og ók um með hann í smá tíma áður en hann kom til Flad­ bro. Þar settist Peder Fur niður og drakk bjór en Joachim varð leiður og vildi fara heim en það fór á annan veg. Peder Fur hefur aldrei skýrt frá af hverju hann myrti Joachim. Hann var dæmdur í lífstíðar­ fangelsi og er enn í fangelsi og mun líklegast aldrei fá reynslu­ lausn.n 4–7 ára og vanvirti morðinginn líkin kynferðislega. Þá drakk hann blóð eins fórnarlambsins og át hluta af annarri hönd hennar. Miyazaki fæddist með vanskapaðar hendur. Fötlun hans stuðlaði kannski að því að hann einangraðist félagslega og sökk í djúpt þunglyndi. Hann varð frá- hverfur foreldrum sínum og systrum en taldi sig aðeins njóta sannmælis hjá afa sínum. Þegar afi hans lést í maí 1988 var það mikið áfall fyrir Miyazaki. Hann brást við með því að fremja sitt fyrsta viðurstyggilega morð. Eitt af einkennum hans var að senda fjölskyldum fórn- arlambanna póstkort með stuttri lýsingu á glæpunum auk þess sem hann átti til að angra fjölskyldurnar með símhringingum. Miyazaki var handtekinn þann 6. júní 1989 þegar hann var að reyna að tæla til sín enn eitt fórnarlambið. Hann var dæmdur til dauða og var loks hengdur í júní 2008. Gylfaflöt 6 - 8 ERUM FLUTT Í GYLFAFLÖT 6 - 8 „Hún var síð- an dregin aftur á bak inn í skot neðan við tröppurnar. „Hún öskraði en maður- inn sagðist vera með hníf og þorði hún þá ekki annað en þegja. „Síðan opn- aði hann buxurnar og sagði: „Pissaðu í buxurnar.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.