Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 39
SAKAMÁL 3931. ágúst 2018
myrtur. Af hverju? Hvar?
Lögreglan lagði enn meiri
kraft í rannsóknina. Fjöldi
manna, sem þóttu líklegir til að
geta framið voðaverk sem þetta,
var tekinn til yfirheyrslu. Í morð
málum er það oft svo að það er
einhver náinn fórnarlambinu
sem ræður því bana. Foreldrar
Joachims voru því yfirheyrðir
margoft en fljótlega var lögreglan
sannfærð um að þeir hefðu ekki
komið neitt nálægt morðinu.
Um 2.500 manns voru yfirheyrð,
en lögreglunni miðaði nánast
ekkert áfram við rannsóknina.
Garðyrkjufræðingur var fenginn
til aðstoðar við að bera kennsl
á plöntutegundirnar þrjár og
finna staðinn þar sem þær yxu.
En þrátt fyrir mikla og ítarlega
leit fundu lögreglan og garð
yrkjusérfræðingurinn ekki stað
þar sem þessar þrjár plöntu uxu
allar. Það vantaði því mikilvægar
upplýsingar í málið. Hvert hafði
morðinginn farið með Joachim
áður en hann myrti hann? Fimm
mánuðum eftir morðið var lög
reglan í algjörri blindgötu og
rannsóknin skilaði engum ár
angri. Þá var ráðist á annað barn
í Randers.
Ráðist á blaðberann
Snemma morguns á apríldegi
1987 var Pia Schou, 10 ára, að
bera út dagblöð í norðurhluta
Randers. Hún vann sig hægt og
rólega í gegnum hverfið. Þegar
hún kom að gula húsinu í hverf
inu gerði hún eins og alltaf: Lagði
töskuna frá sér, tók blað úr henni
og hljóp með það að húsinu. En
þegar hún kom aftur til baka var
taskan horfin. Hún skimaði eftir
henni en sá hana ekki. Skyndi
lega sá hún mann sem stóð niðri
í kjallaratröppum og horfði á
hana. Hann hélt töskunni henn
ar upp og gaf henni merki um að
koma og sækja hana. Hún þorði
eiginlega ekki að sækja hana en
vissi ekki hvað hún átti að gera,
blöðin voru öll í töskunni. Hún
beið og gekk um. Þegar hún
sneri aftur að tröppunum var
maðurinn horfinn og taskan lá
í tröppunum. Hún gekk niður til
að sækja hana en þá fann hún
að einhver var fyrir aftan hana.
Hönd var sett fyrir munn hennar.
Hún var síðan dregin aftur á bak
inn í skot neðan við tröppurnar.
Hún öskraði en maðurinn sagð
ist vera með hníf og þorði hún þá
ekki annað en þegja. Hún vissi
ekki hvað hann ætlaði að gera en
hún fann að hann var illmenni.
Síðan opnaði hann buxurnar og
sagði: „Pissaðu í buxurnar.“
Hún var í áfalli, hún var
hrædd. Hún vildi gjarnan pissa
í buxurnar til að hann yrði ekki
reiður en hún var svo skelfingu
lostin að hún gat það ekki. Í stað
inn spurði hún hvort hún mætti
fá smá ferskt loft. Maðurinn gaf
sig og losaði tökin á henni. Hún
stökk þá af stað en komst ekki
langt áður en hann náði henni
aftur. Nú tók hann um háls
hennar og átti hún erfitt með
að ná andanum. Hann dró hana
aftur niður í myrkrið í tröppun
um. Maðurinn lét hana leggjast
niður og tók hana úr buxunum
og sleikti síðan kynfæri hennar.
Þegar hann hafði lokið sér af lét
hann hana fá buxurnar aftur og
sagði henni að standa upp. Pia
var fullviss um að hún myndi
ekki sleppa lifandi frá honum og
alls ekki þegar hann sagði henni
að snúa baki í hann og ganga á
brott. Hún var viss um að hann
myndi drepa hana.
Skelfileg mistök lögreglunnar
Skömmu síðar sat hún á lög
reglustöðinni ásamt foreldrum
sínum og sagði lögreglumönn
um hvað hefði gerst. Hún var
látin skoða albúm með mynd
um af afbrotamönnum. Hún
þekkti manninn strax aftur á
augum hans. Hún sagði lög
reglumönnunum það og að
hann hefði sagst heita Søren.
Maðurinn sem hún benti á hét
Peder Dinesen Fur. Hann var
þekktur sem Peder Fut í Rand
ers. Hann þótti ansi sérstakur
og hafði mikinn áhuga á lestum.
Hann var vel þekktur hjá lög
reglunni vegna smáafbrota en
lögreglumennirnir trúðu ekki að
Pia hefði rétt fyrir sér. Gat verið
að minni hennar hefði brugðist?
Maðurinn sem hún benti á var jú
ansi sérstakur en prófíllinn hans
passaði ekki við prófíl kynferðis
brotamanna. Lögreglan taldi
hann hættulausan. Móðir hans
veitti honum fjarvistarsönnun
þennan dag og lögreglan sleppti
honum. En hún vissi ekki að
hún hafði sleppt morðingja
Joachims, sama manninum og
réðst á Piu.
Næstu tvö árin gerðist lítið
í rannsókn á málunum. Lög
reglan fylgdi mörgum vís
bendingum en án árangurs, en
12 menn játuðu morðið á sig en
allt voru það falskar játningar.
Allar vísbendingarnar enduðu í
blindgötu. Lögreglan ákvað því
að opin bera upplýsingar um
morðið sem hafði verið haldið
leyndum fram að þessu. Þetta
var gert í þeirri von að nýjar vís
bendingar myndu berast. En allt
kom fyrir ekki. Það leit því út fyr
ir að morðingi Joachims Gisle
Larsson myndi aldrei finnast. En
þá komst hreyfing á málið á nýj
an leik.
Morðinginn fór aftur á kreik
Í lok mars 1989 komu mörg
hundruð þjóðdansarar til Rand
ers til að taka þátt í árlegri þjóð
dansahátíð. Þá voru tvö og hálft
ár liðið síðan Joachim litli var
myrtur og tvö ár síðan ráðist var
á Piu. En nú vaknaði aftur hvöt
hjá Peder Fur til að gera eitthvað.
Hann hafði drukkið áfengi og sat
framan við hátíðarstaðinn, sem
var í íþróttahöll, með bjór. Tvær
litlar stúlkur, 7 og 10 ára, gengu
framhjá honum. Hann lokkaði
þær að íþróttahöllinni og síðan
að engi. Þar reyndi hann að fá
þá 7 ára til að pissa í buxurnar en
það vildi hún ekki. Þá varð hann
reiður og skammaði hana og
sagði henni að hafa sig á brott,
hún væri hvort sem er of ung.
Þegar hún hljóp á brott sneri
hann sér að eldri stúlkunni, þreif
í hana og kastaði í jörðina. Hann
tók beltið af sér og ætlaði að
binda stúlkuna en hún sparkaði
og barðist um svo hann komst
ekki að henni. Síðar sagði hann
lögreglunni hvernig hann hefði
fundið reiðina blossa upp í sér.
Hann þreif í stúlkuna og tók um
háls hennar og þrengdi að. Hann
horfði á hana og sagði henni
að hún gæti valið hvort hann
kyrkti hana eða hún pissaði á
höfuð hans. Stúlkan beit hann í
höndina og honum brá svo mik
ið að hann sleppti henni. Hún
náði að hlaupa á brott til fólksins
á þjóðdansahátíðinni.
Árásin á stúlkurnar kom lög
reglunni á sporið. Atburða
rásin minnti á mál Piu og stúlk
urnar sögðu að maðurinn hefði
kallað sig Søren eins og Pia hafði
sagt tveimur árum áður. Nú fóru
púslin að raðast saman. Peder
Fur var handtekinn þennan sama
dag. Hann játaði strax að hafa
ráðist á stúlkurnar tvær og Piu og
mörg önnur kynferðis brot gegn
börnum í bænum. Nokkrum
dögum síðar sagði Peder Fur
svolítið sem lögreglan hafði lengi
beðið eftir að heyra. Hann lýsti
þá atburðarásinni daginn sem
hann myrti Joachim. Hann sagð
ist hafa stolið skellinöðru til að
fara að leita að stúlku. Hann sá
Joachim og taldi að hann væri
stúlka vegna síða ljósa hársins.
Hann sagðist myndu aka Joachim
til bakarans og fékk hann til að
setjast aftan á skellinöðruna.
Hann ók síðan með hann á af
vikinn stað þar sem hann bað
hann að pissa í buxurnar. Það
var fyrst þá sem Peder Fur átt
aði sig á að hann hafði tekið strák
en ekki stúlku. Fyrir dómi sagði
hann að Joachim hafi viljað sýna
honum að hann væri strákur en
ekki stelpa og því farið úr buxun
um og lagt þær á jörðina. Þannig
enduðu plöntutegundirnar þrjár
í nærbuxum hans. Hann vissi
ekki hvað hann átti til bragðs að
taka og ók um með hann í smá
tíma áður en hann kom til Flad
bro. Þar settist Peder Fur niður
og drakk bjór en Joachim varð
leiður og vildi fara heim en það
fór á annan veg. Peder Fur hefur
aldrei skýrt frá af hverju hann
myrti Joachim.
Hann var dæmdur í lífstíðar
fangelsi og er enn í fangelsi og
mun líklegast aldrei fá reynslu
lausn.n
4–7 ára og vanvirti morðinginn líkin kynferðislega. Þá
drakk hann blóð eins fórnarlambsins og át hluta af
annarri hönd hennar.
Miyazaki fæddist með vanskapaðar hendur. Fötlun
hans stuðlaði kannski að því að hann einangraðist
félagslega og sökk í djúpt þunglyndi. Hann varð frá-
hverfur foreldrum sínum og systrum en taldi sig aðeins
njóta sannmælis hjá afa sínum. Þegar afi hans lést í
maí 1988 var það mikið áfall fyrir Miyazaki. Hann brást
við með því að fremja sitt fyrsta viðurstyggilega morð.
Eitt af einkennum hans var að senda fjölskyldum fórn-
arlambanna póstkort með stuttri lýsingu á glæpunum
auk þess sem hann átti til að angra fjölskyldurnar með
símhringingum. Miyazaki var handtekinn þann 6. júní
1989 þegar hann var að reyna að tæla til sín enn eitt
fórnarlambið. Hann var dæmdur til dauða og var loks
hengdur í júní 2008.
Gylfaflöt 6 - 8
ERUM FLUTT Í
GYLFAFLÖT 6 - 8
„Hún var síð-
an dregin
aftur á bak inn í
skot neðan við
tröppurnar.
„Hún öskraði
en maður-
inn sagðist vera
með hníf og þorði
hún þá ekki annað
en þegja.
„Síðan opn-
aði hann
buxurnar og
sagði: „Pissaðu í
buxurnar.“