Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2018, Blaðsíða 58
58 FÓLK 31. ágúst 2018
„Mér finnst vanta fleiri
stelpur í rappsenuna“„Markmið mitt er
að reyna komast
út til hinna Norðurland-
anna. Spila í Danmörku,
Noregi eða Svíðþjóð. Það
væri draumurinn.
F
riðrik Róbertsson, betur
þekktur sem Floni, er einn
efnilegasti rappari lands-
ins. Hann gaf út sína fyrstu
plötu undir heitinu „Floni“ í lok
árs 2017. Platan sló samstundis í
gegn og röðuðu níu lög af plötunni
sér í níu efstu sætin á lista Spoti-
fy yfir þau lög sem mest eru spiluð
á streymisveitunni á Íslandi. Í júní
kom út lagið „Party“ sem fór rak-
leiðis á topplista og það sama má
segja um lagið „OMG“ sem kom út
núna í lok júlí.
Vinsældir Flona hafa vaxið dag
frá degi meðal íslenskra hip-hop-
unnenda og er beðið eftir að kapp-
inn gefi út meira efni.
Hvernig og hvenær byrjaðir þú
í tónlist?
Ég byrjaði fyrir um það bil
tveimur árum að læra á forritið
„Logic pro“ eftir að ég hafði fylgst
með Arnari Inga (Young Nazar-
eth). Í kjölfarið fór ég aðeins að
grúska í tónlistinni og það hefur
undið upp á sig. Síðan voru bestu
vinir mínir, Jökull Breki og Viktor
Örn Ásgeirsson, mikið í tónlist og
við fórum að vinna ómeðvitað að
þessari plötu.
Varstu mikið í kringum tónlist
þegar þú varst yngri?
Já, ég hef alltaf verið mikið í
kringum tónlist, ég byrjaði ungur
að læra á fiðlu og píanó og ætli ég
hafi ekki fengið þetta þaðan.
Hvað er það sem þú fílar mest
við hip-hop?
Það er ekkert sérstakt í raun-
inni við hip-hop sem ég fíla. Það er
bara eitthvað við tónlist yfir höfuð
sem heillar mig.
Hvernig finnst þér hip-hopsen-
an í dag, eitthvað sem mætti fara
betur?
Það hefur verið gaman að sjá
hvað það eru margir ungir krakkar
að gera tónlist í dag og það verður
gaman að fylgjast með þeim þró-
ast á næstu árum. Það væri gaman
að sjá fleiri stelpur gefa út músík,
það er svo mikið af hæfileikaríku
tónlistarfólki hérna heima.
Hvað finnst þér skemmtilegast
að rappa um?
Það er í rauninni ekkert eitt
sem mér finnst gaman að rappa
um. Ég reyni að skrifa textana eftir
líðan og hvernig mér líður einmitt
þá.
Vinnur þú með þema?
Nei, í rauninni ekki, ég vinn
bara svolítið eftir tilfinningunni
og hvernig mér líður. Vil ekki
vera að festa mig inni í eitthverj-
um kassa. Vil leyfa sköpuninni
bara svolítið að tala sjálf og fólki
að skynja hvað það er sem ég er að
rappa um.
Þú gafst út plötuna Floni á síð-
asta ári sem sló í gegn. Segðu okk-
ur aðeins frá því?
Þetta var langt og krefjandi
ferðalag þar sem ég lærði mikið,
en á sama tíma mjög skemmtilegt.
Þú gafst nýverið út lögin Par-
ty og OMG, hvernig hafa við-
tökurnar verið?
Mér hafa þótt við-
tökurnar góðar að
flestu leyti. Það er
gaman að gefa út
svona partílög á
sumrin.
Hver er þín fyr-
irmynd í senunni
og af hverju? Það er
í rauninni enginn
einn, maður fær inn-
blástur úr alls konar
stefnum og ég reyni
bara að skapa það
sem ég get úr því. Ég
fæ sjálfur innblásturinn
í daglegu lífi og fólkinu í
kringum mig.
Hefur þú lent í ein-
hverjum skrítnum upp-
ákomum þegar þú hefur
komið fram?
Já, maður hefur
lent í alls kyns upp-
ákomum, t.d. að
hljóðneminn virki
ekki og að ég þurfi
að öskra af sviðinu.
Þá hef ég lent í því
að krakkar ryðjist
inn á sviðið og byrji að hoppa út í
áhorfendaskarann.
Hverjir eru helstu aðdáendur
þínir?
Ég verð var við að aðdáendurnir
eru á öllum aldri, fullorðið fólk
og alveg niður í unglingadeildir
grunnskólanna.
Hvernig er vinnuferlið hjá þér
þegar kemur að því að semja?
Bara setja sig í rétta hugar-
ástandið, prófa sig áfram og
ekki vera hræddur. Það er
mikilvægt að treysta á
sjálfan sig
og ekki pæla í öðrum. Það getur
stundum verið erfitt, sérstaklega
þegar það er pressa á þér.
Finnst þér vanta fleiri kvenkyns
rappara í senuna?
Já. Mér finnst vanta fleiri stelp-
ur í rappsenuna. Ég þekki svo
margar hæfileikaríkar stelpur sem
eiga tónlistina alveg fyrir sér. Gott
dæmi er Guðrún Ýr, sem er þekkt
sem GDRN. Við gerðum lag saman
og hún gaf nýlega út plötu, ég mæli
með að allir fari og tékki á henni.
Þú hefur verið að spila mikið
undafarið ár, eitthvert gigg sem
stendur upp úr?
Nei, það kemur ekkert upp í
hugann. Markmið mitt er að reyna
komast út til hinna Norðurland-
anna. Spila í Danmörku, Noregi
eða Svíðþjóð. Það væri draumur-
inn.
Hvað er næst fram undan hjá
þér?
Kemur í ljós … n
Floni kom fram í beinni út-
sendingu síðastliðinn föstudag í
DV Tónlist og geta áhugasamir séð
upptökuna á vef DV.is.
Floni byrjaði að fikta við tónlist fyrir um
tveimur árum og hlutirnir hafa gerst hratt
síðan.
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is