Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 40
Undarleg staða er komin upp í srí-lönskum stjórn-málum. Ríkisstjórn var leyst upp og gamall forseti tók við forsætisráðuneytinu. Nú síðast á þriðjudaginn ákvað þessi nýi for- sætisráðherra að áfrýja til hæstarétt- ar niðurstöðu áfrýjunardómstóls frá því degi fyrr þar sem honum var einfaldlega bannað að nýta völd sín sem forsætisráðherra. Honum var þó ekki vikið úr embætti. Hann má bara einfaldlega ekki gera neitt, að minnsta kosti ekki í bili. Stjórnarskrárkrísa er trúlega besta orðið til að lýsa þessu ástandi. Og krísan hefur dregið dilk á eftir sér. Reuters greindi frá því á fimmtu- dag að srílönsk ferðaþjónusta kæmi illa út úr málinu. Ferðamenn væru að afbóka ferðir sínar til eyríkisins í stórum stíl. Fornir fjendur Til þess að útskýra stöðuna ber fyrst að kynna til leiks persónur og leikendur. Það eru einna helst þrír menn sem hafa drifið atburðarásina áfram. Sá fyrsti er jafnaðarmaðurinn Maithripala Sirisena. Hann er for- seti Srí Lanka og hefur verið frá því í byrjun árs 2015. Samhliða því stýrir hann varnarmála- og umhverfis- ráðuneytum ríkisins. Sirisena er frá Miðnorðurfylki Srí Lanka og er fyrsti forsetinn þaðan. Þá tilheyrir hann ekki hinni hefðbundnu srí- lönsku stjórnmálaelítu, að því er kom fram í umfjöllun The Guardian eftir kjör hans. Sirisena er flokks- maður Frelsisflokks Srí Lanka. Annar á svið er íhaldsmaðurinn Ranil Wickremesinghe. Hann varð forsætisráðherra í janúar 2015, á sama tíma og Sirisena tók við for- setaembættinu, og hefur gegnt formennsku í Sameinuðu þjóð- fylkingunni frá árinu 2009. Hann hafði áður verið forsætisráðherra árin 1993 og 1994 sem og frá 2001 til 2004 og er því rótgróin fígúra í srílönsku stjórnmálalífi. Síðastur en ekki sístur er svo jafnaðarmaðurinn og Sinhalese- þjóðernishyggjumaðurinn Mah- inda Rajapaksa. Sá leiðir Srílönsku þjóðfylkinguna. Hann var forsætis- ráðherra 2004 til 2005 og forseti frá 2005 til 2015. Hann tapaði for- setakosningum fyrir Sirisena árið 2015. Þá tókst honum ekki heldur að verða forsætisráðherra eftir þing- kosningar en náði þó kjöri á þing. Þeir Sirisena og Wickremesinghe höfðu tekið höndum saman og komið Rajapaksa frá völdum. Frændhygli og mannréttindabrot Forsetatíð Rajapaksa var síður en svo lýtalaus. Asíuútgáfa The New York Times lýsti honum sem vin- sælum leiðtoga „sem var sakaður um mannréttindabrot, forkastan- lega frændhygli og afar náin tengsl við yfirvöld í Kína“. Álíka dóm fékk Rajapaksa í rit- stjórnargrein sem birtist í The Guardian eftir að Sirisena náði kjöri í janúar 2015. Þar sagði að „Rajapaksa-klanið“ hefði í valdatíð sinni stórskaðað sjálft lýðræðið með alræðistöktum sínum og virðingar- leysi fyrir stjórnarskránni. Þá minnti The Guardian á að Rajapaksa hefði sett tjáningarfrels- inu skorður, ákært forseta hæsta- réttar til embættismissis, breytt lögum um hversu lengi mætti sitja á forsetastóli til þess að geta setið lengur, hundelt gagnrýnendur sína og beitt ofbeldi gegn mótmælend- um, svo fátt eitt sé nefnt. Ný stjórn Það glöddust því margir þegar Sir- isena hafði betur gegn Rajapaksa í forsetakosningunum í upphafi árs 2015. Sirisena fékk 51,28 prósent atkvæða en Rajapaksa 47,58 pró- sent. Þingkosningar fylgdu í kjöl- Stjórnarskrárkrísa á Srí Lanka Þrír menn hafa sett á svið ótrúlega atburðarás í eyríkinu við Ind- landsstrendur. Spilling og fyrirhugað tilræði við forsetann ollu stjórnarskrárkrísu sem ekki hefur tekist að greiða úr. Sirisena forseti og Wickremesinghe, fyrrverandi forsætisráðherra, á meðan allt lék í lyndi. NORDICPHOTOS/AFP Sirisena forseti og Rajapaksa, nýi forsætisráðherrann, í þann skamma tíma sem þeir voru perluvinir. NORDICPHOTOS/AFP Þórgnýr Einar Albertsson thorgnyr@frettabladid.is farið og þar náði Rajapaksa ekki heldur að komast til valda. Sirisena hamraði saman þjóð- stjórn eftir þingkosningarnar. Sú stjórn innleiddi nítjánda viðauk- ann við srílönsku stjórnarskrána skömmu síðar. Hann kveður á um að forsætisráðherra skuli gegna sínu embætti svo lengi sem stjórn hans er starfhæf eða þangað til hann segir af sér eða hættir á þingi. Þessari nýja ríkisstjórn Sirisena og Wickremesinghe fór hins vegar hægt af stað. Henni gekk illa að greiða niður skuldir sem stofnað hafði verið til í forsetatíð Rajapaksa. Sá hafði fengið lán frá Kínverjum til þess að ráðast í byggingu ýmissa innviða. Stjórnin fékk svo þungt högg í febrúar þegar flokkur Rajapaksa vann stórsigur í sveitarstjórnakosn- ingum. Í kjölfar kosninganna sagði Rajitha Senaratne, upplýsingafull- trúi ríkisstjórnarinnar, við Reuters að Rajapaksa myndi nota þennan sigur sinn til þess að reyna að koma ríkisstjórnarsamstarfinu úr jafn- vægi og hylma yfir spillingarmál sín. Rajapaksa og fjölskylda hans höfðu þá verið ákærð fyrir ýmis spillingar- mál. Og í október var öllum ljóst að gjá hafði myndast á milli Sirisena og Wickremesinghe. Forsetinn greindi þjóðinni frá því að mikill ágreiningur hefði verið um stefnu ríkisins á milli þeirra félaga allt frá því þeir tóku við forystu landsins. Þá sagði Sirisena að forsætisráð- herrann hefði átt þátt í umdeildri sölu skuldabréfa seðlabanka ríkis- ins sem sögð er hafa leitt til um átta milljarða króna taps fyrir ríkissjóð. Wickremesinghe sparkað Gjáin varð fljótt að hyldýpi. Þann 26. október síðastliðinn sagði UPFA, flokkabandalagið sem Sir- isena stýrir, sig úr stjórnarsamstarf- inu. Hann ýjaði sömuleiðis að því að ráðherra, sem hann nefndi ekki á nafn, tengdist tilræði við líf sitt en greint var frá því að Nalaka de Silva, yfirmaður lögreglu, væri sakaður um að leggja á ráðin um að myrða forsetann í september. Þetta fyrir- hugaða tilræði var meginástæðan fyrir gjörðum Sirisena, samkvæmt forsetanum sjálfum. Síðar þennan sama dag kom Sirisena landsmönnum rækilega á óvart með því að skipa andstæðing sinn, Mahinda Rajapaksa, nýjan forsætisráðherra í beinni sjón- varpsútsendingu. Þetta gerði hann án þess að hafa komið Wickremes- inghe frá völdum og má því segja að á þessum tímapunkti hafi Srí Lanka verið komið með forsætisráðherra. Wickremesinhe var skiljanlega ósáttur og sagði í ávarpi að hann væri enn forsætisráðherra, þingið stæði á bak við hann. Fjármálaráð- herrann Mangala Samaraweera tók undir með honum og sagði skipan Rajapaksa brot gegn stjórnar- skránni. Ekki væri hægt að setja Wickremesinghe af þar sem hann leiddi enn starfhæfa stjórn. Þá kallaði Wickremesinghe sömuleiðis eftir því að þingið yrði kallað saman hið snarasta, vildi sanna að hann hefði enn þá meiri- hluta á bak við sig. Degi síðar, þann 27. október, ákvað Sirisena hins vegar að fresta því að þingið kæmi saman. Þingið átti upphaf- lega að koma saman 5. nóvember en því var þar með seinkað um ell- efu daga. En eftir því sem klukkutímarnir og dagarnir liðu varð ljóst að hvort sem það var löglegt eða ekki hefði Wickremesinghe verið sparkað. Öryggisverðirnir voru teknir af honum og sendir til Rajapaksa. Þá óskuðu leiðtogar grannríkjanna Rajapaksa opinberlega til ham- ingju með nýja starfið. Þingið leyst upp Þingfundurinn sem Wickremes- inghe hlakkaði svo til lét bíða eftir sér. Sirisena tilkynnti um það að þingið væri leyst upp þann 9. nóv- ember og boðaði til nýrra kosninga þann 5. janúar. Þessi ákvörðun fór illa í samflokksmenn Wickremes- inghe sem sökuðu Sirisena um að hreinlega ræna lýðræðinu af srí- lönsku þjóðinni og um brot gegn fyrrnefndum nítjánda viðauka stjórnarskrárinnar. Þarna nýtti Rajapaksa tækifærið. Með kosningar í augnsýn ákváðu hann og 44 aðrir þingmenn að segja sig úr Frelsisflokki Srí Lanka, flokki forsetans sem Rajapaksa hafði gengið til liðs við. Þess í stað gengu þingmennirnir 45 í Srílönsku þjóð- fylkinguna. En hæstiréttur Srí Lanka var ekki sáttur. Nokkrir flokkar, þar á meðal flokkur Wickremesinghe, og kjör- stjórn ríkisins fóru þann 12. nóvem- ber fram á að staðan yrði færð aftur í það horf sem var fyrir 26. október þar sem gjörðir Sirisena væru brot gegn stjórnarskránni. Á þetta féllst hæstiréttur reyndar ekki en í öðru máli sem kom fyrir dómstólinn sama dag var tilskipun Sirisena um upplausn þingsins sett á ís. Vantraust Þingið kom svo loks saman þann 14. nóvember. Strax á þessum fyrsta degi þings greiddu 122 þing- menn af 225, sum sé meirihluti, atkvæði með að lýsa vantrausti á stjórn Rajapaksas. Þetta var svo endurtekið tveimur dögum síðar með sömu niðurstöðu. Sirisena neitaði að viðurkenna að vantraust væri á Rajapaksa og kallaði eftir þriðju atkvæðagreiðslunni. Þessir 122 þingmenn fóru svo fram á við áfrýjunardómstól að öll völd yrðu tekin af Rajapaksa og ráðherrum hans. Á það féllst dóm- stóllinn síðastliðinn mánudag til bráðabirgða og hefur Rajapaksa áfrýjað málinu til hæstaréttar. EFTIR AÐ HAFA TAPAÐ Í BÆÐI FORSETA- OG ÞING- KOSNINGUM ÁRIÐ 2015 ER MAHINDA RAJAPAKSA NÚ KOMINN AFTUR TIL VALDA Á SRÍ LANKA. 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8 L A U G A R D A G U R40 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 0 8 -1 2 -2 0 1 8 0 4 :1 4 F B 1 2 0 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 1 2 0 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 1 A F -F 1 1 0 2 1 A F -E F D 4 2 1 A F -E E 9 8 2 1 A F -E D 5 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 1 2 0 s _ 7 _ 1 2 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.