Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 4
Fáðu blað dagsins í tölvupósti
kl. 5.00 á morgnana.
Skráðu þig á póstlista Frétta-
blaðsins á www.frettabladid.is/
nyskraning. Það kostar ekkert.
Vertu fyrst/ur
að lesa blaðið
111 eftir Spessa – Blákalt
stefnumót við raunveruleikann
Endurprentun komin í verslanir
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Um helgar 11–17 | www.forlagid.is LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
Bára Halldórsdóttir
öryrki og hinsegin kona
steig fram og kvaðst
vera dularfulli
upptökumaður-
inn á barnum
Klaustri. Hún
kvaðst varla
hafa trúað því
sem hún heyrði.
Lilja Alfreðsdóttir
menntamála ráðherra
sagðist hafa upp-
lifað samtalið
um hana á barn-
um Klaustri
sem algjört
ofbeldi. „Þeir eru
ofbeldismenn. Ég
segi bara að þetta
er alveg skýrt í mínum huga.
Ofbeldismenn hafa ekki dag-
skrárvald í íslensku samfélagi.“
Helgi Bernódusson
skrifstofustjóri Alþingis
mótmælti
ummælum Önnu
Kolbrúnar Árna-
dóttur, þing-
manns Mið-
flokksins, um
að á Alþingi ríkti
sérstakur „kúltúr“.
Mátti skilja af orðum hennar að
starfsmenn Alþingis væru hluti af
þeirri menningu.
Þrjú í fréttum
Uppljóstrun,
ofbeldi og
mótmæli
Tölur vikunnar 02.12.2018 Til 08.12.2018
31
þingmaður af
þeim 50 sem
Fréttablaðið náði í vill að sexmenn-
ingarnir sem tóku þátt í umræðum
á Klaustri 20. nóvember segi af
sér. Átján þingmenn svöruðu ekki
spurningunni. Aðeins einn þing-
maður telur að sexmenningarnir
þurfi ekki að segja af sér.
23% mannfjöldans á Suður-nesjum eru innflytj-
endur af fyrstu eða annarri kynslóð.
Hinn 1. janúar 2018 voru 43.736
innflytjendur á Íslandi eða 12,6%
mannfjöldans. 34%
allra látinna frá 2008 til 2017
dóu úr blóðrásarsjúkdómum
eða 7.065 einstaklingar. Þar
á eftir létust 6.031 úr æxlum
eða 29% allra látinna.
50% stúlkna, eða um það bil, í 10. bekk hafa verið
beðnar um að senda nektar mynd
eða ögrandi mynd af sér. Þá hafa 30
prósent stúlkna og um 20 pró-
sent drengja í tíunda bekk sent slíka
mynd af sér til einhvers.
181 þúsund krónur í
desemberuppbót
fengu allir sem kjararáð ákvarðaði
laun áður en það var aflagt.
280
þúsund voru farþegar Icelandair í
nóvember síðastliðnum. Fjölgaði
þeim um 12 prósent miðað við
nóvember á síðasta ári.
alÞinGi Árlegur leyfilegur styrkur
einstaklinga til stjórnmálaflokka og
einstaklinga í prófkjöri hækkar sam-
kvæmt nýju frumvarpi til breytinga
á lögum um fjármál stjórnmálasam-
taka þeirra. Þá munu greiðslur til
smærri flokka á þingi hækka.
Frumvarpið er lagt fram af for-
mönnum allra flokka að Flokki
fólksins og formannslausum Píröt-
um undanskildum. Þar eru varafor-
maðurinn Guðmundur Ingi Krist-
insson og þingflokksformaðurinn
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir á lista.
Markmið frumvarpsins er að
tryggja starfsskilyrði og sjálfstæði
stjórnmálaflokka auk þess að efla
lýðræði og gagnsæi í stjórnmálum. Í
þeim felst að stjórnmálasamtök sem
fá minnst einn mann kjörinn á þing
eiga rétt á tólf milljóna króna grunn-
framlagi úr ríkissjóði ár hvert. Þá
munu stjórnmálasamtök sem bjóða
fram í minnst þremur kjördæmum
geta sótt um 750 þúsund króna styrk,
sem greiðist úr fyrir hvert og eitt
kjördæmi, vegna kosningabarátt-
unnar. Skilyrði úthlutunarinnar er
að samtökin uppfylli upplýsinga-
skyldu sína gagnvart Ríkisendur-
skoðun.
Þá er kveðið á um að leyfileg árleg
heildarfjárframlög frá lögaðilum eða
einstaklingum hækki úr 400 þúsund
krónum í 550 þúsund krónur. Kveðið
er á um auknar skyldur á stjórnmála-
flokka til að upplýsa um uppruna
fjármunanna í ársreikningum. Þó
er kveðið á um að styrkir undir 300
þúsundum frá einstaklingum skuli
háðir nafnleynd. Hingað til hefur
þröskuldurinn miðast við 300 þús-
und krónur. Skylt er að birta upp-
lýsingar um alla styrki frá lögaðilum.
Miðað við núverandi forsendur
mun kostnaður ríkissjóðs aukast
um 96 milljónir króna ár hvert vegna
tólf milljóna króna greiðslunnar til
hvers þingflokks. Gert er ráð fyrir
því í frumvarpinu að sá kostnaður
muni nýtast flokkunum til reksturs
skrifstofu.
Að auki má gera ráð fyrir útgjalda-
aukningu á hverju kosningaári.
Hefðu lögin til að mynda verið í
gildi í fyrra hefði þurft að greiða 27
milljónir króna til þeirra níu stjórn-
málasamtaka sem buðu fram í öllum
kjördæmum. Þá er gert ráð fyrir því
í frumvarpinu að tölurnar komi til
með að hækka í samræmi við breyt-
ingar á vísitölum verðlags og launa.
Þá herma heimildir Fréttablaðsins
að formenn þingflokka muni eftir
helgi funda vegna fjölgunar aðstoð-
armanna um áramótin. Þeirri lend-
ingu virtist hafa verið náð en fækkun
í Flokki fólksins getur haft áhrif á
það. Samkomulagið hljóðaði upp á
að sautján nýir aðstoðarmenn tækju
til starfa á kjörtímabilinu og skyldi
þeim úthlutað samkvæmt hlutfalls-
legum styrk flokkanna. Miðað við
nýjan fjölda í Flokki fólksins myndi
styrkur þingflokksins ekki nægja
til að fá aðstoðarmann úthlutaðan.
Hann myndi skiptast að jöfnu milli
Samfylkingarinnar og Miðflokksins.
Ólafur Ísleifsson og Karl Gauti
Hjaltason, nú óháðir þingmenn, eiga
ekki rétt á aðstoð. Breytingar urðu
á nefndarsetu þeirra í gær. Ólafur
Ísleifsson er nú í atvinnuveganefnd
en Inga Sæland í fjárlaganefnd í
hans stað. Þá eru Ólafur og Karl ekki
lengur í Norðurlandaráði eða Vest-
norræna ráðinu. joli@frettabladid.is
Nær hundrað milljónir árlega
frá ríkissjóði til þingflokka
Í frumvarpinu er gert ráð fyrir að aukið fjármagn muni nýtast flokkum til reksturs skrifstofu. Fréttablaðið/Ernir
Gert ráð fyrir að stjórn-
málasamtök með
minnst einn kjörinn
þingmann eigi rétt á 12
milljónum úr ríkissjóði
á ári. Þakið á styrkjum
einstaklinga til flokka
verður einnig hækkað
úr 400 þúsund í 550
þúsund krónur á ári.
Kostnaður ríkissjóðs
mun aukast um 96 milljónir
á ári vegna breytinganna.
8 . d e s e m b e r 2 0 1 8 l a u G a r d a G u r4 f r é T T i r ∙ f r é T T a b l a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
1
A
F
-7
A
9
0
2
1
A
F
-7
9
5
4
2
1
A
F
-7
8
1
8
2
1
A
F
-7
6
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K