Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 102
bækur
Silfurlykillinn
HHHHH
Sigrún Eldjárn
Framtíðin er komin. Systkinin
Sumarliði og Sóldís eru ásamt pabba
sínum að flytja í nýtt hús sem er gult
og hét víst einu sinni Strætó númer
sjö. Afi pabba sagði honum sögur
af því að þegar hann var lítill hefðu
svona „strætóar“ verið úti um allt og
notaðir til að flytja fólk milli staða.
Krökkunum finnst það skrýtin til
hugsun enda er heimurinn sem
þau búa í afskaplega ólíkur okkar.
Þar hafa margar spár samtímans
ræst og lífið snýst um lífsbaráttuna í
sinni tærustu mynd. Dagurinn fer að
mestu í að leita að mat og einhverju
nýtilegu og á kvöldin þarf að verja
fátæklegar eigur fyrir öðrum. En
einn daginn verður stelpan Karitas
á vegi þeirra og hún býr yfir miklu
leyndarmáli.
Sigrún Eldjárn er einstaklega
afkastamikill og fjölhæfur rithöf
undur. Eftir hana eina liggja 60 titlar
frá árinu 1980 fyrir börn á öllum
aldri og 15 ljóðabækur til viðbótar
þar sem bróðir hennar Þórarinn
Eldjárn yrkir ljóðin en Sigrún mynd
skreytir, að ógleymdum öllum þeim
fjölda verka annarra höfunda sem
hún hefur myndskreytt. Kynslóðir
þekkja bækurnar um Kugg og Mál
fríði og BéTvo svo dæmi séu tekin
og þá má heldur ekki gleyma því að
hún er einn afkastamesti þríleikja
höfundur landsins, og má þar nefna
Safnabækurnar, Eyjubækurnar og
sögurnar frá Skugga
skeri. Hún hefur fylgt
kynslóðum íslenskra
lesenda fyrstu skrefin
og séð til þess að ungir
bókaormar hafi nóg að
bíta og brenna.
Silfurlykillinn hefur
flest höfundarein
kenni Sigrúnar Eld
járn, glaðlegt yfir
bragð, fyndna og
hressa krakka, ævintýralegt sögu
svið og ráðgátu að ógleymdum
einstaklega fallegum myndum og
myndskreytingum. Undirtónninn
er þó alvarlegri en oft áður, tæknin
sem við reiðum okkur svo mikið á
er horfin og með henni í raun sam
félagið sjálft. Hlutir sem við teljum
verðmæti eins og tölvur og bílar
eru harla gagnslausir og
helst nýtilegir sem bygg
ingarefni. Þó bókin gerist
í framtíð þar sem maður
inn hefur eyðilagt bæði
umhverfi sitt og samfélag
má þar einnig finna hlið
stæður við aðstæður
flóttafólks í samtímanum
og margt sem vekur les
andann til umhugsunar.
Lífið er þó ekki alslæmt
og krakkarnir gleðjast, leika sér og
aðlagast, alveg eins og krakkar gera
svo vel á öllum stöðum og tímum.
Bókin er þannig ekki harmagrátur
yfir örlögum heimsins eða dystópísk
hörmungasaga heldur spennandi og
full af gleði og von en líka spegill á
samtímann og samhengi lífsbaráttu
fjölskyldunnar við tæki eins og far
síma vekur upp þarfar spurningar
um gildismat.
Þá má ekki láta hjá líða að minnast
á hversu fallegur prentgripur bókin
er en Sigrún brýtur hana um sjálf.
Letrið er bæði læsilegt og skýrt og
skiptir um lit þegar sögusviðið breyt
ist, pappírinn þykkur svo myndirnar
sem að sjálfsögðu eru eftir Sigrúnu
sjálfa njóta sín einkar vel. Það rímar
vel við það stef í sögunni að eitt af því
fáa úr okkar tíma sem hefur haldið
og jafnvel aukið við gildi sitt eru
bækur.
Brynhildur Björnsdóttir
NiðurStaða: Einstaklega falleg
bók með spennandi og léttu yfir-
bragði en áhugaverðum og þyngri
undirtóni. Sigrún Eldjárn í fanta-
formi.
Silfurlykill að framtíðinni
Tv æ r b a r n a b æ ku r myndskreyttar af Rán Flygenring eru meðal jólabóka þessa árs, Sagan af Skarphéðni Dungal þar sem Hjör
leifur Hjartarson skrifar textann
og Ótrúleg ævintýri Brjálínu sem
er saga eftir þýska höfundinn Finn
Ole Heinrich.
Teikningarnar í þessum tveimur
bókum eru afar ólíkar í stíl. „Bókina
um Skarphéðin Dungal vann ég
náið með Birnu Geirfinnsdóttur
bókahönnuði og eru myndirnar í
bókinni nokkuð ólíkar því sem ég
hef áður gert,“ segir Rán en um er að
ræða grafískar klippimyndir í bland
við línuteikningu. Í bókinni um
Brjálínu er á hinn bóginn að finna
pennateikningar sem fléttast inn í
textann sem útskýringarmyndir,
aukakaflar og styttri teiknimynda
sögur. „Það er svo margt meira
fólgið í því að myndlýsa bók en bara
að teikna, það þarf að móta rödd og
stíl, ákveða með hvaða hætti sam
spil texta og mynda á að vera, raða
texta á opnur og fá svo allt til að
flæða, svo eitthvað sé nefnt.“
Hún hefur áður unnið með
Hjörleifi, þau sendu frá sér met
sölubókina Fuglar á síðasta ári, og
nokkrum sinnum með FinnOle.
„Það er ekkert sjálfgefið að teikn
arar og höfundar geti unnið saman.
Það er alltaf jafn gaman að upp
götva hversu vel myndheimur minn
passar við orðheima þessara tveggja
höfunda,“ segir hún.
Mestu verðlaunin
Rán hefur hlotið ýmis verðlaun á
ferlinum. Fyrsta barnabók Ránar
og FinnOle fékk Barnabókaverð
laun Þýskalands, þau Hjörleifur
fengu fyrr á þessu ári Barnabóka
verðlaun Reykjavíkurborgar fyrir
Fugla auk tilnefningar til Íslensku
bókmenntaverðlaunanna í flokki
barnabóka, líkt og þau hlutu fyrir
Söguna um Skarphéðin Dungal. Rán
segir vissulega gaman að fá verðlaun
og viðurkenningar en mestu verð
launin séu þegar höfundur texta og
teikninga tengja og til verður ein
rödd.
Og samstarfi Ránar við þessa tvo
höfunda er ekki lokið. Fyrir stuttu
kom út í Þýskalandi ný bók þeirra
FinnOle, Ferðin í miðju skógarins.
„Hún fjallar um mann sem stendur
andspænis því að verða faðir í
fyrsta skipti. Í leit að svörum um
hverju góður faðir þarf að búa yfir
flýr andhetjan út í skóg til að leita
uppi ræningja sem enginn hefur séð
en allir hræðast, þann sem sögu
hetjan telur að geti kennt honum
Að móta rödd og stíl
Rán Flygenring myndskreytir tvær barnabækur í þessu jóla-
bókaflóði. Er að vinna í næstu bókum og þar á meðal er fyrsta
barnabók hennar sem hún myndskreytir vitanlega sjálf.
Bókin um Skarphéðin er frumleg, bæði þegar kemur að teikningum og texta.
Mynd úr hinni skemmtilegu bók um Brjálínu.
„Það er svo margt meira fólgið í því að myndlýsa bók en bara að teikna,“ segir Rán. FRéttaBlaðið/ERniR
allt það helsta í föðurfræðum, eins
og það að kveikja eld og veiða sér
til matar.“ Líkt og í bókunum um
Brjálínu Hansen tvinnast í bókinni
myndir og texti saman í eina heild
þar sem teikningarnar innihalda
upplýsingar sem dýpka söguna og
breikka sjónarhorn lesandans.
Ekki bundin neinum stað
Rán er nýflutt til Íslands, hefur búið
hér síðan í haust. „Ég hef verið á
flakki um heiminn en fyrir um sjö
árum síðan keypti ég mér miða til
Japans aðra leið til að sjá hvort ég
gæti séð fyrir mér með því að ferðast
um heiminn og teikna. Vinna mín
er þess eðlis að ég er ekki bundin
neinum stað og það sama á við um
kærastann minn sem er fæddur og
uppalinn á NýjaSjálandi og hefur
heldur ekki fest rætur neins staðar.
Nú þegar aðstæður okkar hafa
breyst og þriðji aðili bæst við teym
ið höfum við ákveðið að gefa hefð
bundnu heimilishaldi tækifæri.“
Rán er að vinna í næstu bókum,
þar á meðal er fyrsta bókin þar
sem hún er höfundur bæði mynda
og texta. Auk þess vinnur hún að
nýrri bók með Hjörleifi og gerir
teikningar við barnabók eiginkonu
FinnOle, Ditu Ziprich, sem kemur
út haustið 2019.
Kolbrún
Bergþórsdóttir
kolbrun@frettabladid.is
Það ER alltaF jaFn
gaman að uppgötva
hvERsu vEl myndhEimuR
minn passaR við oRðhEima
ÞEssaRa tvEggja höFunda.
8 . d E S E m b E r 2 0 1 8 L a u G a r d a G u r62 m E N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
1
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
9
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
F
-7
F
8
0
2
1
A
F
-7
E
4
4
2
1
A
F
-7
D
0
8
2
1
A
F
-7
B
C
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K