Fréttablaðið - 08.12.2018, Blaðsíða 37
„Stundum fæ ég bara nóg og bið fólk sem ég er að hitta að tala um allt annað en bókina við mig. Get ekki meira af sjálfri mér,“ segir Fríða og hlær. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Konur með meira olnbogarými
Hvað lest þú? Hvað finnst þér spenn-
andi?
„Ég les mikið af nýjum breskum
og bandarískum verkum og reyni að
lesa nýjar og spennandi þýðingar.
Svo er ég alltaf að lesa íslenska höf-
unda. Koma mér upp minni eigin
bókmenntagráðu.“
Greinir þú nýja stefnu eða tísku-
strauma?
„Já, mér finnst verk höfunda vera
að styttast. Setningar að styttast,
prósinn að meitlast. Hann er mynd-
rænni,“ segir Fríða og segist velta
því fyrir sér hvort þessi þróun fylgi
tækninni.
„Mér finnst þetta áberandi hjá
ÉG FÉKK GÓÐAN MEÐ-
BYR MEÐ MINNI FYRSTU
LJÓÐABÓK OG BJÓST VIÐ
AÐ NÆSTA BÓK FENGI EKKI
JAFN GÓÐAR VIÐTÖKUR.
SVONA EINS OG ÞAÐ VÆRI
ÓSKRIFAÐA REGLAN.
SVONA „MY SHITTY
SECOND“.
flottum kvenrithöfundum í Skand-
inavíu og Bandaríkjunum. Þær virð-
ast fara eftir ráðum Sigurðar Pálsson-
ar, að delete-takkinn er mikilvægasti
takkinn. Ég er sannfærð um að þetta
heldur áfram að þróast í þessa átt.
Þegar tískustraumar koma þá verð-
ur til samtal, fólk fer að svara hvert
öðru. Og í þessu samhengi finnst mér
konur vera með meira olnbogarými
til að skrifa til höfuðs „stóru skáld-
sögunni“. Mér finnst þetta allt saman
mjög áhugavert.“
Sat í aftursætinu og las
Fríða er alin upp í Kópavogi og
áhugann á bókmenntum segir hún
sjálfsprottinn.
„Ég hef skrifað síðan ég var barn.
Ég skil það varla ennþá af hverju
ég varð svona mikill bókaormur. Í
Kópavogi snerist allt um fimleika
og fótbolta og foreldrar mínir héldu
ekki mikið að mér bókum. Pabbi er
ljósmyndari, ferðaðist oft um landið
með hópi náttúruljósmyndara. Hann
tók mig oft með í þessar ferðir þegar
ég var lítil og ég sat í aftursætinu og
las. Kannski kviknaði áhuginn þar.“
Fríða stundaði nám í heimspeki
við Háskóla Íslands og seinna meist-
aranám í ritlist. Þar gafst henni færi
á að koma skáldskapnum í farveg.
„Ég skrifaði ljóðabók í menntaskóla,
aðra í heimspekinámi og enn aðra í
ritlist. Námið þótti mér gott. Í pass-
lega stórum hópi fólks skapast traust.
Þá lærir maður að vera heiðarlegur
í skáldskapnum, gagnvart sér og
öðrum. Maður er auðvitað með
lífið í lúkunum þegar maður treystir
öðrum fyrir því sem maður er að
hugsa og skrifa.“
ÞÆR VIRÐAST FARA EFTIR
RÁÐUM SIGURÐAR PÁLS-
SONAR, AÐ DELETE-TAKK-
INN ER MIKILVÆGASTI
TAKKINN.
Lesið brot úr bók Fríðu Ísberg,
Kláði, á +Plús síðu Fréttablaðsins.
Fréttablaðið +Plús er eingöngu
í Fréttablaðs-appinu eða í
PDF-útgáfu blaðsins sem er
aðgengileg á frettabladid.is.
+PLÚS
Ómissandi í jólabaksturinn!
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
9
10
9
9
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 37L A U G A R D A G U R 8 . D E S E M B E R 2 0 1 8
0
8
-1
2
-2
0
1
8
0
4
:1
4
F
B
1
2
0
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
2
0
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
1
A
F
-D
8
6
0
2
1
A
F
-D
7
2
4
2
1
A
F
-D
5
E
8
2
1
A
F
-D
4
A
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
1
2
0
s
_
7
_
1
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K