Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Blaðsíða 6

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Blaðsíða 6
FRÉTTIR ÚR SAFNAHEIMINUM Hver er helsta áskorunin í starfinu? Inga Hlín Valdimarsdóttir safnstjóri Minjasafns Egils Ólafssonar Pegar ég tólc við starfinu á Hnjóti fyrir rúmum tveimur árum, kom það mér mest á óvart hvað það er í mörg horn að líta og hversu mörgum hlutverkum einyrki á safni þarf að sinna. Ég er allt í senn safnstjóri, rekstrarstjóri, markaðsstjóri, net- stjóri, verslunarstjóri, veitingastjóri, starfsmannastjóri, verlcefnastjóri, viðburðastjóri, umsjónarmaður fast- eigna, ljósmyndari og ræstitæknir. Ég er örugglega að gleyma einhverju, en þegar svo mörg verkefni eru aðkallandi þá getur reynst þrautin þyngri að hafa yfirsýn og ná að sinna öllu. Það er, að mínu mati stærsta áslcorunin í þessu krefjandi, en þöl- breytta og skemmtilega starfi. Hjörtur Þorbjörnsson safnstjóri Grasagarðs Reykjavíkur Helstu áskoranir sem mæta starfsmönnum Grasagarðsins daglega má finna í samspili hefðbundinnar safnastarfsemi og þess opna og al- menna rýmis sem garðurinn er. Varð- veisla safngripanna, hátt umhirðustig og friðsældin mynda ákveðinn og að mörgu leyti óskilgreindan ramma sem gerir garðinn að vinsælum áfangastað Reykvíkinga til útivistar. Eigandi safnsins, almenningur, hefur því oft á tíðum miklar væntingar um ótakmarkað aðgengi og góða aðstöðu til útivistar í garðinum. Áskorunin felst því meðal annars í því að mæta þessum væntingum en um leið koma í veg fyrir að slíkar kröfur komi niður á varðveislu safngripanna, fræðslu um þá og jöfnu aðgengi allra að þeim. Þorgerður Ólafsdóttir safnstjóri Nýlistasafnsins Sporna gegn tímanum - sem er að gera hið ómögulega, byggja upp hug- lægt þol maraþonhlauparans vitandi að marlcið er langt úr augnsýn, spyrja í sífellu af hverju en einnig af hverju ekki, víla og díla, spyrna gegn stofn- anaminni - og gleymsku. Hafa þriðja augað opið og halda áfram. Fyrsti doktorinn Safnafræði hefur verið kennd við Háskóla íslands um ára- raðir, í einstökum námskeiðum, en greinin tók stórt stökk árið 2009 þegar farið var að bjóða uppá sérstalca námslínu í fræðunum á framhalds- stigi. Flestir nemendur stunda námið til MA prófs, en nokkrir nemendur leggja stund á fræðin til doktorsprófs. Fyrsti doktorsneminn í safnafræði við Háskóla íslands, Arndís Bergsdóttir, varði ritgerð sína þann 25. ágúst 2017. Ritgerðin heitir í íslenskri þýðingu „(Ó)sýnileg: Samofin fjarvera kvenna á íslenskum söfnum og mótun femínískrar safnafræði.“ í ritgerðinni fjallar Arndís um íslensk menningar- minjasöfn og heldur hún því fram að almennt sýni söfnin enfaldaða og ein- hæfa mynd af framlagi kvenna. í sum- um tilfellum sleppa söfn jafnvel að minnast á þátt kvenna í sögum sam- félagsins og þjóðarinnar. Arndís gerir því skóna að rekja megi ástæður þessa til kerfislægrar og hugmyndafræði- legrar nálgunar safna á viðfangsefni sín, þar sem karllæg gildi ráða ríkjum. Reynsla karla er álitin verðugra við- fangsefni í starfsemi safna svo sem þegar kemur að söfnun efnislegra heimilda og við gerð á frásögnum í sýningarrýmum safna. í ritgerðinni gerir Arndís þessa fjar- veru eða ósýnileika lcvenna og fram- lags þeirra að sérstölcu umíjöllunar- efni og heldur því fram að skorturinn á framlagi kvenna í starfsemi safna verði að skoða sem mikilvægar og merlcingabærar vísbendingar við mat á starfsemi safna. Sé horft á menn- ingarminjasöfn með þessum hætti, hefur Arndís smíðað gagnrýnið sjón- arhorn sem getur nýst við mat á starf- semi safna og stuðlað meðal annars að auknu jafnræði í heimildasöfnun og sýningaframsetningu safna. Ritgerð Arndísar í heild er hægt að nálgast á Háskólabókasafni-Lands- bókasafni og hluta hennar í ritrýndum tímaritum á www.leitir.is. 6

x

Safnablaðið Kvistur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.