Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 17

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 17
Nóa, að kútterinn væri einhverskonar björgun fyrir fólk. Hugmyndin ein- skorðast eklci bara við fólkið á Alcra- nesi eða íslandi, heldur allt mannkyn, enda verkefnið hluti af alþjóðlegri hreyfingu um gildi þess að varð- veita efnislegar minjar úr fortíðinni. Hreyfinguna er lcannski eklci fjarri lagi að kenna við trúarbrögð, eins og David Lowenthal hefur haldið fram. En þegar rætt er um menningararf birtist, að mati hans, „sjálfsmeðvitund eins og gert er í trúariðkunum."8 Travis DeCook hefur bent á að Sálu- hjálparskipið felur í sér tengsl milli hugtaka á borð við minni, varðveislu, val og hjálpræði.9 Örkin hans Nóa fær það hlutverk að vera „vöruhús" Guðs, fyllt af lífverum sem nutu náðar hans til að lifa. Örkin verndar lífverurnar fyrir flóðinu og gefur þeim tækifæri til áframhaldandi lífs, sem mögulega er að einhverju leyti betra en það var áður. Ég held að við getum yfirfært þessar hugmyndir DeCoolc yfir á kútter Sigurfara og spurt: Hvaða að- stæður geta orðið til þess að hægt sé að líta á skipið sem Sáluhjálparskip? Hverju getur lcútter Sigurfari bjarg- að frá meinum? Við getum kannski dregið fram tvö svör við þessum spurningum. Fyrsta svarið liggur í minni. En skipið getur, eins og það er í dag, verið vitnisburður um efnislegt minni. Áþreifanleg og ein öflugasta leiðin að skilningi á því hvernig mað- urinn bar sig að af þekkingu við að setja það saman. Skipið getur jafn- framt komið í veg fyrir dofa, bæði í huglægum og lílcamlegum skilningi. En ekkert getur komið í stað minnis efnisins við að miðla reynslu, búa til og viðhalda huglægu og líkamlegu minni af svona skipi en skipið sjálft. Kútter Sigufara er því hægt að líta á sem hvatningu - eða sáluhjálp - fyr- ir minni sem felur í sér kröfu um sannleika. Kútter Sigurfari í því formi sem hann er í dag er efnislegur sann- leikur. Verði hugmyndir um að rífa hann niður munum við missa hluta af sannleiknum. En mjög fá slík skip eru ennþá til í heiminum. Ótti um slíkan missi hvílir að baki mótbárum um að setja menningarminjar, eins og skipið kútter Sigurfara, í annað geymslu- form minninga. Pýski rithöfundurinn Bernhard Schlink orðaði þennan ótta þannig að hann væri „ótti um að sannleilcur hverfi, eklci eingöngu með ímyndunarafli eða tilbúningi vel eða illa meinandi höfunda, heldur einnig með sönnum en einhæfum og afvegaleiðandi hliðum á því sem gerðist."10 Schlink hefur í huga hel- för nasista í Pýskalandi þegar hann skrifar þessi orð. Ég tel hins vegar að þau eigi einnig vel við um sjóför og sjómennsku í fortíð og nútíð - eins og tímabilið þegar skútur voru upp á sitt besta. Fjölmargt í tengslum við sjöför og sjómennsku er bæði ímyndað og afvegaleiðandi meðal annars fyrir þá sök að við höfum takmarkaðan að- gang að heimildum og þar með óljósa þelckingu á því sem tengist tælcjum og slcipum þess tíma. Flest af þeim upplýsingum er á prenti eða í minni fóllcs, en elcki í efnislegu formi eins og lcútter Sigurfari er í dag. Við þurfum því að reiða olckur á ímyndunaraflið og ályktunarhæfnina, með öllum þeim annmörkum sem maðurinn hefur fyrir slíkt starf. Samantekt Ég hef reynt hér að framan að bregða ljósi á þann vanda sem blasir við í tengslum við kútter Sigurfara. Ég hef gripið til þess ráðs að nota tvær sterkar og lífsseigar sögur af skipum, Fíflaskipið og Sáluhjálparskipið, til að sýna fram á vandann. Önnur er dæmisaga en hin er slcopstæling að mati sumra. Kannski er hægt að segja að vandinn einlcennist af tog- streitu milli heimsku og fyrirhyggju, óskhyggju og aðstæðum, þekk- ingarleysis og þeklcingar, óreiðu og skipulags, svo gripið sé til nolckurra andstæðupara sem hægt er að draga upp í krafti sagnanna. Það er engin sérstök ástæða til þess að gera upp á milli þessara samlík- inga sem ég hef haft við um lcútter Sigurfara. Miklu fremur er mikilvægt, að ég tel, að opna fyrir hreinskiptna umræðu um það sem aflaga hefur farið, og kenna má við heimsku, og svo mat um gagnsemi varðveislunnar á Sigurfara. Þeir sem borið hafa hit- ann og þungann af varðveislu skips- ins hafa haldið því fram að kútter Sigurfari sé eklci vandamál sem snýr fyrst og fremst að íbúum Akraness. Þeir hafa talað um skipið sem „þjóðar- skútu“, þar sem það sé ekkert annað sambærilegt skip varðveitt hér á landi.11 En líkingarmáiið um „þjóðar- skútuna" vísar einnig til samfélags- legrar ábyrgðar íslendinga sem hafa komið að varðveislu þess í gegnum opinbera sjóði. Sé það svo, að kútter Sigurfari og framtíð hans sé mál sem snerti marga - og jafnvel fleiri fyrir utan þjóðernisleg mörk íslands - er lcannski mikilsvert að opna fyrir hreinskiptna umræðu á opinberum vettvangi. Draga hana fram úr hönd- um þeirra sem hingað til hafa borið hita og þunga af slcipinu, ræða þennan tilbúna heim safnarans opinskátt með þeim kostum og göllum sem fífla- skapur og sáluhjálp fela í sér. 1 Arnaldur Indriðason. 2000. Mýrin. Reykjavík: Vaka- Helgafell. Bls. 233. 2 Marx, Karl. 1968. „Átjándi braumaire Lúðvíks Bónaparte.“ Úrvalsrit 11. Sigfús Daðason þýddi. Reykjavík: Heimskringla. Bls. 119. 3 ENG. 1977. „Þjóðhátíðardella eða söguleg björgunar- starfsemi?“ Þjóðviljinn, 28. ágúst, bls.13. 4 Sama heimild, bls. 13. 5 Sama heimild, bls. 13. 6 Gunnlaugur Haraldsson. 1985. „Kútter Sigurfari 1885-1985“ Sjómannadagsblað Akraness. Bls. 5-36. 7 N.N. 1982. „Viðgerð og varðveizla kútters Sigurfara er eitt sameiginlegra verkefna þjóðarinnar." Morgunblaðið, 27. október, bls. 48. 8 Lowenthal, David. 1998. The Heritage Crusade and the Spoils of History. Cambridge: Cambridge Uni- versity Press. 9 DeCook, Travis. 2008. „The Ark and Immediate Revelation in Francis Bacon's New Atlantis.“ Studies in Philology 105 (1): 103-122. 10 Schlink, Bernhard. 2010. Guilt about the past. London: Beautiful Books. bls. 119. 11 N.N. 2006. „Stórhuga áform um uppbyggingu báta- húss.“ Ægir 99(3): 15-16. bls. 15. Sigurjón Baldur Hafsteinsson, prófessor 17

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.