Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 25

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 25
VIÐTAL VIÐ SIGRIÐI SIGURÐARDOTTIR, SAFNSTJORA BYGGÐASAFNS SKAGFIRÐINGA Safnstjóri Byggðasafns Skagfirðinga er Sigríður Sigurðardóttir. Undirforystu Sigríðar hlaut safnið íslensku Safnaverðlaunin árið 2016 fyrir framúrskarandi starfsemi sem einkennist afskýrri stefnu og áherslu á samstarfviðfólk og stofnanir í nærsamfélaginu, á íslandi og á alþjóðavettvangi. Safnið er dæmi um að byggðasöfn geta sóttfram á nýjum vígstöðvum og þannig styrkt stöðu sína. Ritnefndarkonur Kvists þær Inga Lára, Sigrún og Ingunn spurðu Sigríði safnstjóra út í starfsemi safnsins, rannsóknir þess og helstu áskoranir á löngum starfsferli. Hverjar eru helstu breytingarnar á starfstíma þínum? Fjórða ágúst á þessu ári hef ég verið 30 ár í starfi. Helstu breytingar sem ég skynja er meiri meðvitund samfélags- ins gagnvart byggðasafninu, sem helg- ast að ég held fyrst og fremst af því að fólk hittir starfsmenn safnsins um víðan völl. Pótt að ekki allir geri sér 100% grein fyrir því hvaða hlutverki safnið þjónar að þá eru margir búnir að átta sig á að það er meira heldur en bara sýning í gömlum torfbæ. Ég held að flestir hafi þetta á hreinu. Hins vegar mættu einstaklingar í pólitísku umboði, sem taka að sér stjórn þess fyrir hönd Skagfirðinga, vera meðvit- aðri um starfsemina. Þegar ég kom hingað fyrst var fátt í gangi. Bara eiginlega ekkert. Sýslunefndarfulltrúum, þeim sem réðu mig til starfsins, var svo gjörsam- lega fyrirmunað að átta sig á því hvað ég ætti að vera að gera, að þeir buðu mér ekki einu sinni skrifstofuaðstöðu. Þannig að þótt að menn og konur hafi þá, árið 1987, viljað gera hag safnsins sem mestan að þá náði hugsunin ekki lengra en til sýningarinnar í gamla bænum í Glaumbæ. Sýslunefndarfull- trúar vildu endilega fá starfsmann norður af því að Þór Magnússon, þáverandi þjóðminjavörður, sagði þeim í óspurðum fréttum að þannig væri komið fýrir sýningunni í gamla bænum í Glaumbæ að það væri best að hafa bæinn tóman og að bjarga þeim munum sem þar væru, ef þeir ætluðu sér eklti að bæta hag byggðasafnsins. Þá spruttu menn upp og vildu fá starfs- mann. Þór benti þeim á mig. Fyrstu fjögur árin var ég ráðin að hálfu af sýslunefnd sem safnstjóri byggðasafns- ins og í hlutastarf að sumri hjá Þjóðminjasafninu sem minjavörður. Þú ert þá fyrsti starfsmaður safnsins? Ég var fyrsti fastráðni starfsmaðurinn. Áður höfðu verið gæslumenn á sumrin sem opnuðu og lokuðu bænum og lögðu aðgangseyri inn á sýslunefndarskrifstofuna þar sem þá var tekið við þeim. Hver var þín hugmynd um safnið í upphafi og hvernig þróaðist sú hugmynd um hlutverk safnsins í samfélaginu? Mér hefur alltaf fundist að safnið ætti að safna heimildum, í þrívíðu sem og í öðru formi til að bæta við og miðla þekkingu. Ég gerði mér fljótlega ljóst, af því að ég kom frá Þjóðminjasafninu, að fyrsta vers væri að tryggja safn- kostinn, þann sem var hér til staðar og sem var allur í sýningu í gamla bænum í Glaumbæ. Hvort sem það voru hálcarlasóknir eða fuglafleka- niðurstöður frá Drangey, með meiru. Bærinn og skúr sem stóðu á safnlóð- inni þjónuðu sem geymslur. Það fýrsta sem ég gerði var að finna geymslu til að létta á bænum og hefjast handa við skráningu á því sem hafði elcki verið skráð frá 1963, en um það hafði Þór Sigríður Sigurðardóttir, með gjafábréfum afhendingu safngripa Magnússon séð. Frá 1963-1987 virðist hafa rílct „status quo”. Safninu höfðu borist ýmsir hlutir sem voru fóstraðir í bænum, lcannski skráðir á blað, af sumu fannst afrit inni í slcjalasafni. Aðfangabólc, sem Þór hafði slcilið eftir í nolckur laus blöð, var þéttskrifuð. Maður gat samt áttað sig á flestum gripum sem þarna voru. Svo þurfti að spyrja þá sem voru á vaktinni þegar gripirnir komu. Það tókst nokkuð vel að fá þær upplýsingar. Ég var heppin, vil ég meina. Fljótlega eftir að ég kom norður var ég kosin í Þjóðminjaráð fýrir hönd safnamanna. Þar kynntist ég alls kyns vanda og lausnum. Bara það að kynnast því þar hvað starfsmenn á öðrum söfn- um voru að brasa og að hverju önnur söfn voru að vinna og að hverju eklci, styrkti mig í starfinu. Ég var líka hepp- in að því leyti að hér voru ekki mörg einkasöfn. Nú eru hér á svæðinu tvö stór samgöngusöfn í einkaeign með sýningar. Árið 1992 hafði þáverandi hreppstjóri Hofshrepps samband. 25

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.