Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 37

Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 37
HUGLEIÐING SAFNMANNSINS Hvað heitir saf nið? Hugleiðing um vörumerki safna Nafn safns er eitt það fyrsta sem skilgreinir safnið fyr- ir umheiminum og er stór þáttur í vörumerki þess ásamt sjálfri byggingunni og myndmerki (lógó). Vörumerki nær þó yfir miklu breiðara svið. Sterlct vörumerki birtist í öllu, stóru sem smáu sem safnið stendur fyrir, efnisvali á sýningum, viðmóti starfsfólks og mörgu öðru. En séu þessir þrír grunnþættir, nafn, mynd- merki og bygging ekki í samhljómi er hætt við að aðrir þættir sem falli undir vörumerki safnsins séu erfiðir í markaðslegu tilliti. - Byggðasafn Dalamanna - Hvalasafnið á Húsavík - Landbúnaðarsafn íslands - Listasafn Árnesinga - Sauðfjársetrið á Ströndum - Sjóminjasafn Austurlands - Hönnunarsafn fslands Þegar skoðuð eru nöfn þessara safna hvort sem er rótgróinna safna eða nýrra, sést vel að nöfnin eru eðlileg og í takt við hlutverk og markmið viðlcomandi safns. Nafn safnsins er þannig lýsandi fyrir starfsemi þess. Þó er þetta ekki alltaf svona einfalt. Hér verður farið aðeins inná þetta svið í þeirri viðleitni að velcja athygli á mikilvægi nafna. Þegar snöggt er litið yfir safnaveröldina hér á landi eru nöfn og heiti safna nokkuð frum- skógarkennd. Fjölgun sýningarhúsa, tilfærsla sýninga, ný sýningaraðstaða eða lokun sýninga, sameining safna jafnvel við aðrar menningarstofn- anir eru allt aðstæður sem kalla á ígrundun á heiti safns. Nafn tengt við byggingu Nafn safnsins á gjarnan bæði við stofnunina og sjálfa bygginguna sem hýsir sýningar þess. Þegar Listasafn Árnesinga eða Heimilisiðnaðarsafnið á Blönduósi er nefnt er jafn lílclegt að átt sé við bygginguna eins og sjálfa starfsemina. Nafnið hlutgerist í byggingunni og utanaðkomandi greinir varla safnastofnunina frá sýningaraðstöðunni. Þetta á jafnvel við um Þjóðminjasafn ísland þrátt fyrir að starfsemin sé í fjölmörgum byggingum, því sjálft sýningarhúsið við Suðurgötu er elsta og skærasta stjarna safnastarfsins. Við slíkar að- stæður er marlcaðssetning undir nafni og ásýnd safnsins einföld og augljós. Fjölmörg söfn glíma hins vegar við aðrar aðstæður þar sem nafn endur- speglar marlcmið og hlutverk en byggingin sem hýsir sýningu ber sitt eigið vörumerki og eigið nafn. Gott dæmi um slíkt er sýningarhús Byggðasafns Snæfellinga og Hnapp- dæla staðsett í Norska húsinu í Stylckishólmi. Þar tvinnast saman miðlun á byggðasögu héraðsins sem og saga sjálfs hússins. Vörumerki byggðasögu Snæfellinga og Hnapp- dæla verður sem sagt Norska húsið og byggðasafnsheitið verður að undirtitli. Svipað má segja um Glaumbæ þar sem eru höfuðstöðvar Byggðasafns Skagfirðinga og vefslóðir þessara safna (glaumbaer.is og norskahusid. is) eru til marks um það. í markaðs- legu tilliti er nafn húss mögulega aðgengilegra og meira aðgreinandi en byggðasafnsheitið en jafnframt getur slík nafngift þrengt að safnastarfi þegar miðlun teygir sig út fyrir ramma þessa vörumerkis. Eitt vörumerki eða mörg? Nafngiftir safna geta orðið flóknar þegar söfn sameinast eða minni söfn safnast saman undir væng stærra safns. Byggðasafn Árnesinga er gott dæmi um þetta því bæði er það eitt þeirra safna sem hafa nafn húss sem vörumerlci en einnig hef- ur byggðasafnið önnur söfn undir sinni umsjón.1 Sýning safnsins hefur verið í danska lcaupmannshúsinu, Húsinu á Eyrarbakka, síðan 1995 og síðan þá hefur byggingin verið vörumerki byggðasafnsins. Síðar falla Sjóminjasafnið á Eyrarbakka og Rjómabúið á Baugsstöðum undir starfsemi Byggðasafns Árnesinga og þá verður vandasamt að fella þær safnaeiningar undir vörumerkið „Húsið“ í marlcaðslegu tilliti jafnvel þótt sjóminjar og mjólkurvinnsla myndu falla vel undir vörumerlcið „byggðasafn". Safnið stendur þess vegna frammi fyrir því að kynna þær einingar sérstaklega og undir öðrum hatti. Á nolckrum stöðum undir svipuðum aðstæðum hafa safnaeiningar fengið 37

x

Safnablaðið Kvistur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Safnablaðið Kvistur
https://timarit.is/publication/1310

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.