Safnablaðið Kvistur - 01.09.2017, Síða 40
FRETTIR UR SAFNAHEIMINUM
Flotilla -Ráðstefna lista-
mannarekinna rýma var haldin í
Charlottetown, Kanada, 21-24 sept-
ember 2017. Tilgangur ráðstefnunar
er að styrkja stoðir listamanna-
rekinna rýma, ýta undir samtal
og rannsalca þær hugmyndir og þá
tímatengdu þætti sem nauðsynlegir
eru til sjálfbærrar þróunar lista-
mannarelcinna rýma samtímans.
Nýlistasafnið tekur þátt í ráðstefn-
unni og kynnir m.a. heimildarsafn
sitt um Gjörninga á íslandi
og Heimildarsafn um Frumkvæði
Listamanna í Reykjavík.
www.flotillaatlantic.com
Listahátíðin Cycle var haldin
í þriðja sinn, 1 sept. til 1. október
2017, í menningarhúsum Kópavogs
við Hamraborgina. Hátíðin er vett-
vangur fyrir samtal tilraunakenndrar
samtímatónlistar- og myndlistar, þar
sem listamönnum gefst lcostur á að
ræða saman, gera tilraunir og læra
af hver öðrum. Hátíðin 2017 var til-
einlcuð Fullveldisafmæli íslands og
miðaði að því að veita listamönnum
innblástur fyrir þróun og sköpun
nýrra listaverlca sem verða sýnd
á ári fullveldisafmælisins.
Sjá meira á heimasíðu hátíðarinnar
www.cycle.is
Sequences Myndlistarhátíð
verður haldin í áttunda slciptið í
Reykjavík 6-15 október 2017. Pema
hátíðarinnar í ár er Elastic Hours
og er sýningarstjóri hennar Margot
Norton. Heiðurslistamaður er Joan
Jonas og mun einlcasýning á verkum
hennar opna í Nýlistasafninu,
Marshallhúsi, þar sem úrval verlca
frá mismunandi tímabilum ferils
hennar verða til sýnis.
Sjá meira á heimasíðu hátíðarinnar
www.sequences.is
Sameiginlegt varðveisluhús
á Austurlandi?
Unnið er að gerð forkönnunar á áhuga og þörf safna, sveitarfélaga, stofnana
og fýrirtælcja á Austurlandi á sameiginlegu fjölnota varðveislu- og þjónustu-
húsnæði. Meginhlutverlc þess yrði varðveisla gagna og muna en aulc þess
lcæmi stofnunin til með að annast forvörslu og slcráningu eftir þörfum
hvers og eins notanda. Könnunin er unnin fýrir Safnastofnun Fjarðabyggð-
ar og er hluti af mastersritgerð Steinunnar Maríu Sveinsdóttur fagstjóra
Síldarminjasafns íslands og meistaranema í safnafræði við Háskóla íslands.
Niðurstaða könnunarinnar mun liggja fyrir í lolc þessa árs.
40