Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 40
Það eru skólamálin sem brenna á mér og þar er tvennt sem ég vil sjá ná fram að ganga. Annars vegar stóraukin fræðsla um hinar ýmsu fatlanir og fjölbreyti- leika nemenda í skólakerfinu, og svo aukið eftirlit með framkvæmd eineltisáætlunar í skólum lands- ins,“ segir Eiður Axelsson Welding, nemandi í 9. bekk í Sæmundar- skóla. Eiður fæddist með CP (cerebral palsy). „CP er algengasta orsök hreyfi- hömlunar hjá börnum og ung- mennum en samt veit fólk nánast ekkert um hana,“ segir Eiður sem fékk strax í upphafi skólagöngu sinnar að kenna á því vegna þess að hann haltrar af völdum CP. „Daglegt einelti er veruleiki fatl- aðra barna á öllu grunnskólastiginu og sjálfur lenti ég í hryllilegu einelti vegna fötlunar minnar og mikils stjórnmálaáhuga. Í skólanum var þeirri sögu komið á kreik að CP væri smitandi og eitthvað hræði- legt gerðist hjá þeim sem vinguðust við mig. Því vildi enginn verða vinur minn fyrstu skólaárin en sem betur fer blésu aðrir krakkar á þessa skröksögu og ég hef síðan eignast góða og dýrmæta vini sem reynst hafa mér vel,“ segir Eiður. Í tilviki hans var ekkert að gert í skólanum gagnvart eineltinu. „Það var enginn sem stappaði niður fótum við þessari skemm- andi sögu né öðru einelti fyrr en svo miklu seinna og þá var það orðið of seint. Það var aldrei neitt útskýrt fyrir nemendum en fræðsla hefði breytt öllu ,“ segir Eiður sem á sæti í ungliðahreyfingu ÖBÍ og ungmennaráði heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna. „Það er brýnt að auka eftirlit með framkvæmd eineltisáætlana í grunnskólum. Það má heldur ekki mismuna nemendum. Þegar ófötluð börn lenda í einelti er öllu tjaldað til en þegar minnihluta- hópur fatlaðra barna á í hlut er minna gert. Því miður erum við ekki komin lengra en þetta og því er einlægur ásetningur minn að breyta þessu til hins betra áður en það verður um seinan og ég lýk grunnskólagöngunni á næsta ári,“ segir Eiður og vonar hið besta. „Það er mikilvægt að raddir okkar fái að heyrast og ráðamenn meðtaki það sem við höfum fram að færa. Ég mun gera mitt allra besta til að koma í veg fyrir að aðrir í minni stöðu lendi í því sama og ég og nota reynslu mína til að breyta þessu. Sjálfur er ég alltaf að reyna að díla við sársaukann sem fylgdi eineltinu en næ mér aldrei að fullu.“ Sem flestir taki þátt Elín Hinriksdóttir er formaður málefnahóps ÖBÍ um málefni barna. Hún segir alltof lítið hlustað á börnin sjálf. „Ungmennaþingið er virki- lega þarft og löngu tímabært,“ segir Elín um þingið sem er opið ungu fólki með fatlanir, raskanir og langvinna sjúkdóma en líka systkin þeirra og ungmenni sem eiga fatlaða eða langveika for- eldra. „Það er mikilvægt að heyra raddir barna og ungmenna, hvað þeim finnst sjálfum og hvaða breytingar þau vilja sjá. Þau eru uppfull af hugmyndum og í kjöl- far Ungmennaþingsins er stefnt að stofnun ungmennaráðs innan ÖBÍ,“ upplýsir Elín. Ekki er ætlast til að fólk komi sjálft í pontu og tjái sig heldur verður borðstjóri við hvert borð og í loks dags verða niðurstöður kynntar. „Með Ungmennaþinginu sköpum við vettvang þar sem börn og ungmenni geta rætt sín mál án aðkomu foreldra því það er alltaf hætta á ákveðinni forræðishyggju af hálfu foreldra og fagfólks. Því þykir okkur mikilvægt að hafa þingið foreldralaust,“ segir Elín. „Í kjölfar þingsins mun málefna- hópurinn vinna úr niðurstöðum og kynna þær meðal annars fyrir fulltrúum félagsmálaráðuneytis- ins og menntamálaráðuneytisins sem sýnt hafa þinginu mikinn áhuga,“ upplýsir Elín. „Þetta verður léttur og skemmti- legur viðburður með góðum mat og frábærum skemmtiatrið- um. Við hvetjum sem flesta til að koma og segja skoðanir sínar því ef maður vill ná fram breytingum verður maður að taka þátt,“ segir Elín. Aðgangur að Ungmennaþingi ÖBÍ er ókeypis. Táknmálstúlkur verður á staðnum og komið er til móts við ferðakostnað ungmenna af landsbyggðinni. Skráning þarf að fara fram fyrir 20. febrúar á vefsíðu Öryrkja- bandalags Íslands, obi.is, eða hjá thordis@obi.is. Upplýsingar veitir Þórdís Viborg, starfsmaður ÖBÍ um málefni barna, í síma 530 6700. Raddirnar verða að heyrast Fyrsta ungmennaþing Öryrkjabandalags Íslands verður haldið 9. mars. Þar fá 12 til 18 ára börn og ungmenni tækifæri til að láta raddir sínar heyrast og hafa áhrif á samfélagið. Eiður Axels- son Welding hlakkar mikið til Ungmenna- ráðstefnu ÖBÍ sem getur markað stór tímamót í mál- efnum fatlaðra barna. MYND/ ANTON BRINK 8 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . F E B R ÚA R 2 0 1 9 L AU G A R DAG U R 1 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :0 7 F B 1 1 2 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 5 7 -7 D 2 0 2 2 5 7 -7 B E 4 2 2 5 7 -7 A A 8 2 2 5 7 -7 9 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 1 1 2 s _ 1 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.