Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 88
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is?
Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is.
Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Unnur Axelsdóttir
Hlíðarvegi 11, Kópavogi,
lést þann 14. febrúar sl. á hjartadeild
Landspítalans. Jarðarförin fer fram frá
Kópavogskirkju fimmtudaginn
21. febrúar kl. 13.00.
Stefanía Hjartardóttir
Sveinn Hjörtur Hjartarson Sigurveig H. Sigurðardóttir
Þórunn I. Hjartardóttir Sveinn B. Larsson
Axel Garðar Hjartarson Rannveig Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug vegna andláts og útfarar
okkar ástkæra eiginmanns, föður
tengdaföður, afa og langafa,
Gunnars Ingibergssonar
innanhússarkitekts,
Unnarbraut 24.
Eva Jóhannsdóttir
Bjarki Gunnarsson Ólöf R. Sigurðardóttir
Helena Gunnarsdóttir Benedikt Á. Guðmundsson
Marta Gunnarsdóttir Sæmundur Sævarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Elsku eiginkona mín, móðir og amma,
Svala Hannesdóttir –
Kastenholz
53902 Bad Münstereifel – Iversheim
Euskirchener Str.131,
lést 11. febrúar.
Hún verður jarðsungin þann 8. marz kl. 14.00 í
St. Laurentius kirkju í Iversheim. Þeim sem vilja minnast
hennar bendum við á líknarfélög.
Með kærleik og þakklæti,
Ulrich, Susanne og Freyja
Ástkæri eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Magnús Kristinsson
forstjóri,
lést mánudaginn 11. febrúar á
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju,
fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.00.
Greta Bachmann
Ágústa Kristín Magnúsdóttir Sigurður Jónsson
Kristinn Guðjónsson
Ragnheiður S., Guðrún, Magnús, Ragnheiður K., Kristinn,
Einar og barnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær eiginmaður minn,
faðir, tengdafaðir og afi,
Ástþór Ragnarsson
iðnhönnuður,
verður jarðsunginn frá Neskirkju
föstudaginn 22. febrúar kl. 13.
Elísabet Harpa Steinarsdóttir
Gauti Þór Ástþórsson Ágústa M. Þorsteinsdóttir
Erna Ástþórsdóttir
Þorsteinn Jón Gautason Ástþór Ragnar Gautason
Ásta Þórunn Ólafsdóttir
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug vegna andláts elsku dóttur
minnar, systur, mágkonu og frænku,
Helgu Stefánsdóttur
Keilusíðu 7b, Akureyri.
Sérstakar þakkir til starfsfólks
Heimahlynningar og Sjúkrahússins á
Akureyri fyrir einstaklega góða umönnun.
Stefán Sigurðsson
Lilja, Sóldís og fjölskyldur.
Faðir okkar, Sigurjón Samúelsson, saf naði plötum af ástríðu og átti líka úrval af hljóm-flutningstækjum, allt frá gömlum grammófónum
til nútímagræja. Hann lést 4. ágúst
2017 en það var ásetningur hans að
gefa þessa dýrgripi, það hafði komið
fram í spjalli við hann oftar en einu
sinni. Hann vildi að almenning-
ur hefði aðgang að plötunum,
gæti fengið að heyra tónlist-
ina og njóta hennar. Svo ég
afhenti Landsbókasafn-
inu nýlega safnið, fyrir
hönd okkar bræðra,
mín og Kristins Þor-
bergs,“ segir Samúel
Sigurjónsson vélstjóri.
Samúel er uppalinn
að Hrafnabjörgum við
Ísafjarðardjúp, þar sem
faðir hans var bóndi. Spurð-
ur hvort þeir feðgar hafi oft
verið að hlusta á tónlist saman
svarar hann: „Það kom fyrir, en við
höfðum ekki sama smekk, við pabbi,
ég var meira í nýrri tónlist. Elstu
íslensku plöturnar hans pabba voru
frá 1910, það eru 78 snúninga plötur
úr hertu gúmmíi. Pabbi átti nánast
allar íslenskar 78 snúninga plötur
sem voru gefnar út. Fyrstu plötuna
fékk hann að gjöf, tíu ára gamall,
hún var með Gunnari Óskarssyni,
barnastjörnu þess tíma. Svo fór hann
á sjóinn sem unglingur og safnaði
sér fyrir plötum, átti alltaf nýjustu
plöturnar og var stundum plötu-
snúður á böllum við Ísafjarðardjúp
þar sem hann spilaði bæði nýju og
gömlu dansana. Það voru plötu-
búðir á Ísafirði en hann verslaði víða,
pantaði til dæmis plötur frá Noregi
og Svíþjóð. Harmóníkusnillingarnir
Gellin og Borgström voru í miklu
uppáhaldi hjá honum.“
Alls voru hljómplötur Sigurjóns
orðnar yfir 7.000, f lestar heillegar
og vel með farnar. Í safninu er fyrsta
íslenska harmóníkuplatan sem kom
út, upptaka Jóhanns Jósepssonar
frá Ormarslóni, 78 snúninga plata,
hljóðrituð 1933. Sigurjón átti allar
söngplötur með Einari Kristjáns-
syni og Stefáni Íslandi, allt upp-
runalegar upptökur og báðar plötur
Einars Hjaltested sem teknar voru
upp í New York 1916. Áhugamálinu
fylgdi svo söfnun á fróðleik um tón-
list og tónlistarfólk.
Samúel líst vel á þær aðstæður
sem safnið er nú í á Landsbóka-
safninu. „Þar er tónlistin tekin upp
á stafrænt form og hægt að hlýða á
allt efni sem ekki er varið höfundar-
rétti. Sá réttur varir, að mig minnir, í
70 ár og þannig bætist alltaf við það
sem dettur út úr honum og hægt er
að hlusta á.“
Sýning hefur verið opnuð í
Þjóðarbókhlöðunni á þessum nýja
feng, hljómplötunum og græjunum
frá Hrafnabjörgum.
gun@frettabladid.is
Gáfu þjóðinni gamalt plötusafn
Samúel við safn föður síns sem er til sýnis í Þjóðarbókhlöðunni. Elsti grammófónninn er frá árinu
1914, svokallaður His Master’s Voice trektarfónn, sem enn getur spilað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Safnarinn,
Sigurjón
Samúelsson
á Hrafna-
björgum.
Landsbókasafni Íslands
hefur áskotast yfir 7.000
hljómplötur og eðal
hljómflutningstæki úr
safni Sigurjóns Samú-
elssonar (1936-2017),
Hrafnabjörgum við Ísa-
fjarðardjúp.
Elstu íslensku plöturnar
hans pabba voru frá 1910,
það eru 78 snúninga plötur
úr hertu gúmmíi.
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
5
7
-5
0
B
0
2
2
5
7
-4
F
7
4
2
2
5
7
-4
E
3
8
2
2
5
7
-4
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K