Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 106
Lífið í
vikunni
09.02.19-
16.02.19
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jóhanna Helga Viðardóttir johannahelga@frettabladid.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Gústaf Bjarnason gustaf@frettabladid.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@frettabladid.is, Svava O’Brien svava@frettabladid.is, Örn
Geirsson orn.geirsson@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5077: Atli Bergmann atli@frettabladid.is, Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage
johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is. FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Benedikt Bóas Hinriksson
benediktboas@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is, Viðar Ingi Pétursson vip@frettabladid.is
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is, Guðrún Inga Grétarsdóttir gudruninga@frettabladid.is
„ER ELLY EKKI
ÖRUGGLEGA AMMA ÞÍN?“
Síðastliðið laugardagskvöld var
200. sýningin á leikritinu Elly sem
fjallar um ævi og ástir einnar vin-
sælustu söngkonu Íslands fyrr og
síðar, Ellyjar Vilhjálms, sem Katrín
Halldóra túlkar.
AF HVERJU ÆTTI VOGUE AÐ
HAFA SAMBAND VIÐ MIG?
Pálína
Axelsdóttir
Njarðvík hefur
vakið svo
mikla athygli
á Instagram
að Vogue.com
fjallaði um
hana á vefsíðu
sinni á dög-
unum undir
yfirskriftinni:
„Hittið vinsælasta fjárbónda Ís-
lands á Instagram!“
HELGI BJÖRNS SEMUR
NÚTÍMADANS
Þó svo að listamaðurinn Helgi
Björnsson hafi fyrir löngu sannað
fjölhæfni sína kemur dansáhugi
hans kannski einhverjum á óvart
en í næstu viku verður frumsýnt
dansverk eftir söngvarann.
LOKSINS SÁTT Í EIGIN
SKINNI ÁN EITUREFNA
Anna Gréta
Oddsdóttir
hefur reynt á
eigin skinni
hversu illa
efnamengaðar
snyrtivörur fara
með viðkvæma
húð. Eftir alls konar tilraunir á
sjálfri sér fann hún frelsi með
náttúrlegum snyrtivörum og
opnaði í kjölfarið vefverslunina
elba.is sem merkilegt nokk er
nefnd eftir enska leikaranum
Idris Elba.
Við vörðum mánuði í Grikklandi síðast-liðið sumar að vinna að samstarfsverkefni með grísku hönn-unarstofunni IT’S A
SHIRT. Þau höfðu leitað eftir sam-
starfi, enda hönnunarstofurnar
með svipaða hugmyndafræði; að
auka sem allra minnst á kolefnis-
spor jarðarinnar í öllu ferlinu og
vinna að sanngjarnri framleiðslu,“
útskýrir Halla.
IT’S A SHIRT hannar aðallega
klassískt sniðnar skyrtur og notar
efni frá gömlum efnalagerum í
Aþenu. USEE STUDIO var stofnað
með þeim ásetningi að nota ein-
göngu efnivið sem ekki er fram-
leiddur eftir eftirspurn: hvort sem
það er afgangur fyrirtækja, gamlir
lagerar eða eitthvað í þá átt. „Báðar
stofurnar eru mjög meðvitaðar um
siðferðisleg áhrif tískuheimsins
á jarðríkið, fólkið og náttúruna.
Við vildum sameina krafta okkar í
þessu samstarfsverkefni og nýttum
hugmyndafræði beggja með gömlu
lagerana og úrgangslausa sníða-
gerð sem skilur ekkert efni eftir
þegar sniðin eru klippt í efnið. USEE
STUDIO hefur unnið út frá þeirri
aðferðafræði í hönnunarferlinu,
allir bútar eru nýttir á einn eða
annan hátt,“ segir Helga.
Þær Halla og Helga
höfðu farið í efnaleið-
angra til Berlínar
og Amsterdam án
árangurs. „Það
var ekki fyrr en í
Aþenu þegar við
vorum í efnaleit
fyrir samstarfið
að við duttum
inn á þessar efna-
búðir sem selja
efni frá framleiðslu-
fyrirtækjum sem hætt
eru star fsemi. Þarna
sáum við loks fram á að geta
framleitt heildstæða línu enda um
falleg gæðaefni að ræða,“ útskýrir
Helga og Halla heldur áfram: „Fata-
línan samanstendur af tímalausum
(e. Multi seasonal) f líkum. Þessir
gömlu efnalagerar framleiða ekki
lengur eftir eftirspurn heldur er
það svo að þegar efni klárast þá
klárast þau. Flíkurnar eru þar af
leiðandi framleiddar í litlu upp-
lagi. Við getum því aldrei fram-
leitt stórt upplag sem er bæði gott
og slæmt, það góða er að hver f lík
er í raun frekar einstök og í mesta
lagi til 10 stykki af henni. Það sem
flækir hlutina aftur á móti er að við
þurfum auðvitað stöðugt að vera
á höttunum eftir nýjum efnum
og litum og þannig fer mun meiri
vinna í allt ferlið.“
Aðspurð út í kolefnissporið
við f lutningana segir Halla hluta
línunnar sendan hingað til lands
fyrir íslenskan markað en hinn
helminginn geymdan í Aþenu þar
sem umboðsaðili sér um dreifingu.
„Við erum því ekki að senda vörur
fram og til baka. Við værum auð-
vitað mest til í að geta sent vör-
urnar á milli með lest eða annarri
umhverfisvænni leið en þar sem
Ísland er einangruð eyja og eina
leiðin er f lug- eða sjóleið þá fannst
okkur þetta skásta lausnin. Við
erum auðvitað mjög meðvitaðar
með allt það auka sem fylgir fram-
leiðslu og sölu, við reynum til að
mynda eftir fremsta megni að nota
eins litlar umbúðir og við komumst
upp með.“ bjork@frettabladid.is
Hanna flíkur úr
ónýttum efnalagerum
Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf, stofnendur hönnunar-
stofunnar USEE Studio, fundu stóra afgangs fatalagera í Grikklandi
og ákváðu að hanna og framleiða úr þeim heildstæða fatalínu.
Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf, stofnendur hönnunarstofunnar USEE Studio.
Egaleo fatalínan er til
sölu á vefverslun:
usee.is og verður
til sölu í Zeppelin
Station í Denver
til loka júní. Þar
verður Usee
hluti af pop-up
verslun þar sem
Reykjavík er
þemað.
MYND/OLGA URBANEK
www.dorma.is
VEFVERSLUN
ALLTAF
OPIN
Almennur afgreiðslutími Rvk
Mán. til föst. kl. 10–18 (Holtagörðum)
Mán. til föst. kl. 11–18:30 (Smáratorgi)
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
OPIÐ Í DORMA
Á SMÁRATORGI
ALLA HELGINA
LOKAÐ Í HOLTAGÖRÐUM UM HELGINA
VEGNA ÁRSHÁTÍÐAR STARFSMANNA
HEFÐBUNDINN OPNUNARTÍMI
DORMA Á AKUREYRI OG ÍSAFIRÐI
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R52 L Í F I Ð ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
1
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
2
5
7
-4
1
E
0
2
2
5
7
-4
0
A
4
2
2
5
7
-3
F
6
8
2
2
5
7
-3
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K