Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 24
máð út. Í því felst svikamyllan ekki
síst.
Eurovision, þið fóruð svolítið í
kjölinn á söngvakeppninni?
Matthías: Þakka þér fyrir að gefa
þér það.
Tja, þið skoðuðuð alla vega í
hverju svokölluð Eurovision-hækk-
un felst?
K lemens: Í byrjun ferlisins
vorum við týndir. Hvernig gætum
við samið grípandi tónverk sem
myndi ná til pöpulsins? Við fórum
að rannsaka önnur tónskáld sem
hafa tekið þátt í keppninni. Stöldr-
uðum við á hugtaki sem var marg-
notað, Everest-tindur tónskáldsins
er þessi Eurovision-upphækkun.
Þegar við áttuðum okkur á því þá
small allt saman. Þetta einstaka
tónverk varð til. Og við skrifuðum
okkur inn í tónlistarsöguna og
erum á meðal gömlu meistaranna.
Þið sögðuð fólki sem horfði á
ykkur í sjónvarpinu í undankeppn-
inni að það myndi sjá eftir því til
eilífðarnóns myndi það ekki kjósa
ykkur áfram, standið þið við þessi
orð?
Matthías: Já, við gerum það og
gefum ekki afslátt af fyrri yfirlýs-
ingum Hatara. Ég gaf eiginlega þrjá
valkosti. Að horfa ekki á keppnina,
kjósa Hatara eða sjá eftir því til
eilífðarnóns.
En um glanshjúpinn, það eru allir
á samfélagsmiðlum. Þið líka, þið
eruð á Facebook, Instagram. Bara
eiginlega öllum samfélagsmiðlum
sem eru til, eruð þið ekki í mótsögn?
Matthías: Við lýstum því yfir að
við myndum aldrei fara á samfélags-
miðla. En við lýstum því líka yfir
að við myndum alltaf selja okkur
réttu verði. Og við myndum svíkja
öll loforð.
Klemens: Það er bara tímaspurs-
mál hvenær við seljum okkur. Ef
verðið er rétt, þá erum við til sölu.
Matthías: Dómsdagur er ástand
sem við erum nú þegar í. Eins og
maður sem stekkur fram af kletti og
hrapar. Þar er mannkynið, í dóms-
dagsástandi. Við sem einstaklingar
Um Hatara
Hatari hefur verið valin besta
tónleikasveitin í tvö ár í röð í
Reykjavik Grapevine.
Sveitin hefur vakið mikla at
hygli erlendis fyrir lag sitt Hatrið
sigrar. Mikið áhorf er á mynd
band þeirra á YouTube, þeir fá
fjölmargar athugasemdir og eru
umræddir á ótal bloggum um
Eurovision. Þá rötuðu þeir í sjón
varpið nýverið á annarri stærstu
sjónvarpsstöð í Ísrael þar sem til
umfjöllunar var áskorun þeirra
til Benjamins Netanyahu um að
mæta þeim í glímu þann 19. maí
næstkomandi.
Rob Holley, blaðamaður á
breska blaðinu The Independ
ent, hefur spáð Hatara sigri í
aðalkeppninni í Ísrael.
Í viðtali við Stundina fyrir
nokkru sögðust strákarnir í Hat
ara gagnrýnir á ísraelsk stjórn
völd og þau mannréttindabrot
sem eru framin í landinu. Þeir
sögðu frálett að Ísland tæki þátt
í Eurovision þegar keppnin er
haldin í ríki sem traðki á mann
réttindum. Úr því sem komið
er verði þó Íslendingar að nota
dagskrárvald sitt. „Við teljum
okkur hafa annars konar vald,
vald hirðfíflsins,“ sögðu þeir.
„Hatari sýnir samfélagið í
dökkum spegli og viðvörunar
orð þeirra eru skýr: Takið ykkur
á áður en það er of seint og
siðferðisleg hnignun sam
félagsins verður svo mikil að
Donalds Trump verði minnst
sem hófsemdarmanns.“ Segir í
tónlistarbloggi á The Guardian
um tónlist þeirra á Airwaves
tónlistarhátíðinni.
Hatari heldur úti einhvers
konar falsfréttaáróðurssíðu,
Icelandmusicnews.com. Þar er
eingöngu að finna fréttir um
sveitina.
Hatari á félagið Svikamyllu
ehf. Um tilgang félagsins segir:
Niðurrifsstarfsemi á síðkapít
alismanum, að eiga og reka
fasteignir, miðla íslenskum og
erlendum dómsdagskveðskap,
margmiðlun, útgáfa, stunda
innflutning og önnur verslunar
viðskipti svo og lánastarfsemi.
HVERNIG GÆTUM VIÐ
SAMIÐ GRÍPANDI TÓN
VERK SEM MYNDI NÁ TIL
PÖPULSINS? VIÐ FÓRUM
AÐ RANNSAKA ÖNNUR
TÓNSKÁLD SEM HAFA
TEKIÐ ÞÁTT Í KEPPNINNI.
Klemens
Hatari komst áfram á fyrra undanúr-slitakvöldi Söngva-keppninnar 2019 sem fór f ram í Háskólabíói um
síðustu helgi. Lag þeirra, Hatrið
mun sigra, nýtur vinsælda en
hljómsveitin hefur líka sætt gagn-
rýni. Hatari er þekkt fyrir beitta
þjóðfélagsgagnrýni og BDSM-
klæðin vekja athygli.
Tveir meðlimir Hatara, þeir
Matthías Tryggvi Haraldsson og
Klemens Hannigan samþykktu að
hitta blaðamann yfir kokteil að
kvöldlagi á Hótel Holti. Þriðji með-
limur sveitarinnar, Einar Stefáns-
son, var fjarri góðu gamni.
Hugðarefni strákanna í Hatara
eru ekkert léttmeti. Dauðinn og
umbylting á kapítalísku samfélagi
manna. Neysluhyggja og tilgerð
í tilverunni. Og dómsdagur. Fals-
aðar fréttatilkynningar, pólitískur
undirtónn, yfirlýsingar sem ganga
í berhögg hver við aðra og f leira í
þeim dúr hefur fylgt sveitinni frá
upphafi. Hversdagurinn er svika-
mylla, segja þeir oft og leitast við að
afhjúpa hann í verkum sínum.
Hvað hafið þið á móti hversdeg-
inum?
Matthías: Við hefðum ekkert út
á hann að setja ef hann væri ekki
linnulaus svikamylla.
Getur þú útskýrt þetta betur?
Já.
(Löng þögn.)
Matthías: Ímynd okkar gengur
kaupum og sölum. Við búum við
holskeflu fjölmiðla, upplýsinga og
fölsunar. Kapítalið hefur gersigrað.
Er Hatari andkapítalískur?
Matthías: Já, við höfum alltaf
verið það.
Klemens: Í raun getur maður
samt ekki verið andkapítalískur
þegar maður er fæddur inn í ástand
þar sem allt í kringum mann byggir
á kapítalisma.
Matthías: Þannig hyggjumst við
knésetja kapítalið en selja ef til vill
nokkra boli í leiðinni.
Þannig að við erum gegnsósa?
Klemens: Já. Við erum það.
Þessar falsanir sem þið talið um,
eruð þið að tala um samfélagsmiðla?
Finnst ykkur við hafa týnst?
Matthías: Þetta er eins og Euro-
vision. Við hjúpum okkur glans-
mynd. Mörk ímyndar, persónu-
leika, borgarans og neytenda eru
Klemens og Matthías Tryggvi. Þriðji meðlmuri Hatari, Einar, var fjarri góðu gamni. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Hatari er
viðvörun
Matthías Tryggvi Haraldsson og Klem-
ens Hannigan í Hatara ræddu áætlanir
sínar í Eurovision með semingi yfir kokteil
á Hótel Holti. Þeir segjast ætla að knésetja
kapítalið en selja nokkra boli í leiðinni.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R22 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
HELGIN
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-5
0
B
0
2
2
5
7
-4
F
7
4
2
2
5
7
-4
E
3
8
2
2
5
7
-4
C
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K