Fréttablaðið - 16.02.2019, Blaðsíða 26
EINHVERN VEGINN FINNST
MÉR VERA MIKIL TENGING
MILLI ÞESS AÐ ÞÚ ÞRÓAR
MEÐ ÞÉR FÍKNISJÚKDÓM
OG ÞVÍ AÐ VERA MEÐ
STÓRA HOLU Í HJARTANU
SEM ÞÚ HEFUR EKKI NÁÐ
AÐ VINNA ÚR.
Nína Dögg Filippusd ót t i r e r me ð betri leikkonum landsins. Blaðamaður hitti þessa hæf ileikaríku og
ljúfu leikkonu á heimili hennar á
Seltjarnarnesi á dögunum, en þau
hjónin Gísli Örn Garðarsson, leik
ari og leikstjóri, f luttu þangað úr
miðbænum fyrir um fjórum árum
ásamt börnum sínum tveimur.
„Við erum að fara að taka allt
í gegn hérna mjög f ljótlega. Við
þurftum bara smá tíma til að
ákveða hvernig við vildum hafa
þetta allt saman,“ segir Nína Dögg
sem leiðir blaðamann í gegnum
húsið. Heimilið er afar hlýlegt og
stendur það alveg við hafið, sem
tekur á móti manni í gegnum stóra
glugga í stofunni. „Okkur líður
alveg svakalega vel hérna svona
nálægt náttúrunni. Það er gott að
búa á Seltjarnarnesi. Okkur var
ráðlagt þegar við f luttum hingað,
að taka þetta bara alla leið. Sem
við og gerðum. Erum búin að fara
á öll þorrablótin og erum dugleg að
sækja viðburði hérna. Jú, og svo var
ég auðvitað Bæjarlistamaður Sel
tjarnarness 2017. Það var tekið rosa
lega vel á móti okkur og við höfum
eignast vini sem okkur þykir mjög
vænt um. Það er líka frábært að vera
með börn hérna. Það er svo mikið
öryggi og það passa allir upp á alla.“
Nína Dögg hefur verið að gera það
gott í leikhúsinu sem og á skjáum
okkar landsmanna og víðar. Hún
fer með aðalhlutverk í sýningunni
Fólk, staðir, hlutir sem Gísli Örn
leikstýrir. Leikritið hlaut fjölda
Grímutilnefninga og hreppti Nína
Dögg Grímuverðlaunin fyrir leik
sinn. Borgarleikhúsið setti verkið
upp í samvinnu við Vesturport og
norska þjóðleikhúsið og sama list
ræna teymið setti leikritið upp á
sitthvorum staðnum með sitthvora
leikarana. Leikritið er eftir Duncan
McMillan og sló í gegn í Englandi.
„Þetta leikrit kemur til okkar með
þeim hætti að Gísli var staddur í
tökum á sjónvarpsseríu í Newcastle.
Hann hafði verið að velta fyrir sér
að ég þyrfti að fara að fá eitthvert
magnað hlutverk. Það var nýbúið
að frumsýna þetta leikrit í London
og hann skellir sér. Hann sá strax að
þetta væri hlutverk sem ég þyrfti að
fá að túlka og tryggði sér strax sýn
ingarrétt á leikritinu,“ segir Nína.
„Þetta var ótrúlega gaman og öðru
vísi að setja upp leikritið í samvinnu
við norska leikhúsið. Ég sagði bara
við Gísla: Já, byrjaðu bara í Noregi
og æfðu þig þar. Komdu svo heim og
þá ertu búinn að gera öll mistökin
svo við getum gert þetta hnökra
laust hér,“ segir hún og hlær.
Nínu og Gísla fannst tilvalið að
setja upp leikritið hér á landi því að
fíkn er sjúkdómur sem tengist inn
í margar fjölskyldur á Íslandi, þar
á meðal Nínu Daggar. Hún á fjöl
skyldumeðlim sem fór óvænt þá leið
í lífinu. Viðkomandi var kominn vel
á miðjan aldur þegar fíknin tók yfir
og segir Nína að það hafi komið svo
lítið aftan að öllum í fjölskyldunni
hvernig það gerðist.
„Þetta skiptir mig því miklu máli
þar sem þetta er mér mjög nærri
en á sama tíma er þessi sjúkdómur
mér líka hulin birtingarmynd. Ein
hvern veginn finnst mér vera mikil
tenging milli þess að þú þróar með
þér fíknisjúkdóm og þess að vera
með stóra holu í hjartanu sem þú
hefur ekki náð að vinna úr. Mér
finnst það hafa verið þannig með
manneskjuna sem stendur mér
nærri. Þess vegna finnst mér svo
mikilvægt að við viðurkennum að
við þurfum hjálp og að við þurfum
hjálp snemma því það er fyrirbyggj
andi,“ segir Nína.
Gaman að vinna í sjálfum sér
Nína nefnir Þorgerði Katrínu Gunn
arsdóttur, formann Viðreisnar,
og frumvarp sem hún lagði fram í
lok janúar um að hægt verði að fá
almenna sálfræðiþjónustu niður
Rosalegt
ferðalag
fíkilsins
Nína Dögg hefur slegið í gegn í hlutverki
sínu í leiksýningunni Fólk, staðir, hlutir.
Hún segir fíkn vera mikið vandamál hér á
landi enda þekki hún það í eigin fjölskyldu.
Enginn er þar hólpinn og því mikil vægt að
hlúa betur að andlegri heilsu.
Nína hefur farið til sálfræðings síðan hún var þrítug og segir það hið besta sem hún hefur gert fyrir sjálfa sig. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
greidda með sjúkratryggingum.
Með frumvarpinu yrði sálfræði
þjónusta felld undir greiðsluþátt
tökukerfi Sjúkratrygginga Íslands
og veitt á sömu forsendum og önnur
heilbrigðisþjónusta.
„Mér f innst svo frábært það
sem Þorgerður Katrín er að gera
með Viðreisn, að koma með þetta
frumvarp. Auðvitað á að hlúa að
andlegri heilsu til jafns við líkam
lega heilsu. Þetta myndi auðvelda
svo margt fyrir svo marga. En sem
betur fer er það að breytast að mega
tala um svona hluti. Þetta var einu
sinni hálfgert „tabú“ að fara til sál
fræðings eða leita sér hjálpar vegna
andlegra veikinda. Eða bara tala um
tilfinningar yfir höfuð. Formæður
og feður okkar misstu börnin sín og
svo var bara haldið áfram. Það var
bara einhvern veginn harkað af sér.
En sem betur fer erum við komin
langt frá því og þetta er að breytast,“
segir Nína. Sjálf hefur Nína farið til
sálfræðings síðan hún var þrítug
og segir það hið besta sem hún hafi
gert fyrir sjálfa sig.
„Ég hef farið til nokkurra sál
fræðinga og það tekur mann alveg
Gunnþórunn
Jónsdóttir
gunnthorunn@frettabladid.is
1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R24 H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
1
6
-0
2
-2
0
1
9
0
4
:0
7
F
B
1
1
2
s
_
P
0
9
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
8
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
1
1
2
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
2
5
7
-4
B
C
0
2
2
5
7
-4
A
8
4
2
2
5
7
-4
9
4
8
2
2
5
7
-4
8
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
1
1
2
s
_
1
5
_
2
_
2
0
1
9
C
M
Y
K