Fréttablaðið - 16.02.2019, Side 88

Fréttablaðið - 16.02.2019, Side 88
Viltu birta minningargrein á frettabladid.is? Minningargreinar skal senda á timamot@frettabladid.is. Birting er endurgjaldslaus og opin öllum á frettabladid.is/timamot Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Unnur Axelsdóttir Hlíðarvegi 11, Kópavogi, lést þann 14. febrúar sl. á hjartadeild Landspítalans. Jarðarförin fer fram frá Kópavogskirkju fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Stefanía Hjartardóttir Sveinn Hjörtur Hjartarson Sigurveig H. Sigurðardóttir Þórunn I. Hjartardóttir Sveinn B. Larsson Axel Garðar Hjartarson Rannveig Sigurðardóttir barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug vegna andláts og útfarar okkar ástkæra eiginmanns, föður tengdaföður, afa og langafa, Gunnars Ingibergssonar innanhússarkitekts, Unnarbraut 24. Eva Jóhannsdóttir Bjarki Gunnarsson Ólöf R. Sigurðardóttir Helena Gunnarsdóttir Benedikt Á. Guðmundsson Marta Gunnarsdóttir Sæmundur Sævarsson barnabörn og barnabarnabörn. Elsku eiginkona mín, móðir og amma, Svala Hannesdóttir – Kastenholz 53902 Bad Münstereifel – Iversheim Euskirchener Str.131, lést 11. febrúar. Hún verður jarðsungin þann 8. marz kl. 14.00 í St. Laurentius kirkju í Iversheim. Þeim sem vilja minnast hennar bendum við á líknarfélög. Með kærleik og þakklæti, Ulrich, Susanne og Freyja Ástkæri eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, Magnús Kristinsson forstjóri, lést mánudaginn 11. febrúar á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju, fimmtudaginn 21. febrúar kl. 13.00. Greta Bachmann Ágústa Kristín Magnúsdóttir Sigurður Jónsson Kristinn Guðjónsson Ragnheiður S., Guðrún, Magnús, Ragnheiður K., Kristinn, Einar og barnabarnabörn. Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram- kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. Jón G. Bjarnason, umsjón útfara Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, Ástþór Ragnarsson iðnhönnuður, verður jarðsunginn frá Neskirkju föstudaginn 22. febrúar kl. 13. Elísabet Harpa Steinarsdóttir Gauti Þór Ástþórsson Ágústa M. Þorsteinsdóttir Erna Ástþórsdóttir Þorsteinn Jón Gautason Ástþór Ragnar Gautason Ásta Þórunn Ólafsdóttir Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts elsku dóttur minnar, systur, mágkonu og frænku, Helgu Stefánsdóttur Keilusíðu 7b, Akureyri. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar og Sjúkrahússins á Akureyri fyrir einstaklega góða umönnun. Stefán Sigurðsson Lilja, Sóldís og fjölskyldur. Faðir okkar, Sigurjón Samúelsson, saf naði plötum af ástríðu og átti líka úrval af hljóm-flutningstækjum, allt frá gömlum grammófónum til nútímagræja. Hann lést 4. ágúst 2017 en það var ásetningur hans að gefa þessa dýrgripi, það hafði komið fram í spjalli við hann oftar en einu sinni. Hann vildi að almenning- ur hefði aðgang að plötunum, gæti fengið að heyra tónlist- ina og njóta hennar. Svo ég afhenti Landsbókasafn- inu nýlega safnið, fyrir hönd okkar bræðra, mín og Kristins Þor- bergs,“ segir Samúel Sigurjónsson vélstjóri. Samúel er uppalinn að Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp, þar sem faðir hans var bóndi. Spurð- ur hvort þeir feðgar hafi  oft verið að hlusta á tónlist saman svarar hann: „Það kom fyrir, en við höfðum ekki sama smekk, við pabbi, ég var meira í nýrri tónlist. Elstu íslensku plöturnar hans pabba voru frá 1910, það eru 78 snúninga plötur úr hertu gúmmíi. Pabbi átti nánast allar íslenskar 78 snúninga plötur sem voru gefnar út. Fyrstu plötuna fékk hann að gjöf, tíu ára gamall, hún var með Gunnari Óskarssyni, barnastjörnu þess tíma. Svo fór hann á sjóinn sem unglingur og safnaði sér fyrir plötum, átti alltaf nýjustu plöturnar og var stundum  plötu- snúður á böllum við Ísafjarðardjúp þar sem hann spilaði bæði nýju og gömlu dansana. Það voru plötu- búðir á Ísafirði en hann verslaði víða, pantaði til dæmis plötur frá Noregi og Svíþjóð. Harmóníkusnillingarnir Gellin og Borgström voru í miklu uppáhaldi hjá honum.“ Alls voru hljómplötur Sigurjóns orðnar yfir 7.000, f lestar heillegar og vel með farnar. Í safninu er fyrsta íslenska harmóníkuplatan sem kom út, upptaka Jóhanns Jósepssonar frá Ormarslóni, 78 snúninga plata, hljóðrituð 1933. Sigurjón átti allar söngplötur með Einari Kristjáns- syni og  Stefáni Íslandi, allt upp- runalegar upptökur og báðar plötur Einars Hjaltested sem teknar voru upp í New York 1916. Áhugamálinu fylgdi svo söfnun á fróðleik um tón- list og tónlistarfólk. Samúel líst vel á þær aðstæður sem safnið er nú í á Landsbóka- safninu. „Þar er tónlistin tekin upp á stafrænt form og hægt að hlýða á allt efni sem ekki er varið höfundar- rétti. Sá réttur varir, að mig minnir, í 70 ár og þannig bætist alltaf við það sem dettur út úr honum og hægt er að hlusta á.“ Sýning hefur verið opnuð  í Þjóðarbókhlöðunni á þessum nýja feng, hljómplötunum og græjunum frá Hrafnabjörgum. gun@frettabladid.is Gáfu þjóðinni gamalt plötusafn Samúel við safn föður síns sem er til sýnis í Þjóðarbókhlöðunni. Elsti grammófónninn er frá árinu 1914, svokallaður His Master’s Voice trektarfónn, sem enn getur spilað. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI Safnarinn, Sigurjón Samúelsson á Hrafna- björgum. Landsbókasafni Íslands hefur áskotast yfir 7.000 hljómplötur og eðal hljómflutningstæki úr safni Sigurjóns Samú- elssonar (1936-2017), Hrafnabjörgum við Ísa- fjarðardjúp. Elstu íslensku plöturnar hans pabba voru frá 1910, það eru 78 snúninga plötur úr hertu gúmmíi. 1 6 . F E B R Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R34 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð TÍMAMÓT 1 6 -0 2 -2 0 1 9 0 4 :0 7 F B 1 1 2 s _ P 0 8 9 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 8 8 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 1 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 5 7 -5 0 B 0 2 2 5 7 -4 F 7 4 2 2 5 7 -4 E 3 8 2 2 5 7 -4 C F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 1 2 s _ 1 5 _ 2 _ 2 0 1 9 C M Y K
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.