Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 12
- Stærsti auglýsinga- og fréttamiðill í Mosfellsbæ12
Afhentu
hjálma
að gjöf
Kiwanisklúbbarnir Geysir og Mosfell
hér í Mosfellsbæ afhentu föstudaginn 7.
apríl sína árlegu gjöf á reiðhjólahjálmum
til barna í 1. bekk grunnskólanna hér í
Mosfellsbæ og grunnskólans á Klébergi á
Kjalarnesi. Voru alls afhentir 178 hjálmar
til þakklátra barna.
Markmið hjálmaverkefnis Kiwanis hefur
frá upphafi verið að stuðla að öryggi barna
í umferðinni. Bæta þannig öryggi þeirra
í umferðinni og koma í veg fyrir alvarleg
slys og óhöpp við hjólreiðar sem eru afar
vinæl frístundaiðkun auk þess að vera góð
samgönguleið. Hjálmarnir nýtast einnig vel
við notkun hjólabretta og hjólaskauta.
Börnin í KriKasKóla
taKa við hjálmunum
Benjamín elvar hreyKinn
með sinn nýja hjálm
Áhyggjulaust ævi-
kvöld eldri borgara?
Ólafur Sigurðsson hafði samband
við blaðið og vildi koma á framfæri
óboðlegri aðstöðu sem eldri borgurum
í Mosfellsbæ er boðið upp á. „Móðir
mín býr í öryggisíbúð við Eirhamra
í Mosfellsbæ. Það hafa komið í ljós
miklar vatns- og rakaskemmdir í
íbúðinni hennar sem er á efstu hæð.
Við erum búin að kvarta yfir þessi
síðan í september á síðasta ári, síðustu
svör voru að verktaki væri kominn í
málið en það gerist ekki neitt.
Nú þegar er vatnið sem kemur úr
loftinu búið að eyðileggja eitt sjónvarp
og sjónvarpsskáp,“ segir Ólafur og
veltir því fyrir sér hvort við séum að
veita eldri borgurum okkar áhyggju-
laust ævikvöld.
ORÐIÐ ER LAUST...
Hér gefst lesendum kostur á að
láta skoðanir sínar í ljós í stuttu máli.
Næsta blað kemur út
18. maí
Þarft þú að koma
einhverju á framfæri?
Mosfellingur er borinn út í hvert
hús og fyrirtæki í Mosfellsbæ,
Kjalarnesi og Kjós.
Skilafrestur efnis/auglýsinga er
mánudaginn 15. maí.
mosfellingur@mosfellingur.is