Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 18

Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 18
Hann ber það ekki með sér að vera kominn yfir sjötugt enda ávallt í fullu fjöri. Ef hann er ekki í vinn- unni þá er hann í útreiðatúr, í golfi eða að spila handbolta. Hann segir það skemmti- legasta við boltann, sem hann hefur stundað í yfir 50 ár, sé að vera í marki og verja 15 bolta í leik. Maðurinn sem um ræðir heitir Svein- björn Sævar, ávallt kenndur við Silki- prent. Sveinbjörn Sævar Ragnarsson er fædd- ur 24. ágúst 1944. Foreldrar hans eru þau Lilja Steinunn Guðmundsdóttir húsmóðir og Ragnar Breiðfjörð Sveinbjörnsson mat- reiðslumaður en hann lést árið 1972. Svein- björn á tvo bræður, þá Pál og Guðmund. Gerði bara eins og hinir „Ég er alinn upp í Reykjavík og var snar- ofvirkur prakkari á mínum yngri árum. Ég vaknaði snemma á morgnana og kom ekki heim fyrr en undir kvöldmat alla daga. Ég fór í sund á hverjum degi um sex ára aldur- inn og einn daginn kom ég heim með miða sem á stóð að ég hefði synt 200 m sund í Norrænu sundkeppninni. Mamma spurði hvernig ég hefði farið að því þar sem ég kynni ekki að synda og ég svaraði, ég gerði bara eins og hinir. Ég spilaði fótbolta með Val til tólf ára ald- urs og það var mjög skemmtilegur tími en svo uppgötvaði ég stelpurnar og þá fækkaði nú æfingunum aldeilis,“ segir Sveinbjörn og hlær. Útskrifaðist úr prentiðn „Ég gekk í Laugarnes-, Langholts- og Austurbæjarskóla. Mér fannst ekki gaman í skóla og fannst leiðinlegt að læra. Mottóið hjá mér var bara að ná prófunum og láta það duga og það gerði ég nema í eitt sinn. Kennarinn minn í heilsufræði sagði eitt sinn við mig að ef ég kæmi þrisvar sinnum ólesinn í tíma þá þyrfti ég ekki að mæta meira. Ég lærði þá eins og enginn væri morgundagurinn og fékk 9 á prófinu. Þegar ég var 12 ára talaði ég mjög mikið í tíma og hafði trufl- andi áhrif á bekkinn. Kennarinn fékk nóg af mér einn daginn, tók kennaraprikið og sló mig í rass- inn og við það brotnaði það. Ég þagði það sem eftir lifði dags. Eftir útskrift úr gaggó fór ég í Iðnskólann í Reykjavík að læra prentun. Ég komst svo á samning hjá Prentsmiðjunni Eddu og var þar í fjögur ár. Árið 1963 fór ég að læra setningu á Morgunblaðinu og starfaði þar í níu ár.“ Skemmtilegur félagsskapur „Á Morgunblaðsárunum plataði Magnús Ólafsson skemmtikraftur mig á handbolta- æfingu hjá Þrótti en hann starfaði einnig á blaðinu. Hjá Þrótti var ég alveg þangað til ég færði mig yfir til Afturelding- ar. Ég spilaði með Júmboys og má segja að það tímabil sé það efirminnilegasta á ferlinum. Í dag spila ég með Hvíta Riddaranum. Mér finnst alveg ótrúlega gaman í hand- bolta og missi aldrei af æfingu. Félagsskap- urinn er nú heldur ekki til að skemma fyrir, allt saman frábærir strákar. Það skemmti- legasta við boltann er að vera í marki og verja 15 bolta í leik.“ Ég spyr Sveinbjörn hver sé galdurinn við að vera í góðu formi fram eftir aldri og hversu lengi hann ætli að halda áfram? „Það sem hjálpar mér er að ég verð aldrei veikur og get alltaf mætt á æfingar. Svo hleyp ég upp og niður stigann í vinnunni, þannig held ég mér í ágætis formi. Ég ætla að vera í boltanum eins lengi og ég get og ætla ekki að hætta fyrr en ég verð að gera það eða strákarnir henda mér út af æfingu. Það eru tíu ár síðan ég byrjaði fyrir alvöru í golfi en ég var að fikta við það öðru hverju fram að þeim tíma. Það er býsna erfitt að verða góður í golfi og það krefst mikilla æf- inga. Ég vildi sannarlega hafa meiri tíma til að sinna því.“ Hesthúsahverfið innan seilingar „Ég giftist Grétu Sigurðardóttur um tví- tugsaldurinn og við eignuðumst fjögur börn: Lilju fædda 1964, Sigríði 1965, Rögnu 1971 og Sveinbjörn fæddan 1978. Við byrj- uðum okkar búskap í Reykjavík en fluttum í Mosfellssveit árið 1974. Við hjónin byrjuðum saman í hesta- mennskunni en hesthúsahverfið var innan seilingar en við bjuggum þá í Dvergholtinu. Ég hef keppt bæði á fjórðungs- og lands- mótum og átti landsfrægan hest, Muna, en hann vann A-flokkinn árið 1990. Ég er enn í hestastússinu og hef mikið gaman af. Við Gréta slitum samvistir árið 1997.“ Fundu frábært efni í fánana Sveinbjörn Sævar stofnaði fána- og skiltagerðina Silkiprent árið 1972 en fyr- irtækið byrjaði í litlu húsnæði vestur á Granda. Silkiprent er fyrsta fyrirtækið til að framleiða útifána á Íslandi. „Við erum brautryðjendur í framleiðslu á útifánum og er það enn okkar stærsti fram- leiðsluþáttur,“ segir Sveinbjörn. Leitast var við að þróa fánana og finna bestu lausn fyr- ir íslenskar aðstæður og fannst frábært efni í þá sem er flutt inn frá Frakklandi. Einnig er hægt að fá borðfána, hátíðarfána, strand- fána og alla heimsins þjóðfána ásamt ýmsu öðru þar á meðal skilti. „Það er fátt sem er ekki leyst hér, það er meira að segja hægt að afgreiða fána sam- dægurs,” segir Sveinbjörn brosandi er við kveðjumst. - Mosfellingurinn Sveinbjörn Sævar Ragnarsson18 Stórfjölskyldan að halda upp á þrefalt stórafmæli, Lilju, Lilju Steinunnar og Sveinbjörns. MOSFELLINGURINN Eftir Ruth Örnólfsdóttur ruth@mosfellingur.is Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni. Kennarinn fékk nóg af mér, tók kennaraprikið og sló mig í rassinn og við það brotnaði það. Ég þagði það sem eftir lifði dags. Sveinbjörn Sævar Ragnarsson eigandi Silkiprents er brautryðjandi í framleiðslu á útifánum á Íslandi HIN HLIÐIN Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Úsýnið af svölum íbúðar minnar í Litlakrika. Ertu A eða B manneskja? B manneskja. Draumabílinn? Ferrari. Hvaða matur freistar þín? Lambahryggur, grænar baunir og rauðkál. Hvað myndi ævisagan þín heita? Í handbolta í 50 ár. Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki um? Ég ræði málin stundum við sjálfan mig, segi eitthvað hérna megin við borðið og fer svo hinum megin við borðið og svara. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Þegar ég geri mistök í vinnunni. Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú hefur lent í? Þegar ég bauð móður minni og bræðrum til mín í þorramat. Ég sótti matinn í Múlakaffi og setti hann í skottið á bílnum. Á leiðinni heim gleymdi ég mér aðeins á grænu ljósi þannig að ég rykki bílnum af stað og um leið heyrði ég eitt- hvert hljóð aftur í en hélt bara að matur- inn hefði færst til. Ég áttaði mig svo á því á Miklubrautinni að skottið hafði opnast, bakkarnir höfðu sturtast á götuna og golfsettið mitt um leið. Í boltanum í 50 ár sveinbjörn og muni á landsmóti bikar á loft fyrir júmboys börn sveinbjörns ásamt ömmu sinni með þrótti 1972nýfermdur 1958

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.