Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 26

Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 26
 - Molar og menning26 Æfingahópurinn þinn Ég hef verið tengdur íþróttum og hreyfingu síðan ég var smá gutti. Hef æft með ýmsum hópum og fé- lögum. Þrótti, Fylki, Aftureldingu, ÍR og Mjölni, svo nokkur séu nefnd. Ég tilheyri í dag tveimur æfingahópum. Þjálfa og held utan um annan og er þátttakandi í hinum. Hver æfingahópur hefur sína menningu. Hún er mótuð af þeim sem stýra hópnum og þeim sem mynda hópinn. Einkenni góðra æfingahópa er að fólk mætir reglulega, bætir sig, hlakkar til að mæta og líður vel eftir æfingu. Góður húmor skiptir máli, hvetjandi aðhald þjálfara og annarra æfingafélaga líka. Og það sem mér finnst mjög mikilvægt, að það sé pláss fyrir alla. Alla sem virkilega vilja vera með í hópnum og æfa með honum. Við erum öll ólík, öll sérstök á okkar hátt, en það gefur lífinu lit og gerir hópinn sterkari að innan hans séu einstakl- ingar sem fara sínar eigin leiðir, án þess að fara gegn óskrifuðum reglum hópsins eða eyðileggja út frá sér. Ég hef verið í æfingahópum þar sem ekki var pláss fyrir þá sem þóttu of öðruvísi. Það er hálf óþægileg til- finning að hugsa til þess eftir á og ég er viss um að þeir hópar hefðu náð lengra ef menning þeirra hefði verið opnari. Það skiptir ekki máli hvers konar hreyfingu maður stundar eða hvaða íþrótt maður er að æfa, öfl- ugur æfingahópur er alltaf mikill styrkur. Gefur manni orku, veitir manni jákvætt aðhald og andlega upplyftingu. Það eru margir æfingahópar í Mosfellsbæ. Afturelding og hin íþróttafélögin í bænum eru til dæmis með marga hópa á sínum vegum, líkamsræktarstöðvarnar sömuleið- is. Hópar hittast til að sparka í bolta, glíma, ganga á fjöll eða hlaupa. Mögu- leikarnir eru ótal margir og í bæ þar sem margir þekkja marga er mjög líklegt að þú getur fundið æfingahóp sem hentar þér og þínum lífstíl. heilsumolar gaua Guðjón Svansson gudjon@kettlebells.is Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight velkomin í fiskbúðina háholti 13-15 sími 578 6699 Hér gætu komið opnunartímar. letur Footlight opið alla virka daga kl. 10-18.30 frá menninga rviku svipmyndir leikskólanna

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.