Mosfellingur - 27.04.2017, Síða 26
- Molar og menning26
Æfingahópurinn
þinn
Ég hef verið tengdur íþróttum og hreyfingu síðan ég var smá gutti.
Hef æft með ýmsum hópum og fé-
lögum. Þrótti, Fylki, Aftureldingu, ÍR
og Mjölni, svo nokkur séu nefnd. Ég
tilheyri í dag tveimur æfingahópum.
Þjálfa og held utan um annan og er
þátttakandi í hinum.
Hver æfingahópur hefur sína menningu. Hún er mótuð af
þeim sem stýra hópnum og þeim
sem mynda hópinn. Einkenni
góðra æfingahópa er að fólk mætir
reglulega, bætir sig, hlakkar til að
mæta og líður vel eftir æfingu. Góður
húmor skiptir máli, hvetjandi aðhald
þjálfara og annarra æfingafélaga
líka. Og það sem mér finnst mjög
mikilvægt, að það sé pláss fyrir alla.
Alla sem virkilega vilja vera með í
hópnum og æfa með honum. Við
erum öll ólík, öll sérstök á okkar hátt,
en það gefur lífinu lit og gerir hópinn
sterkari að innan hans séu einstakl-
ingar sem fara sínar eigin leiðir, án
þess að fara gegn óskrifuðum reglum
hópsins eða eyðileggja út frá sér. Ég
hef verið í æfingahópum þar sem
ekki var pláss fyrir þá sem þóttu of
öðruvísi. Það er hálf óþægileg til-
finning að hugsa til þess eftir á og ég
er viss um að þeir hópar hefðu náð
lengra ef menning þeirra hefði verið
opnari.
Það skiptir ekki máli hvers konar hreyfingu maður stundar eða
hvaða íþrótt maður er að æfa, öfl-
ugur æfingahópur er alltaf mikill
styrkur. Gefur manni orku, veitir
manni jákvætt aðhald og andlega
upplyftingu.
Það eru margir æfingahópar í Mosfellsbæ. Afturelding og hin
íþróttafélögin í bænum eru til dæmis
með marga hópa á sínum vegum,
líkamsræktarstöðvarnar sömuleið-
is. Hópar hittast til að
sparka í bolta, glíma,
ganga á fjöll eða
hlaupa. Mögu-
leikarnir eru ótal
margir og í bæ þar
sem margir þekkja
marga er mjög
líklegt að þú getur
fundið æfingahóp
sem hentar þér og
þínum lífstíl.
heilsumolar gaua
Guðjón
Svansson
gudjon@kettlebells.is
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
velkomin
í fiskbúðina
háholti 13-15
sími 578 6699
Hér gætu komið
opnunartímar.
letur Footlight
opið alla
virka daga kl. 10-18.30
frá menninga
rviku
svipmyndir
leikskólanna