Mosfellingur - 27.04.2017, Page 18
Hann ber það ekki með sér að vera kominn yfir sjötugt enda ávallt í fullu fjöri. Ef hann er ekki í vinn-
unni þá er hann í útreiðatúr, í golfi eða að
spila handbolta. Hann segir það skemmti-
legasta við boltann, sem hann hefur
stundað í yfir 50 ár, sé að vera í marki og
verja 15 bolta í leik.
Maðurinn sem um ræðir heitir Svein-
björn Sævar, ávallt kenndur við Silki-
prent.
Sveinbjörn Sævar Ragnarsson er fædd-
ur 24. ágúst 1944. Foreldrar hans eru þau
Lilja Steinunn Guðmundsdóttir húsmóðir
og Ragnar Breiðfjörð Sveinbjörnsson mat-
reiðslumaður en hann lést árið 1972. Svein-
björn á tvo bræður, þá Pál og Guðmund.
Gerði bara eins og hinir
„Ég er alinn upp í Reykjavík og var snar-
ofvirkur prakkari á mínum yngri árum. Ég
vaknaði snemma á morgnana og kom ekki
heim fyrr en undir kvöldmat alla daga. Ég
fór í sund á hverjum degi um sex ára aldur-
inn og einn daginn kom ég heim með miða
sem á stóð að ég hefði synt 200 m sund í
Norrænu sundkeppninni. Mamma spurði
hvernig ég hefði farið að því þar sem ég
kynni ekki að synda og ég svaraði, ég gerði
bara eins og hinir.
Ég spilaði fótbolta með Val til tólf ára ald-
urs og það var mjög skemmtilegur tími en
svo uppgötvaði ég stelpurnar og þá fækkaði
nú æfingunum aldeilis,“ segir Sveinbjörn
og hlær.
Útskrifaðist úr prentiðn
„Ég gekk í Laugarnes-, Langholts- og
Austurbæjarskóla. Mér fannst ekki gaman
í skóla og fannst leiðinlegt að læra. Mottóið
hjá mér var bara að ná prófunum og láta
það duga og það gerði ég nema í eitt sinn.
Kennarinn minn í heilsufræði sagði eitt
sinn við mig að ef ég kæmi þrisvar sinnum
ólesinn í tíma þá þyrfti ég ekki að mæta
meira. Ég lærði þá eins og enginn væri
morgundagurinn og fékk 9 á prófinu.
Þegar ég var 12 ára talaði ég
mjög mikið í tíma og hafði trufl-
andi áhrif á bekkinn. Kennarinn
fékk nóg af mér einn daginn, tók
kennaraprikið og sló mig í rass-
inn og við það brotnaði það. Ég þagði það
sem eftir lifði dags.
Eftir útskrift úr gaggó fór ég í Iðnskólann
í Reykjavík að læra prentun. Ég komst svo
á samning hjá Prentsmiðjunni Eddu og
var þar í fjögur ár. Árið 1963 fór ég að læra
setningu á Morgunblaðinu og starfaði þar
í níu ár.“
Skemmtilegur félagsskapur
„Á Morgunblaðsárunum plataði Magnús
Ólafsson skemmtikraftur mig á handbolta-
æfingu hjá Þrótti en hann starfaði einnig á
blaðinu. Hjá Þrótti var ég alveg þangað til
ég færði mig yfir til Afturelding-
ar. Ég spilaði með Júmboys og
má segja að það tímabil sé það
efirminnilegasta á ferlinum.
Í dag spila ég með Hvíta Riddaranum.
Mér finnst alveg ótrúlega gaman í hand-
bolta og missi aldrei af æfingu. Félagsskap-
urinn er nú heldur ekki til að skemma fyrir,
allt saman frábærir strákar. Það skemmti-
legasta við boltann er að vera í marki og
verja 15 bolta í leik.“
Ég spyr Sveinbjörn hver sé galdurinn
við að vera í góðu formi fram eftir aldri og
hversu lengi hann ætli að halda áfram? „Það
sem hjálpar mér er að ég verð aldrei veikur
og get alltaf mætt á æfingar. Svo hleyp ég
upp og niður stigann í vinnunni, þannig
held ég mér í ágætis formi. Ég ætla að vera
í boltanum eins lengi og ég get og ætla ekki
að hætta fyrr en ég verð að gera það eða
strákarnir henda mér út af æfingu.
Það eru tíu ár síðan ég byrjaði fyrir alvöru
í golfi en ég var að fikta við það öðru hverju
fram að þeim tíma. Það er býsna erfitt að
verða góður í golfi og það krefst mikilla æf-
inga. Ég vildi sannarlega hafa meiri tíma til
að sinna því.“
Hesthúsahverfið innan seilingar
„Ég giftist Grétu Sigurðardóttur um tví-
tugsaldurinn og við eignuðumst fjögur
börn: Lilju fædda 1964, Sigríði 1965, Rögnu
1971 og Sveinbjörn fæddan 1978. Við byrj-
uðum okkar búskap í Reykjavík en fluttum
í Mosfellssveit árið 1974.
Við hjónin byrjuðum saman í hesta-
mennskunni en hesthúsahverfið var innan
seilingar en við bjuggum þá í Dvergholtinu.
Ég hef keppt bæði á fjórðungs- og lands-
mótum og átti landsfrægan hest, Muna, en
hann vann A-flokkinn árið 1990. Ég er enn í
hestastússinu og hef mikið gaman af.
Við Gréta slitum samvistir árið 1997.“
Fundu frábært efni í fánana
Sveinbjörn Sævar stofnaði fána- og
skiltagerðina Silkiprent árið 1972 en fyr-
irtækið byrjaði í litlu húsnæði vestur á
Granda. Silkiprent er fyrsta fyrirtækið til
að framleiða útifána á Íslandi.
„Við erum brautryðjendur í framleiðslu á
útifánum og er það enn okkar stærsti fram-
leiðsluþáttur,“ segir Sveinbjörn. Leitast var
við að þróa fánana og finna bestu lausn fyr-
ir íslenskar aðstæður og fannst frábært efni
í þá sem er flutt inn frá Frakklandi. Einnig
er hægt að fá borðfána, hátíðarfána, strand-
fána og alla heimsins þjóðfána ásamt ýmsu
öðru þar á meðal skilti.
„Það er fátt sem er ekki leyst hér, það er
meira að segja hægt að afgreiða fána sam-
dægurs,” segir Sveinbjörn brosandi er við
kveðjumst.
- Mosfellingurinn Sveinbjörn Sævar Ragnarsson18
Stórfjölskyldan að halda upp á þrefalt stórafmæli, Lilju, Lilju Steinunnar og Sveinbjörns.
MOSFELLINGURINN
Eftir Ruth Örnólfsdóttur
ruth@mosfellingur.is
Myndir: Ruth Örnólfs og úr einkasafni.
Kennarinn fékk nóg af
mér, tók kennaraprikið
og sló mig í rassinn og við það
brotnaði það. Ég þagði það
sem eftir lifði dags.
Sveinbjörn Sævar Ragnarsson eigandi Silkiprents er brautryðjandi í framleiðslu á útifánum á Íslandi
HIN HLIÐIN
Fallegasti staður í Mosfellsbæ? Úsýnið
af svölum íbúðar minnar í Litlakrika.
Ertu A eða B manneskja? B manneskja.
Draumabílinn? Ferrari.
Hvaða matur freistar þín?
Lambahryggur, grænar baunir og rauðkál.
Hvað myndi ævisagan þín heita?
Í handbolta í 50 ár.
Eitt atriði um þig sem fólk veit ekki
um? Ég ræði málin stundum við sjálfan
mig, segi eitthvað hérna megin við borðið
og fer svo hinum megin við borðið og
svara.
Hvað fer mest í taugarnar á þér?
Þegar ég geri mistök í vinnunni.
Hvað er neyðarlegasta atvik sem þú
hefur lent í? Þegar ég bauð móður minni
og bræðrum til mín í þorramat. Ég sótti
matinn í Múlakaffi og setti hann í skottið
á bílnum. Á leiðinni heim gleymdi ég mér
aðeins á grænu ljósi þannig að ég rykki
bílnum af stað og um leið heyrði ég eitt-
hvert hljóð aftur í en hélt bara að matur-
inn hefði færst til. Ég áttaði mig svo á því
á Miklubrautinni að skottið hafði opnast,
bakkarnir höfðu sturtast á götuna og
golfsettið mitt um leið.
Í boltanum í 50 ár
sveinbjörn
og muni á
landsmóti
bikar á loft fyrir júmboys
börn sveinbjörns ásamt ömmu sinni
með þrótti 1972nýfermdur 1958