Mosfellingur - 27.04.2017, Blaðsíða 20
- Bókasafnsfréttir20
fjölskylduvæn ísbúð
í hjarta mosfellsbæjar
Verið hjartanlega
velkomin
HáHolti 13-15 • s. 564 4500
Opið alla daga kl. 12:00-23:00
Listasalur Mosfellsbæjar
Tinni í túninu heima
Bókasafn Mosfellsbæjar
Menningarvor 2017
Sýning Ísaks Óla í Listasal Mosfellsbæj-
ar var opnuð laugardaginn 8. apríl. Fjöldi
gesta var við opnunina. Á sýningunni eru
myndir sem Ísak Óli málar upp úr Tinna-
bókunum enda kallar hann sýninguna
Tinni í túninu heima.
Við opnunina tók listamaðurinn lag-
ið með föður sínum, Sævari Magnússyni,
sem lék á gítar, og gestunum sem tóku und-
ir í viðlaginu – það var mjög skemmtilegt.
Boðið var upp á kók og prins að hætti lista-
mannsins.
Sýning Ísaks Óla er opin á afgreiðslutíma
Bókasafnsins og henni lýkur 13. maí.
Börn eiga sinn fasta sess í starfsári Bóka-
safnsins - þau eru alltaf aufúsugestir.
Nýlega var 5. bekk boðið í heimsókn í
Bókasafnið til að hitta rithöfundinn Ingu
Mekkin Guðmundsdóttur sem las fyrir þau
úr bók sinni
Skóladraugur-
inn. Einnig er
von á 9. bekk í
sérstaka heim-
sókn í Bóka-
safnið.
Þegar skóla-
heimsóknum
í Bókasafnið
lýkur í vor tek-
ur við annars konar tenging barnanna við
Bókasafnið. Þá eiga þau öll kost á að taka
þátt í Sumarlestri og velja auðvitað sjálf
hvað þau vilja lesa. Sumarlesturinn hefst
22. maí og honum lýkur 8. september. Allir
krakkar geta tekið þátt og átt skemmtilegt
lestrarsumar.
Í fyrra var boðið upp á ritlistarnámskeið
fyrir 10 – 12 ára börn og heppnaðist það svo
vel að ákveðið var að bjóða aftur upp á slíkt
námskeið í byrjun sumars. Gerður Kristný
rithöfundur sér aftur um námskeiðið fyrir
Bókasafnið. Það verður 8. - 10. júní og mið-
ast fjöldi þátttakenda við 25 börn. Þátttaka
er ókeypis – skráning auglýst síðar.
Bókasafn Mosfellsbæjar
Börnin og sumarið í safninu
Mikil ánægja er með hvernig tókst til á
Menningarvori 2017 í Bókasafninu. Að
þessu sinni var boðið upp á dagskrá tvö
kvöld. Annars vegar dagskrá með Ara Eld-
járn uppistandara og Regínu Ósk söng-
konu. Hins vegar var Kúbukvöld með tíu
manna stórsveit Tómasar R. Einarssonar,
fræðsluerindi og salsadansi.
Fullt var út úr dyrum bæði kvöldin og
góð stemning.
ísak óli tekur lagið