Mosfellingur - 27.04.2017, Side 22
Knattspyrnuskóli
Liverpool á Íslandi
Afturelding í samstarfi við Þór og Liverpoolklúbbinn á Íslandi kynna:
Knattspyrnuskóli Liverpool á Íslandi er fyrir stráka og stelpur í 3.-7. flokki (6-16 ára)
Þjálfarar frá Liverpool FC – Íslenskir aðstoðarþjálfarar – Sér hópur fyrir markmenn
Mosfellsbær 13.-15. júní • Akureyri 10.-12. júní
Innifalið: Ávaxtabiti, heitur hádegismatur, LFC bolti. 10% systkinaafsláttur.
Nýtt í ár: Tilboð á árgjaldi í Liverpoolklúbbinn á Íslandi.
Verð: Með árgjaldi í Liverpoolklúbbinn kr. 24.400 kr. Annars: 23.900 kr.
Skráning á www.afturelding.felog.is
Allar nánari upplýsingar á fotbolti@afturelding.is og í síma 695-2642.
Mosfellingurinn Huginn Hilmarsson varð
Íslandsmeistari í 400 m fjórsundi á ÍM 50
9. apríl.
Þá varð hann í 2. sæti í 200 m fjór-
sundi en hann æfir með Breiðabliki. Sveit
Breiðabliks varð líka í 2. sæti í 4x200 m
skriðsundi og í 3. sæti í 4x100 m skrið-
sundi, í sveitinni voru bæði Huginn og
Davíð Fannar Ragnarsson sem er líka úr
Mosfellsbæ.
Á myndinni má sjá Hugin með sund-
bikar UMSK sem hann hlaut á dögunum.
- Íþróttir22
Þær María Guðrún Sveinbjörnsdóttir og
dóttir hennar Vigdís Helga Eyjólfsdóttir
voru á dögunum valdar í íslenska lands-
liðið í taekwondo og eru þær á leiðinni á
Evrópumót í Grikklandi í byrjun maí.
Mæðgurnar æfa báðar taekwondo hjá
Aftureldingu ásamt yngri börnum Maríu,
þeim Sigurjóni Kára sjö ára og Iðunni Önnu
tólf ára en hún er einnig í landsliðinu. „Ég
byrjaði að æfa fyrir átta árum, mamma
var þá ólétt að bróður mínum. Henni leist
svo vel á þetta að hún byrjaði þegar bróðir
minn var fjögurra vikna,“ segir Vigdís sem
er að verða 16 ára og er í Varmárskóla.
Fjölskyldulífsstíll
„Það er rosalega öflug taekwondo-deild í
Aftureldingu. Við erum ekki stærsta félagið
en við erum yfirleitt með flesta krakkana á
mótum og við viljum meina að við séum
með flesta Íslands- og bikarmeistarana.
Það eru margir krakkar að æfa en við get-
um alveg bætt við iðkendum í fullorðins-
flokknum. Við erum ekki einu mæðgurnar
í deildinni, þetta er rosalega skemmtilegt
fjölskyldusport. Við köllum okkur taek-
wondo-fjölskylduna, þ.e. fólkið sem til-
heyrir deildinni, það eru allir til staðar fyrir
alla,“ segir María sem starfar sem vélaverk-
fræðingur hjá Össuri.
Sjálfsvarnarnámskeið
Taekwondo-deild Aftureldingar hefur
verið að bjóða upp á sjálfvarnarnámskeið
fyrir almenning þar sem þær mægður
ásamt fleirum eru að kenna.
„Taekwondo er mjög skemmtileg íþrótt,
það er eiginlega hægt að skipta þessu í þrjá
parta, tæknihlutinn þar sem iðkandinn
er einn á gólfinu og gerir ákveðna tækni,
bardagahlutinn þar sem iðkendur berjast
en eru vel varðir með hlífum, brynjum og
hjálmum og svo er það sjálfsvarnarhlut-
inn,“ segir María.
„Við höfum ekki lent í því að keppa hvor
á móti annarri í bardaga en ég væri alveg til
í það og sjá hvor okkar er betri,“ segir Vigdís
hlæjandi að lokum.
María Guðrún og Vigdís Helga eru á leið á Evrópumót
Mæðgur í lands-
liðinu í taekwondo
taekwondo er
skemmtilegt
fjölskyldusport
Íslands-
meistari
í 400 m
fjórsundi
Afturelding verður að vinna FH í kvöld • Staðan er 0-2
Að duga eða drepast
í Kaplakrika í kvöld
Meistaraflokkur karla í
handknattleik er 2-0 und-
ir í baráttunni við FH í
undanúrslitum Olísdeild-
arinnar.
Vinna þarf þrjá leiki til
að komast í úrslitaviður-
eignina en Afturelding
hefur einmitt leikið til
úrslita gegn Haukum
síðustu tvö ár. Leikurinn
í kvöld fer fram í Kapla-
krika og hefst kl. 20:00.
Upphitun fyrir stuðn-
ingsmenn verður á Hvíta
Riddaranum frá kl. 18 og
frí rúta á leikinn.
Komi til þess að ein-
vígið haldi áfram eftir
kvöldið, eins og Mosfell-
ingar ætla sér, verður leik-
ið mánudaginn 1. maí að
Varmá kl. 20.00.
elvar ásgeirsson
skorar gegn fh
Afturelding náði þeim magnaða árangri að verða tvöfaldur bikarmeistari í blaki því bæði
karla- og kvennalið félagsins fögnuðu sigri í bikarúrslitum Kjörísbikarsins. Þetta er í fyrsta
sinn sem karlalið félagsins verður bikarmeistari og má með sanni segja að sigur þeirra á
Stjörnunni hafi verið ótrúlegur.
Konurnar fögnuðu einnig bikarmeistaratitli eftir 3-0 sigur á HK. Þetta er þriðja árið í röð
sem Afturelding verður bikarmeistari í kvennaflokki.
Árangur helgarinnar er ekki síst vitnisburður um það frábæra starf sem unnið er innan
blakdeildar Aftureldingar.
Afturelding tvöfAldur biKArMeistAri Í blAKi
karla- og kvennalið
aftureldingar í
laugardalshöll
M
yn
d/
Ra
gg
iÓ
la