Mosfellingur - 15.01.2010, Qupperneq 9
19759
Frambjóðendur undirbúa sig fyrir prófkjör
����������� �����������VIRÐING JÁKVÆÐNI FRAMSÆKNI UMHYGGJA
Samvinna um
nágrannavörslu
Mosfellsbær, Sjóvá og Lögregla höfuðborgarsvæðisins hafa hafið
samstarf um nágrannavörslu í Mosfellsbæ í samvinnu við íbúa
Nágrannavarsla hefur fyrir löngu
sannað sig sem mikilvægur hlekkur í
að fækka glæpum og þá sérstaklega
innbrotum á heimili, í bíla og almenn-
um þjófnaði á eigum fólks.
Þar sem nágrannavarsla er virk
hefur skemmdarverkum einnig
fækkað og dregið úr veggjakroti.
Nágrannavarsla felst í samvinnu
nágranna um að gera umhverfi sitt
og heimili öruggari. Með því móti er leitast við að
draga úr innbrotum, þjófnaði og skemmdarverkum.
Nágrannavarsla hefur verið þekkt í áratugi og hefur
víða verið sett upp með góðum árangri bæði á Íslandi
og víða erlendis.
Verklagsreglur
1. Íbúar þeirra gatna sem áhuga hafa á að
taka þátt í nágrannavörslu í Mosfellsbæ tengilið,
svokallaðan götustjóra.
Hlutverk götustjóra er:
- Að miðla upplýsingum til íbúa
götunnar um verkefnið.
- Að safna upplýsingum um nöfn
og netföng íbúa í þeim tilgangi að
lögregla geti komið á framfæri
upplýsingum til íbúa ef með þarf og
að Þjónustuver Mosfellsbæjar geti
komið upplýsingum um gögn vegna
nágrannavörslu til íbúa.
- Að senda Þjónustuveri Mosfellsbæjar og fulltrúa
lögreglunnar nafna og netfangalistann.
2. Götustjóri kemur upplýsingum til þjónustuvers
Mosfellsbæjar um vilja íbúa götunnar til að taka þátt
í verkefninu, ásamt upplýsingum um fjölda íbúða í
götunni. Þjónustuver kemur þeim upplýsingum til
Sjóvá sem lætur útbúa götuskilti, límmiða til að setja
í glugga, ásamt handbók um nágrannavörslu. Sjóvá
kemur þessum gögnum til þjónustuvers. Þjónustuver
kallar til liðsmenn úr áhaldahúsi til að setja upp skilti
við götu og sendir íbúum tölvupóst um að nálgast
megi handbækur og límmiða í þjónustuver.
3. Íbúar sækja gögn frá Sjóvá handbók og límmiða í
Þjónustuver Mosfellsbæjar.
Nánari upplýsinga má nálgast á vef Mosfellsbæjar
á slóðinni mos.is/nagrannavarsla eða hjá
Þjónustuveri Mosfellsbæjar í síma 525 6700.