Mosfellingur - 15.01.2010, Side 10
Hólmfríður tilnefnd
til hlaupara ársins
Hlaup.is
hefur ákveðið
að standa
fyrir vali á
lang hlaupara
ársins 2009
bæði í karla-
og kvenna-
fl okki. Þá er
einkum horft til afreka í götu- og
utanvega hlaupum. Hólmfríður
Vala Svavarsdóttir, 36 ára Mos-
fellingur, er ein af fi mm konum
sem eru tilnefndar sem lang-
hlaupari ársins 2009. Í tilnefn-
ingunni segir: Hólmfríður
Vala, fyrir að sigra í Laugavegs-
hlaupinu á 5:33:10 klst. sem er
um tveimur mínút um frá besta
árangri íslensk rar konu. Hægt er
að kjósa inn á www.hlaup.is til
miðnættis 15. janúar.
Pósturinn bætir
við póstnúmerum
Breytingar hafa verið gerðar á
póstnúmerakerfi Póstsins.
Bætt hefur verið við dreifbýlis-
númerum í Mosfellsbæ. Íbúar
í dreifbýlinu sem voru áður í
póstnúmeri 270 Mosfellsbær
fá sitt eigið póstnúmer, 271
Mosfells bær. Svæðið sem tilheyr-
ir Kjósar hreppi fær póstnúmer-
ið 276 Mosfellsbær. Breytingar
þessar hafa verið tilkynntar til
Þjóðskrár og eiga íbúar ekki að
verða varir við neinar breytingar
varðandi póstdreifi ngu. Nánari
upp lýsingar á www.postur.is
- Hvað er að frétta?10
HEIMILISMATUR Í HÁDEGINU 1290,-
Sunnudaginn 10. janúar fór fram Nýárssundmót fatlaðra barna og ung-
linga í Laugardalslaug. Þar tóku þátt í fyrsta sinn hópur fatlaðra barna úr
Mosfellsbæ sem æfa sund í Lágafellslaug á vegum Íþróttafélagsins Aspar.
Það var einstaklega gaman að sjá þetta unga fólk takast á við þetta verkefni
að keppa á svo stóru móti.
Á dögunum fékk leikskólinn
Reykjakot jólakort frá nágrönnum
sínum í Krókabyggð 1, 1a, 3, 3a og
5. Ástæðan fyrir kortinu er sú að
þeir vilja samgleðjast leikskólanum
vegna breytinga á lóðinni og þykir
gaman að hafa glaða krakka í hverf-
inu. Þetta var dásamlegt kort sem ylj-
aði starfsfólki leikskólans um hjarta-
ræturnar. Nágrannarnir óskuðu
eftir því að fá að koma í heimsókn
í leikskólann og færa honum bóka-
gjöf. Fulltrúar nágrannanna komu
í heimsókn í leikskólann, Jóhanna,
Jón og Maggý
Sú hugmynd kom fram að stofna
vinafélag Reykjakots þar sem ná-
grannar, fyrrverandi nemendur og
aðrir velunnarar geta verið með.
Ræddar voru hugmyndir um að
halda vinahátíð á Reykjakoti í vor
eða sumar auk annarra verkefna
sem hverfi ð og leikskólinn gætu unn-
ið að í sameiningu.
Hafsteinn sækist
eftir 2.-3. sæti
Hafsteinn
Pálsson
bæjarfulltrúi
hefur ákveðið
að gefa kost á
sér til áfram-
haldandi setu
í bæjarstjórn
í prófkjöri
sjálf stæðismanna sem fram fer
6. febrúar. Hafsteinn hefur verið
bæjarfulltrúi í sex ár og er nú
formaður fræðslunefnd ar. Hann
er þekktur fyrir störf innan
íþróttahreyfi ngarinnar, bæði
innan Aftureldingar og ÍSÍ þar
sem hann hefur verið í stjórn frá
1992. Hann er með doktorspróf í
verkfræði og kvæntur Láru Torfa-
dóttur kennara. Eiga þau þrjú
börn, Guðrúnu Ernu, Jóhönnu
Rut og Snævar Inga.
ÁLAFOSSKÓRINN
Getum bætt við okkur söngfólki í allar raddir,
Kórinn er blandaður kór og er 30 ára á þessu ári.
Góður og jákvæður hópur.
Upplýsingar í síma 8689790
Helgi söngstjóri og 8621600 Hjördís formaður.
vegna bæjarstjórnarkosninga vorið 2010
PrófkjörSamfylkingarinnar
í Mosfellsbæ
Kjörstjórn Samfylkingarinnar
í Mosfellsbæ
Prófkjörið fer fram laugardaginn 30. janúar 2010
í húsnæði Samfylkingarinnar Þverholti 3, Mos-
fellsbæ, frá kl. 10:00 til 16:00.
Rétt til að greiða atkvæði í prófkjörinu hafa allir
félagsmenn í Samfylkingunni í Mosfellsbæ sem
náð hafa 16 ára aldri á prófkjörsdag og hafa verið
skráðir í Samfylkinguna fyrir lokun kjörskrár á
miðnætti laugardaginn 16. janúar 2010.
Nánari upplýsingar á ww.xs.is/mos og hjá for-
manni kjörstjórnar, Ólafi Inga Óskarssyni,
í síma 660 8304.
Minnum á morgunverðarfund Samfylkingarinnar
laugard. 16. janúar í Þverholti 3, frá kl.11:00 til 13:00.
Frambjóðendur verða á staðnum. Allir velkomnir!
Bryndís gefur kost
á sér í 2. sætið
Bryndís Har-
alds, athafna-
móðir gefur
kost á sér í
prófkjöri sjálf-
stæðismanna
sem fram fer
6. febrúar.
Bryndís hefur
verið varabæjarfulltrúi frá árinu
2002 á þeim tíma hefur hún
gegnt formennsku í atvinnu- og
ferðamálanefnd og skipulags-
og bygginganefnd. Bryndís var
varaþingmaður á árunum 2003-
2009 og tók tvisvar sæti á þingi.
Bryndís hefur tekið virkan þátt í
starfi fl okksins frá árinu 2002.
Hún er viðskiptafræðing ur, gift
Örnólfi Örnólfssyni rafvirkja-
meistara og eiga þau þrjú börn.
Frekari upplýsingar um Bryndísi
og framboð hennar má fi nna á
www.bryndisharalds.is. Júlía gefur kost
á sér í 5.-7. sæti
Júlía Margrét
Jónsdóttir hef-
ur ákveðið að
taka áskorun
og bjóða sig
fram í prófkjör
Sjálfstæðis-
fl okksins sem
fram fer 6. fe-
brúar. Júlía Margrét situr í stjórn
Sjálfstæðisfélagsins í Mosfells-
bæ. Hún er virkur félagsmaður
í FKA, félagi kvenna í atvinnu-
rekstri. Hún starfar sem fram-
kvæmda- og framleiðslustjóri
hjá Súgó/Máná ehf. ásamt því
að starfa með manni sínum í
fyrirtæki þeirra SteinTeppi.is.
Júlía hefur einlæg an áhuga á
atvinnumálum og upp byggingu
atvinnutækifæra eins og sam-
félagsmálefnum og þeim málefn-
um sem varða börnin okkar, og
framtíð bæjarfélagsins.
Falleg skreytingar
í Aðaltúni 10 og 12
Orkuveita Reykjavíkur veitti
á dögunum viðurkenningar
fyrir jólaljósaskreytingar á veitu-
svæði fyrirtækisins. Í Mosfells-
bæ voru það íbúar í Aðaltúni 10
og 12 sem fengu viðurkenningu
í ár. Í umsögn dómnefndar segir
að parhúsið sé fallega skreytt og
myndi samstæða heild.
Mosfellingar keppa undir merkjum Aspar
Nýársmót fatlaðra barna
Leikskólinn Reykjakot stefnir að stofnun vinafélags
Hlýhugur frá nágrönnum