Litli Bergþór - 01.12.2015, Page 6

Litli Bergþór - 01.12.2015, Page 6
6 Litli-Bergþór Húsin í Laugarási Páll M. Skúlason: Hér er fram haldið samantekt á þeim húsum sem risið hafa í Laugarási og íbúum þeirra. Enn er um að ræða þá sem tóku upp búsetu í Laugarási fyrir þann tíma sem mesta fjölgunin átti sér stað í þorpinu eftir miðjan sjöunda áratuginn. Milli 1961 og 1970 voru stofnuð 11 ný garðyrkjubýli, 9 þeirra eftir 1965. Það má kannski segja að Ljósaland, Ekra og Heiðmörk hafi markað upphaf þeirrar fjölgunar sem þarna átti sér stað. Þá var á þessum tíma einnig byggð heilsugæslustöðin og læknisbústaðurinn í Launrétt 2. LAUGARGERÐI 1958 Hjalti Ólafur Elías Jakobsson (f. 15.03. 1929, d. 18.06. 1992) og Fríður Esther Pétursdóttir (f. 21.03. 1935) fluttu í Biskupstungur úr Mosfellssveit í janúar 1954 til starfa við garðyrkjustöð í Reykholti. Þar bjuggu þau fyrst í litlum kofa í Gufuhlíð, en fluttu síðan í Stórafljót. Það var svo 1957 sem þau fluttu í Laugarás, stofnuðu Laugargerði og bjuggu fyrstu árin í Lauftúni (Einarshúsi/ Silfurhúsinu). Þá voru börnin orðin þrjú og fljótlega bættust við tvö til viðbótar og því var orðið ansi þröngt um fjölskylduna í 45 m² húsinu í Lauftúni. Í lok árs 1965 flutti fjölskyldan í nýbyggt íbúðarhús, vestan Skálholtsvegar í Kirkjuholti. Ingólfur Jóhannsson á Iðu sá um húsbygginguna. Land Laugargerðis er beggja vegna Skálholts- vegar og á þeim hluta sem liggur að landi Hveratúns, reistu Hjalti og Fríður garðyrkjustöð sína. Hjalti lést 1992, en Fríður hefur búið áfram í Laugargerði, fyrst ein, en frá aldamótum ásamt Reyni Ásberg Níelssyni (f. 26.04. 1931). Fríður og Hjalti eignuðust sex börn, en þau eru: Pétur Ármann (f. 22.11. 1953) býr á Selfossi, Erlingur Hreinn (f. 22.07. 1955) býr í Reykjavík, en byggði og á hús í Vesturbyggð 3, Hafsteinn Rúnar (f. 18.02. 1957) býr á Selfossi, Jakob Narfi (f. 02.02. 1960) býr í Lyngbrekku/Vesturbyggð 6, Guðbjörg Elín (f. 13.12. 1964) býr á Selfossi og Marta Esther (f. 08.08. 1968) býr á Kópsvatni í Hrunamannahreppi. Ítarlegt viðtal við Fríði er að finna í Litla Bergþóri, 1. tbl, 34. árg. 2013 Sigmar Sigfússon (f. 31.12. 1932, d. 17.07. 2001) og Sigríður Pétursdóttir (f. 17.04. 1936) komu í Laugarás 1959 og fengu inni í biskupshúsinu í Skálholti meðan þau voru að koma sér upp aðstöðu í Laugarási, en þar reistu þau sambyggt íbúðarhús og véla- og renniverkstæði, vestan Skálholtsvegar, fyrir neðan núverandi Vesturbyggð. Þau fluttu í það 1960. Sigmar starfaði mest að smíðaverkefnum fyrir aðila í Reykjavík, t.d. ýmsar stofnanir og skóla, seinni árin vann hann talsvert fyrir Þjóðminjasafnið, en hann tók einnig að sér viðgerðir fyrir nágrannana. SIGMARSHÚS 1960 Hjalti og Fríður. Reynir Ásberg. Laugargerði. Sigríður og Sigmar.

x

Litli Bergþór

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.