Litli Bergþór - 01.12.2015, Qupperneq 12
12 Litli-Bergþór
Geirþrúður Sighvatsdóttir:
Eins og undanfarin ár, stóð Kvenfélag Biskupstungna
fyrir haustferð eldri borgara og í ár var, eins og í fyrra,
kvenfélagskonum og mökum þeirra einnig boðið með
í ferðina. Voru það rúmlega 40 manns sem lögðu af
stað frá Aratungu föstudaginn 4. september um kl 13.
Fararskjótinn var rúta frá ÞÁ, í boði sveitarstjórnar
og var ferðinni heitið í Borgarfjörð. Fararstjórar
voru kvenfélagskonurnar Herdís Friðriksdóttir og
Aðalheiður Helgadóttir og sáu þær um að fólki leiddist
ekki í rútunni með frásögnum og upplestri úr sögum
sem tengdust þeim stöðum sem keyrt var um.
Lá leiðin um Laugarvatn, Þingvelli og Uxahryggi,
niður Lundarreykjadal og yfir í Hvítársíðu, þar sem
æskustöðvar Guðmundar Böðvarssonar á Kirkjubóli
voru heimsóttar. Þar fengum við vöfflukaffi og
Bjarmalandsferð
í Borgarfjörð
Ferðafélagar fyrir utan gistiheimilið og veitingastaðinn á Kirkjubóli, en þar hafa gamalt fjós og hlaða skipt um hlutverk.
Ingibjörg Daníelsdóttir sagði okkur frá Guðmundi og
las úr bókum hans.
Frá Kirkjubóli ókum við að Hraunfossum og
Barnafossi, gengum um svæðið og dáðumst að
náttúrufegurð staðarins í góðu veðri, áður en við
héldum að Húsafelli að heimsækja náttúrubarnið og
fjöllistamanninn Pál Guðmundsson. Tók Páll á móti
okkur af rausnarskap, sýndi okkur verk sín, þar á meðal
málverk af ýmsum merkum mönnum og nágrönnum
sínum úr Laugardalnum og sagði frá tilurð þeirra,
en hann er ættaður frá Hjálmsstöðum í Laugardal.
Var ekki vandi að þekkja þá sem á myndunum
voru. Svo spilaði hann m.a. frumsamda tónlist á
rabbarbaraflautur og steinaspil stór og smá, sem hann
hefur gert úr grjóti úr gilinu ofan við Húsafell. Var
mjög gaman að heimsækja hann og kynnast öllum
þeim listaverkum sem hann hefur sett saman.
Frá Húsafelli lá leiðin í Borgarnes, þar sem við
snæddum kvöldverð á Landnámssetrinu í boði Kven-
félagsins og heim í Aratungu vorum við svo komin
síðla kvölds eftir vel heppnaða ferð.
Er samferðarfólkinu og þeim sem styrktu og skipu-
lögðu ferðina, Kvenfélagi og sveitarstjórn, sendar
kærar þakkir fyrir samveruna og skemmtilega ferð.
Guðjón á Tjörn og Hildur María á Spóastöðum ræða málin yfir kvöld-
verðinum.