Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 9

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 9
26. október 2018 FRÉTTIR 9 Betri Svefn meðlimur þá er þetta ekkert á okk- ar borði.“ Aðspurður um aðgerðir vegna málsins segir Haraldur að í um- sóknarferlinu til að gerast með- limur í félaginu verði beðið um sakavottorð. „Okkur hafði ekki dottið það í hug en greinilega fínt að hafa. Það hefði ekki stoppað Jó- hannes því hann hefur aldrei verið dæmdur.“ Haraldur segir málið slæmt fyr- ir alla meðhöndlara á landinu. „En í rauninni er þetta kostur fyrir okkur þannig séð, þó það sé kalt að segja það, því það sýnir mikilvægi þess að velja fagmenn. Þarna er maður sem heyrir ekki undir neitt og er ennþá bara starfandi. Segjum sem svo að ég hafi gert þetta, þá væri búið að stoppa mig. Ostreopatar eru löggild heilbrigðisstétt, heyra undir Land- lækni og ég yrði stoppaður eins og skot.“ Afstaða byggð á öfund Steinbergur gefur í skyn að af- staða félaganna þriggja megi rekja til vinsælda Jóhannesar sem með- höndlara. „Í ljósi þessa er auðvitað líka sérstakt að fagfélög á borð við félag sjúkranuddara og fleiri félög sem væntanlega vilja láta taka sig alvarlega skuli álykta um málið án þess að hafa á því nokkra þekkingu utan umfjöllunar fjölmiðla. Sú stað- reynd að skjólstæðingur minn hef- ur tekið á móti yfir fimmtíu þúsund heimsóknum ánægðra viðskipta- vina af báðum kynjum og á öll- um aldri án þess að tilheyra nein- um einum hópi fagfólks hér á landi kann að hafa þar einhver áhrif.“ Kallaður „galdrakallinn“ Jóhannes Tryggvi er vel þekktur innan íslenska mótorkrossheims- ins. Hann hefur gefið sér gott orð sem meðhöndlari og hefur unnið með íþróttamönnum á borð við Gunnar Nelson og Aron Jóhanns- son. Fjallað var um Jóhannes í Bændablaðinu árið 2014, þar kom fram að frægð hans væri orðin svo mikil að hann væri orðinn „nuddari og galdralæknir keppnisliðs Honda í Dakar-keppninni“. Í færslu á Instagram ári síðar þakkaði Hafþór Júlíus Björnsson, kraftajötunn, Jó- hannesi opinberlega fyrir að halda sér frá meiðslum fyrir keppnina Sterkasti maður í heimi. Knattspyrnumaðurinn Aron Jó- hannsson ræddi um Jóhannes í við- tali við Vísi árið 2016. „Eftir tvær vikur hjá honum var hann búinn að hjálpa mér meira en allir aðrir í fimm mánuði. Ég kalla hann alltaf galdrakarlinn, en ég á honum mik- ið að þakka,“ sagði Aron. Á heimasíður Postura má finna fjölda jákvæðra umsagna um starf- ið frá þekktum afreksíþróttamönn- um. Meðal þeirra sem gefa umsögn eru Aron Jóhannsson atvinnumað- ur í knattspyrnu, Pétur Gunnarsson heimsmeistari í samkvæmisdöns- um og Eyþór Örn Baldursson Ís- landsmeistari í áhaldafimleikum undir 18 ára. Einnig breski mótor- hjólakappinn Johnny Campbell. Aron segir: „Var búinn að glíma við erf- ið meiðsli í nára í langan tíma og búinn að flakka á milli virtra sér- fræðinga víðs vegar um Evrópu. Það var ekki fyrr en ég komst til Jóa þegar mér for að liða betur. Kippti mér í lag á nokkrum tímum þessi meistari.“ Aftaka almennings Steinbergur segir að um sé að ræða dæmigert mál sem snýst um að skjóta fyrst og spyrja svo. „Það er líka auðvelt í andrúmslofti undan- farinna missera að vekja upp spurn- ingar um hugsanlegt kynferðislegt áreiti og jafnvel misnotkun af ein- hverju tagi. Ég hef sagt að e.t.v. sé það einmitt tilgangurinn að fram- kvæma aftökuna hjá almenningsá- litinu en láta það svo ráðast á seinni stigum hvort ástæða þyki til ákæru og ennþá síðar hvort dómstólar úr- skurði um sekt eða sýknu. Rétturinn til þess að teljast saklaus þar til sekt er sönnuð er einfaldlega orðinn að engu í samfélagi netvæddra sam- skipta þar sem einstaklingurinn er í raun sjálfstæður fjölmiðill og hefð hefur myndast fyrir því að í lagi sé að láta nánast hvað sem er flakka,“ segir Steinbergur. Eins og áður segir hefur Jóhann- es samkvæmt heimildum DV í þrí- gang verið kærður fyrir kynferð- isbrot. Hann hefur aldrei verið dæmdur og öll hans mál verið felld niður. Jóhannes var kærður árið 2005 grunaður um brot gegn 14 ára stúlku. Hann hefur tvisvar áður ver- ið kærður fyrir meint kynferðisbrot í starfi, annað málið var látið nið- ur falla síðastliðin jól, hitt málið var fellt niður í september síðastliðn- um. Nú hafa eins og áður segir yfir tuttugu konur leitað til sama lög- fræðingsins. Nokkrar þeirra hafa nú þegar lagt fram kæru. Jóhannes hef- ur í gegnum lögfræðing sinn lýst sig saklausan af meintum brotum. DV hefur ítrekað reynt að ná tali af Jóhannesi en án árangurs. Sam- kvæmt heimildum hefur hann tekið þá ákvörðun að láta lögfræðing sinn um að tala fyrir sig í málinu. n „Þær eru fleiri, ég er að tala við fleiri konur á hverj- um degi sem lýsa því hvernig hann braut á þeim. Fjöldi mála Jóhannes var kærður árið 2005 grunaður um brot gegn 14 ára stúlku. Aron Jóhannsson Ein fjölmargra stjarna sem hefur nýtt sér þjónustu Postura. Postura.is Hafþór Júlíus sáttur eftir meðhöndlun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.