Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 20
20 FÓLK - VIÐTAL 26. október 2018 H eiðveig María Einarsdótt- ir boðaði fyrir skemmstu framboð sitt til formanns Sjómannafélags Íslands. Sú barátta hefur hins vegar ver- ið þyrnum stráð því að núverandi stjórn félagsins breytti reglunum um réttindi félagsmanna án heim- ilda, að því er virðist til að hindra að framboð líkt og hennar nái fram að ganga. Af þessu hafa hlot- ist mikil átök en Heiðveig stendur keik og telur að lög félagsins hafi verið brotin. DV ræddi við Heið- veigu um þessa framvindu, æsku- árin og sjómennskuna. Vissi aldrei hvenær pabbi kæmi eða færi Heiðveig er Vestfirðingur að upp- runa og fædd inn í mikla sjó- mannaætt árið 1979. Fyrstu árin ólst hún upp á Tálknafirði og í Reykjavík, elst fjögurra systkina. Faðir hennar, Einar Jóhannsson, var sjómaður og síðar stýrimað- ur og skipstjóri og móðir hennar, Þórdís Ólafsdóttir, því mikið ein með börnin. „Þegar ég var þrettán ára vorum við fjölskyldan rifin upp og gert að flytja til Siglufjarðar. Pabbi var ráð- in þangað sem afleysingaskipstjóri og stýrimaður á togara og bæjar- félagið vildi útsvarið. Sem ung- lingi fannst mér ekki spennandi að flytja þangað úr Breiðholtinu, þar sem ég var á fullu í íþróttum og félagslífi. Ég ætlaði nú ekki að flytja með og pakkaði ekki saman í herberginu fyrr en rétt áður en gámurinn kom til að sækja bú- slóðina,“ segir Heiðveig og hlær. Af hverju fórst þú á sjóinn? „Ég skildi ekki af hverju pabbi var alltaf svona lengi í burtu og af hverju við fengum sjaldnast að vita neitt um hvenær hann kæmi eða færi, ekki einu sinni hvort planið væri að vera á Íslandsmiðum eða ekki. Á þessum tíma var senni- lega minna skipulag á hlutunum og útgerðunum hefur ekki þótt ástæða til að upplýsa fjölskyldur sjómanna um þessa hluti. En ég hef þá tilfinningu að það sé breytt í dag og til mikilla bóta. Í eitt skiptið, þegar ég var fjórt- án eða fimmtán ára, var hann bú- inn að vera meira en níutíu daga í burtu í einu. Veiðiferðirnar voru alltaf framlengdar og hann þurfti að taka aukatúra, þá var skipið gert út frá Flæmska hattinum. Þá ákvað ég að ég yrði að prófa að fara á sjó. Ég vissi að pabba þætti vænt um okkur og það hlaut að vera eitt- hvað meira í þessu en aðeins vinn- an, fyrst hann gat verið svona lengi frá okkur.“ Ráðum ekki konur Á Siglufirði snerist lífið um sjáv- arútveg og Heiðveig kynnt- ist snemma öllum hliðum fisk- vinnslu, rækjuvinnslu, saltfiski og fleiru. Þegar aflinn var mikill var hringt úr frystihúsinu í skólann til að Heiðveig og skólasystur henn- ar gætu fengið að fara fyrr til að vinna. Atvinnulífið hafði forgang. Í kringum tvítugt ákvað hún að reyna fyrir sér sem háseti og faðir hennar hvatti hana til að sækja um á skipum rétt eins og aðrir myndu gera. „Ég sótti um allt frá smábátum upp í togara. Flestir sögðu nei og sumir hlógu. Aðrir sögðu mér að hringja aftur eftir viku og því hélt ég utan um símtölin í stílabók.“ Fannst þeim skrýtið að stúlka væri að sækja um? „Margir sögðust ekki ráða kon- ur, punktur,“ segir Heiðveig með áherslu. „Aðrir reyndu að tala um fyrir mér og sögðu að ég hefði ekk- ert að gera í þetta. Ég komst loksins á togara frá Hafnarfirði sem heitir Ýmir, því það vantaði mann. En ég þurfti að þræta við skipstjórann og sannfæra hann að þetta væri sama vinna og í frystihúsinu. Hann þurfti að fá leyfi frá eigandanum, Guðrúnu í Stálskipum, sem var nú oft talin harðstjóri. Loks fékk ég að fara ef ég borgaði slysavarna- skólann sjálf. Ég hafði hálftíma til að drífa mig út í Fjarðarkaup til að kaupa nærbuxur og sokka og síð- an fórum við á fínan þrjátíu daga úthafskarfatúr.“ Heiðveig segir að í upphafi hafi hún ekki séð sjómennskuna fyrir sér sem framtíðarstarf heldur hafi hún aðeins verið að athuga hvort þetta væri virkilega eitthvað sem varið væri í. „Mér fannst þetta æði. Á þess- um tíma var ekkert internet, ég var vakinn og búið að elda fyrir mig í hvert skipti sem ég fór á fæt- ur og í lok vaktar. Síðan vann ég eftir klukkunni og fór að sofa eft- ir vakt. Þessi rammi og þetta næði var einstaklega heillandi og hent- aði mér.“ Mátti ekki vera ólétt á sjó Heiðveig starfaði næstu árin sem sjómaður, til skiptis sem háseti og kokkur á frystitogara. Um miðj- an þrítugsaldurinn varð hún ólétt af elstu dóttur sinni og neyddist hún þá til þess að hætta um tíma. Heiðveigu fannst það fúlt því hún var fullfrísk en þessar reglur voru gerðar vegna fjarlægðarinnar frá næsta sjúkrahúsi. Hún glímdi þá við smávægiskvilla á með- göngunni. Til að hafa eitthvað fyr- ir stafni fór hún því í viðskiptalög- fræðinám í Háskólanum á Bifröst. Þegar tvö börn bættust við fór Heiðveig í framhaldsnám í verk- efnastjórnun og sjálfbærum orku- vísindum í Háskólanum í Reykja- vík og Háskóla Íslands. Eftir það vann hún ýmis störf, til dæmis við stefnumótun og verkefnastjórn- un hjá Veðurstofunni í tengslum við eldfjallafræði. Einnig sjálfstætt starfandi sem rekstrarráðgjafi og viðskiptalögfræðingur fyrir fyrir- tæki. En hafið togaði alltaf. „Þegar verkfallið skall á í fyrra fór ég að skoða kjaramálin því að líf mitt hefur alla tíð mótast af kjör- um og aðbúnaði sjómanna. Ég sá að þarna var margt að og óunnið verk fyrir höndum. Það hefur alltaf verið sami ómur í þessum mál- um, alltaf verið að tala um verð og alltaf þessi ótti við atvinnurekand- ann og óttinn við að hafa skoðanir. Sjálf hafði ég upplifað þetta þegar við sex manna fjölskyldan neydd- umst til að flytja til Siglufjarðar þar sem það þótti eðlilegt að sveitar- félagið gerði þá kröfu til útgerð- anna að þeir menn sem störfuðu á skipunum þeirra hefðu þar lög- heimili. Kerfið býður upp á þessa pressu frá sveitarfélögunum og út- gerðarfélögunum. Með reynslu og „Ég sótti um allt frá smábátum upp í togara. Flestir sögðu nei og sumir hlógu. Heiðveig í ólgusjó n Hörð átök í Sjómannafélagi Íslands n Fór á sjóinn um tvítugt n Fjarlægðin frá börnunum erfið MYND HANNA Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.