Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 21

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 21
FÓLK - VIÐTAL 2126. október 2018 ÞÚ FÆRÐ MYNDVARPANN HJÁ OKKUR 325” 4K þroska fór ég að hugsa hlutina upp á nýtt og fannst ég þurfa að koma því til skila.“ Tilfinningar sjómanna og maka þeirra Heiðveig fór um þetta leyti aftur á sjóinn og hefur starfað síðan þá sem háseti og kokkur til skiptis. Þá vinnur hún enn við ráðgjöf og við- skiptalögfræði. Hvað er það besta við að vera á sjó? „Friðurinn,“ segir Heiðveig og brosir. „Aftengingin við allt áreiti. Ég hefði líklega einhvern tímann verið greind ofvirk, og ég er alveg pottþétt með athyglisbrest. Fyrir manneskju sem vinnur svona mik- ið með hausnum og fær endalaust af hugmyndum til að hugsa um, þá er þetta algjör lúxus. Sérstaklega að elda þar sem matargerð er sérlegt áhugamál mitt.“ En það versta? „Fjarlægðin frá börnunum. Ég finn oft fyrir óbilandi söknuði, sér- staklega þegar ég heyri í þeim og þau eru lítil í sér. Ég venst því aldrei. En þau eru fljót að finna sér leiðir. Dóttir mín sagði til dæmis að hún væri leið þegar bæði ég og pabbi þeirra erum á leið út á sjó, sem stundum skarast, en það sé samt allt í lagi af því að það er svo gaman þegar við komum til baka. Það er dásamleg stund þegar börnin geta tekið á móti manni á bryggjunni.“ Heldur þú að það sé erfiðara fyrir konur en karla? „Kannski að vinna líkamlega en við kynin erum misjafnlega byggð. Hvað varðar fjarveruna þá er það ekki svo. En það er snúið að vera sjómannskona því að þú verður að sætta þig við að makinn fari í burtu kannski allt upp í mánuð í senn. Maður áfellist alltaf þann sem er að fara, það er eðlileg tilfinning og ég upplifði það fyrst. Eins og þetta væri hans val. En ég hef séð þetta frá báðum hliðum og það er alveg jafn vont, eða jafnvel verra, að fara sjálfur. Aðeins ef maður er sáttur getur þetta gengið upp. En þetta er erfið staða því að maður er eins og einstætt foreldri án þess að vera það beinlínis.“ Fær maður samviskubit yfir því að fara á sjóinn frá fjölskyldunni? „Já, vott af samviskubiti og söknuði. Sérstaklega ef makinn heima kennir þér um að vera skil- inn eftir. Ég hef ekki upplifað það nema rétt í byrjun en bæði verið með mönnum á sjó sem hafa upp- lifað það og svo átt samtöl við aðr- ar sjómannskonur sem ómeðvit- að bera þessar tilfinningar. Ofan á þetta missir maður af mörgum við- burðum og tímamótum í lífi barn- anna, fjölskyldu og vina.“ Sjómenn eftir á í kjarabaráttu Í kringum verkfallið fór Heiðveig að skrifa pistla um kjaramál

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.