Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 30
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Árið 2011 hófu eigendur Leift-ur verslun að flytja inn Axkid bakvísandi barnabílstólana
og í kjölfarið varð Leiftur vefverslun
að veruleika árið 2013.
„Í dag bjóðum við upp á allar ör-
yggisvörur fyrir barnafjölskyldur og
meira en það,“ segir Benedikt Ár-
mannsson hjá Leiftur verslun.
„Axkid barnabílstólarnir eru
sænskir bakvísandi gæðastólar.
Bakvísandi stólar eru meira en fimm
sinnum öruggari en framvísandi
stólar og mælum við með því að börn
séu bakvísandi sem lengst. Minikid
stóllinn er vinsælastur, hann er fyrir
börn 0-25 kg., sem er fyrir 0-5 ára
börn, þó að ég hafi séð börn allt að
sjö ára aldri í þeim. Stólarnir eru
langir og þægilegt er fyrir börnin að
sitja í þeim og sitja lengi í þeim,“ segir
Benedikt. „Það er þægilegt að festa
stólinn í bílinn og fer lítið fyrir honum.“
Minikid stóllinn fæst í fimm litum:
svartur, bleikur, blár, rauður og grár.
Mælir Benedikt þó ávallt með því að
nota ungbarnabílstól fyrir börnin til
að byrja með.
Þar sem bílstóllinn vísar bakinu
að bílstjóra, er einnig gott að kaupa
spegil sem festa má á höfuðpúðann,
svo hægt sé að fylgjast með barninu.
Fæst hann einnig hjá Leiftur verslun.
Kannanir hafa sýnt að allt að 80%
af stólum eru rangt festir.
„Við viljum að fólk máti stólinn í
bílinn og barnið í stólinn. Við aðstoð-
um fólk við að festa stólana í bílinn og
fólk getur alltaf komið aftur ef það er
óöruggt með að stólinn sé ekki rétt
festur. Sem dæmi má nefna þá var
einn hjá mér í dag sem var kominn
með nýtt barn í stólinn og vildi bara
vera viss um að allar festingar væru
réttar. Um 80% stóla eru rangt festir
skv. könnunum, en flestir sem eru
með bakvísandi stóla eru mjög með-
vitaðir um stólana hjá sér og öryggið.“
Firstbike jafnvægishjólin – Börn eru
enga stund að læra að hjóla
Leiftur verslun selur einnig Firstbike
jafnvægishjólin, en með þeim læra
börn að hjóla án hjálpardekkja. Hjólin
má skoða bæði á firstbike.is eða
leiftur.is. „Hjólin eru ætluð börnum á
aldrinum 2-5 ára, en börn geta notað
þau með lækkunarbúnaði frá 2 ára
aldri,“ segir Benedikt.
Hjólin koma í einni stærð, en
týpurnar eru fjórar, í mismunandi
litum og með mismunandi dekkjum. Á
öllum hjólunum er handbremsa.
„Börnin hlaupa eða labba með
hjólunum og ná jafnvæginu ótrúlega
hratt, það er ótrúlegt að sjá 2 ára
barn ná jafnvæginu bara á einum
degi. Þau eru farin að hjóla með þér
bara eftir 1-2 daga.“
Leiftur verslun selur einnig ung-
barnabílstóla og sessur með baki.
„Hjá okkur fæst allt frá snuðum upp í
trampólín,“ segir Benedikt, „við bjóð-
um upp á gæðahluti á góðu verði og
handveljum inn gæðavörur í sölu hjá
okkur. Við erum með allskonar ör-
yggisbúnað fyrir heimili þar sem börn
eru, hornhlífar, læsingar og fleira. Við
seljum barnavagna og trampólín sem
eru ein af þeim öruggustu sem hægt
er að fá.“
Leiftur verslun selur einnig Snuza
lífvaktina. Hún er sett á bleyju barns-
ins og nemur andardrátt þess og
lætur vita ef öndun verður óregluleg
eða hættir. Snuza fæst í Móðurást,
Fífu og hjá Leiftur verslun.
Allt úrvalið má skoða í vefverslun
Leiftur verslun á leiftur.is og bil-
stolar.is og í barnavöruversluninni
Litli Gleðigjafinn á Akureyri. Hluti af
vörunum fást í Móðurás, Fífu, Heim-
kaup og fleiri stöðum á höfuðborgar-
svæðinu. Hægt er að skoða og máta
barnabílstólana í Mosfellsbæ.
Allar upplýsingar má fá í síma 412-
2990 og á netfanginu leiftur@leiftur.
is.
LEIFTUR VERSLUN:
Börnin eru örugg í
Axkid-barnabílstólunum