Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 30

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Blaðsíða 30
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ Árið 2011 hófu eigendur Leift-ur verslun að flytja inn Axkid bakvísandi barnabílstólana og í kjölfarið varð Leiftur vefverslun að veruleika árið 2013. „Í dag bjóðum við upp á allar ör- yggisvörur fyrir barnafjölskyldur og meira en það,“ segir Benedikt Ár- mannsson hjá Leiftur verslun. „Axkid barnabílstólarnir eru sænskir bakvísandi gæðastólar. Bakvísandi stólar eru meira en fimm sinnum öruggari en framvísandi stólar og mælum við með því að börn séu bakvísandi sem lengst. Minikid stóllinn er vinsælastur, hann er fyrir börn 0-25 kg., sem er fyrir 0-5 ára börn, þó að ég hafi séð börn allt að sjö ára aldri í þeim. Stólarnir eru langir og þægilegt er fyrir börnin að sitja í þeim og sitja lengi í þeim,“ segir Benedikt. „Það er þægilegt að festa stólinn í bílinn og fer lítið fyrir honum.“ Minikid stóllinn fæst í fimm litum: svartur, bleikur, blár, rauður og grár. Mælir Benedikt þó ávallt með því að nota ungbarnabílstól fyrir börnin til að byrja með. Þar sem bílstóllinn vísar bakinu að bílstjóra, er einnig gott að kaupa spegil sem festa má á höfuðpúðann, svo hægt sé að fylgjast með barninu. Fæst hann einnig hjá Leiftur verslun. Kannanir hafa sýnt að allt að 80% af stólum eru rangt festir. „Við viljum að fólk máti stólinn í bílinn og barnið í stólinn. Við aðstoð- um fólk við að festa stólana í bílinn og fólk getur alltaf komið aftur ef það er óöruggt með að stólinn sé ekki rétt festur. Sem dæmi má nefna þá var einn hjá mér í dag sem var kominn með nýtt barn í stólinn og vildi bara vera viss um að allar festingar væru réttar. Um 80% stóla eru rangt festir skv. könnunum, en flestir sem eru með bakvísandi stóla eru mjög með- vitaðir um stólana hjá sér og öryggið.“ Firstbike jafnvægishjólin – Börn eru enga stund að læra að hjóla Leiftur verslun selur einnig Firstbike jafnvægishjólin, en með þeim læra börn að hjóla án hjálpardekkja. Hjólin má skoða bæði á firstbike.is eða leiftur.is. „Hjólin eru ætluð börnum á aldrinum 2-5 ára, en börn geta notað þau með lækkunarbúnaði frá 2 ára aldri,“ segir Benedikt. Hjólin koma í einni stærð, en týpurnar eru fjórar, í mismunandi litum og með mismunandi dekkjum. Á öllum hjólunum er handbremsa. „Börnin hlaupa eða labba með hjólunum og ná jafnvæginu ótrúlega hratt, það er ótrúlegt að sjá 2 ára barn ná jafnvæginu bara á einum degi. Þau eru farin að hjóla með þér bara eftir 1-2 daga.“ Leiftur verslun selur einnig ung- barnabílstóla og sessur með baki. „Hjá okkur fæst allt frá snuðum upp í trampólín,“ segir Benedikt, „við bjóð- um upp á gæðahluti á góðu verði og handveljum inn gæðavörur í sölu hjá okkur. Við erum með allskonar ör- yggisbúnað fyrir heimili þar sem börn eru, hornhlífar, læsingar og fleira. Við seljum barnavagna og trampólín sem eru ein af þeim öruggustu sem hægt er að fá.“ Leiftur verslun selur einnig Snuza lífvaktina. Hún er sett á bleyju barns- ins og nemur andardrátt þess og lætur vita ef öndun verður óregluleg eða hættir. Snuza fæst í Móðurást, Fífu og hjá Leiftur verslun. Allt úrvalið má skoða í vefverslun Leiftur verslun á leiftur.is og bil- stolar.is og í barnavöruversluninni Litli Gleðigjafinn á Akureyri. Hluti af vörunum fást í Móðurás, Fífu, Heim- kaup og fleiri stöðum á höfuðborgar- svæðinu. Hægt er að skoða og máta barnabílstólana í Mosfellsbæ. Allar upplýsingar má fá í síma 412- 2990 og á netfanginu leiftur@leiftur. is. LEIFTUR VERSLUN: Börnin eru örugg í Axkid-barnabílstólunum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.