Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 31

Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Page 31
Öryggi 26. október 2018 KYNNINGARBLAÐ Fyrirtækið Sölutraust hefur verið starfrækt í 15 ár og sérhæfir sig í sölu á ýmsum öryggisvörum, til dæmis sjúkrakössum og skyldum vörum, mengunarvarnarbúnaði og ör- yggismerkingum. En þessar mikilvægu vörur eru bara einn þáttur í starf- seminni. Þjónustan við viðskiptavini er ekki síður mikilvægur þáttur og kemur meðal annars fram í stöðugu viðhaldi á öryggisbúnaðinum og aðlögun að hverjum og einum viðskiptavini eftir aðstæðum hans. „Það hefur orðið hugarfarsbreyting í öryggismálum hér á landi og kæruleysi hefur minnkað og nánast undantekn- ing að starfsmenn noti ekki viðeigandi öryggisbúnað eins og öryggishjálma. Starfsfólk er í auknum mæli farið að gera kröfur til sinna vinnuveitenda um að öryggismál séu í lagi,“ segir Vignir Sigurðsson, framkvæmdastjóri Sölu- trausts. Lítið gagn af óáfylltum sjúkrakassa Einn mikilvægur liður í öryggismálum er að sjúkrakassi sé ekki bara til staðar heldur að hann sé ávallt uppfærður og sé með öllu því innihaldi sem fólk reiðir sig á. „Sjúkrakassinn er sambærilegur við slökkvitæki að því leyti að ef tekið er af án þess að fylla á aftur þá verða þessi tæki gagnslaus og skapa falskt öryggi. Hluti af okkar þjónustu er að fylla reglulega á sjúkrakassa og fylgj- ast með að allt sé í þeim sem þar á að vera. Til að minnka rót í sjúkrakössum út af skrámum og smáskeinum þá eru plástraskammtarar góð lausn og eru mjög margir af okkar viðskiptavinum búnir að koma sér upp slíkum búnaði. Einnig eru hafðir augnskols- og eða brunagelsplattar hjá sjúkrakössum sem hægt er að nýta sér eftir þörfum,“ segir Vignir. Augnskol og brunagel eru líka mikil- vægur sjúkra- og öryggisbúnaður sem Sölutraust tryggir að ávallt sé til reiðu þar sem þess er þörf. „Augnskol gegn ætandi efnum er bráðnauðsynlegt á stöðum þar sem menn geta fengið hættuleg efni í augu. Ég þekki dæmi um atvik þar sem rafgeymir sprakk og starfsmaður fékk rafgeymasýru í augun. Vinnustaðurinn var nýbúinn að fjárfesta í augnskolsbúnaði og það tókst að skola augu og andlit í tæka tíð. Maðurinn kom til vinnu eftir fjóra daga með heil augu,“ segir Vignir. Olíuþerriklútar og flotgirðingar Mengunarvarnarbúnaður er annar mikilvægur þáttur í starfsemi Sölu- trausts. Ber þar hæst olíuþerriklúta sem nýtast til að halda vinnusvæðum hreinum sem eykur í senn öryggi og ánægju á vinnustað, og hins vegar flotgirðingar sem lágmarka skaða af mengunarslysum. „Ef olía fer í sjó er flotgirðingu kastað út og hún hreinsar upp mengunina á stuttum tíma. Þetta eru uppsogspulsur sem fljóta á vatni og draga eingöngu í sig olíukennda vökva – en ekki vatn,“ segir Vignir. Fyrir utan þetta eru ónefndar vörur á borð við öryggis- og aðvörunarskilti, sápur og hreinsiefni, fellistiga, hring- stiga og flóttastiga. Einnig má nefna LED-ljós fyrir útivistarfólk. Nánari upplýsingar eru á vefsíðunni solutraust.is. SÖLUTRAUST: Uppfærður öryggisbúnaður

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.