Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.2018, Side 32
Öryggi 26. október 2018KYNNINGARBLAÐ
Jón Viðar Arnþórsson er meðal annars þekktur fyrir að hafa stofnað íþróttafélagið Mjölni
en í dag er hann með nýtt félag sem
heitir ISR Matrix. Jón Viðar hefur
staðið fyrir sjálfsvarnarnámskeiðum
fyrir konur árum saman. Sunnudaginn
25. nóvember hefst nýtt námskeið,
ISR Clutch, sem er ætlað fyrir karla og
konur frá 16 ára aldri.
„Hingað til hef ég bara kennt
karlmönnum öryggistök og bar-
dagaíþróttir en þetta verður mun
víðtækara, þarna læra þeir allan
pakkann. Allt frá því að slá frá sér og
verja sig yfir í að beita nánast hvaða
brögðum sem er, allt eftir því hvers
aðstæður krefjast. Kerfið er hannað
með það í huga að á götunni, í villtum
heimi ofbeldis, þá gilda engar reglur
og það verður að taka mið af því. Líkja
má þessu við MMA fyrir götuna. Inni
í þessari kennslu er meðal annars
beiting vopna og mikil taktík,“ segir
Jón Viðar.
Á fyrsta kennsludegi verður kennt
sex tíma grunnnámskeið og fólk
getur síðan haldið áfram inn í stig-
vaxandi framhaldsnámskeið ef það
kýs svo. Námskeiðið reynir bæði á
andlegan og líkamlegan styrk. „Þetta
kerfi er notað af sérsveit bandaríska
flughersins og er gríðarlega öflugt.
Áherslan er á að verja þig og yfir-
buga árásarmann með mjög skjótum
hætti,“ segir Jón.
Lokuð sjálfsvarnarnámskeið fyrir
konur
Jón Viðar hefur haldið sjálfsvarnar-
námskeið fyrir konur allt frá árinu 2011
en undanfarin misseri hefur orðið mikil
þróun í þessari kennslu hans:
„Síðasta eina og hálfa árið hef ég
verið að kenna ISR CAT kerfið sem
er miklu betra en það sem ég notaði
áður. Þetta nær yfir víðtækara svið
og hefur verið þróað fyrir stelpur í
bandaríska hernum sem eru sendar
sem njósnarar á hættuleg svæði í
Mexíkó, Afganistan, Íran og víðar, þar
sem þær geta þurft að bjarga sér úr
lífshættulegum aðstæðum.“
Jón Viðar segir að þessi þjálfun sé
orðin mjög yfirgripsmikil: „Við erum
með grunnnámskeið sem allar kon-
urnar þurfa að fara í gegnum fyrst, en
það tekur 6 klukkutíma. Síðan tekur
við framhaldsþjálfun fyrir konur sem
er mjög vinsæl. Munurinn á þessu
og sambærilegum námskeiðum sem
hafa verið kennd hér undanfarin ár
er sá að þú lærir ekki bara að slá
frá þér eða losa þig úr tökum heldur
líka að verjast í átökum inni í bifreið,
inni í lyftu, lærir að losa þig ef þú ert
frelsissvipt og bundin – lærir að beita
ýmsum vopnum ef þess þarf, egg-
vopnum og skotvopnum. Einnig lær-
irðu taktík til að komast úr slæmum
aðstæðum og einnig að fyrirbyggja
þær.
Næsta grunnnámskeið fyrir konur
verður haldið sunnudaginn 2. desem-
ber og í kjölfarið taka við framhalds-
námskeið fyrir þær sem það vilja.
Nánari upplýsingar og skráning eru
á vefsíðunni isrmatrix.is. Sjá einnig
Facebook-síðuna ISR Matrix – Iceland.
Kennsla fer fram í húsnæði ISR Matrix
að Stórhöfða 17, Reykjavík. Símanúm-
er er 862 0808.
ISR MATRIX:
Sjálfsvörn við hættulegustu aðstæður